Ný Dögun - 01.11.1991, Qupperneq 11
Gylfi 3 óv\ssony lögreglufullfrúi
nni
köllum og framhaldsrannsóknum
vegna umferðarslysa, vinnuslysa,
sjóslysa og í einstökum tilvikum vegna
flugslysa. I deildinni starfa 12 manns.
Atta þeirra á fjórskiptum vöktum ,
sinna útköllum á slysavettvang og
fjórir vinna í dagvinnu að framhalds-
rannsóknum slysamála. Nauðsynlegt
er að hafa sem hæfast fólk við hin
annasömu störf í deildinni. Starfið
kallar á talsverða sérhæfingu, auk þess
sem mikið reynir á mannlega sam-
skiptaþáttinn, og þá oft við erfiðar
aðstæður.
Á síðasta ári voru tilkynnt til lög-
reglunnar í Reykjavík um 4800 um-
ferðaróhöpp og- slys, 80 vinnuslys og
7 flugslys og/eða sjóslys. Á þessi tilvik
voru ritaðar rúmlega 2100 skýrslur.
c\ncWc\\s
Fundarstjóri, ágætu fundarmenn.
Ég starfa sem lögreglufulltrúi í Slysa-
rannsóknadeild lögreglunnar í Reykjavík.
Mig langar til þess að byrja á því að kynna
fyrir ykkur í stuttu máli starfsemi deild-
arinnar.
Slysarannsóknadeildin er hluti af rann-
sóknadeild lögreglunnar. Hún sinnir út-
Eins og nærri má geta væri ekki hægt
að sinna þessum tilkynningum sem
skyldi, ef ekki kæmi til aðstoð frá
umferðar- og almennu deild lögregl-
unnar. Innan skamms er ætlunin að
færa rannsóknir mengunarslysa undir
deildina, og aukast þá umsvif hennar
til muna.
Tæknideild er starfandi við em-
bættið, og leitar slysarannsóknadeildin
til hennar vegna töku vettvangsmynda
og fleira, er lítur að tæknihlið rann-
sóknar í alvarlegri slysamálum.
Á síðasta ári slösuðust 70 manns
alvarlega í umferðaslysum á starfs-
svæði lögreglunnar í Reykjavík, en það
nær frá Gróttuvita í vestri að botni
Hvalfjarðar í austri.
11