Ný Dögun - 01.11.1991, Qupperneq 12

Ný Dögun - 01.11.1991, Qupperneq 12
/s]ý Dögun Á því ári létust 7 manns í umferðaslysum á starfssvæðinu. Til samanburðar létust 2 árið 1989 og 4 árið 1987. í alvarlegustu slysatilvikunum og í öllum tilvikum þegar banaslys verða, er ég kallaður á vettvang eða á slysadeild. í þeim tilvikum tek ég við framhaldsrannsókn málsins - læt kanna eðli áverka, geri ráðstafanir til þess að hægt sé að bera kennsl á viðkomandi og geri aðrar þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar mega teljast, þ.m.t. að tilkynna andlát ef svo ber undir. Hér áður fyrr önnuðust við- komandi lögreglumenn þennan þátt, en vegna aukins skilnings hin síðari ár á mikil- vægi hans og viðkvæmni hafa mál þróast í þá átt, að þetta sé á hendi eins tiltekins aðila. Eftir að prestur réðst til starfa við Borgar- spítalann varð enn auðveldara um vik. Allflestir, sem slasast í umferðinni á starfssvæðinu eru fluttir á slysadeild Borgarspítalans. Ef um mannslát er að ræða er borgarlæknir kvaddur þangað, en hann sem réttarlæknir, úrskurðar lát viðkomandi. Eftir að upplýst hefur verið um hina látnu manneskju, er venjulega farið heim til ættingja hennar. Prestur Borgarspítalans flytur þá venjulega tíðindin, en fulltrúi lög- reglunnar skýrir atburði. Fólk er skiljanlega misjafnlega undir slík tíðindi búið og tekur þeim þess vegna misjafnlega. Reynt er að nálgast þann, sem tilkynnt er um atburðinn, á nærfærnislegan hátt og um leið reynt að skapa þægilegt andrúmsloft við þær aðstæður - hvorki of tilfinningaríkt eða of kaldranalegt. Reynt er að fara bil beggja. Á sorgarstundum sem þessum, tel ég að lögreglumaðurinn og presturinn hafi styrk hvor af öðrum, og það auki samtakamátt þeirra til þess að skila þessu hlutverki sínu á sem bestan hátt - fyrir ættingjann. Síðar þurfa ættingjar að bera kennsl á látinn ástvin sinn. Það er gert með aðstoð hjúkrunarfólks slysadeildar, en það reynir að gera það á sem nærfærnislegastan hátt. Á það ber að líta, að látnir eru stundum illa útlítandi eftir slys og taka þarf sérstakt tillit til þess. Viðbrögð ættingja við sorgartíðindum eru misjöfn af eðlilegum ástæðum. Yfirleitt fylgir mikil sorg í kjölfarið, en þó eru til dæmi þess að menn verði reiðir við tíðindin og reyni strax að leita blórabögguls. Langflestir vilja vita hvernig umrætt slys bar að, og hvemig öðrum hafi reitt af. Það kemur fyrir að manneskja, sem látist hefur í slysi hafi átt heimili utan lögsagnar- umdæma lögreglunnar í Reykjavík. í þeim tilvikum er venjulega haft samband við sóknarprest viðkomandi og hann flytur ættingjum hennar síðan tíðindin. í þágu rannsóknar banaslyss þarf venju- legast að fara fram krufning, til þess að hægt sé að segja um dánarorsök. I þeim tilvikum er haft samband við ættingja og er það yfir- leitt gert með vilja og vitund þeirra. Þegar alvarleg umferðaslys verða reyna fréttamenn fjölmiðla að hafa samband við lögreglu og biðja um atburðalýsingu. Sam- band þessara aðila er ágætt og er sú regla viðhöfð að greint er frá ákveðnum stað- reyndum varðandi aðdraganda óhappsins og eðli meiðsla, eftir því sem vitað er um þau, en öðrum upplýsingum haldið utan þess, þar til haft hefur verið samband við ættingja. Má í því sambandi nefna nafn- birtingar, en fjölmiðlar virða mjög vel þann vilja lögreglu, að þeir birti ekki nöfn við- komandi nema í samráði við hana. Þegar fólk lætur lífið í slysum finn ég venjulega til hryggðar, jafnframt því sem mér er ætlað að sinna starfi mínu. Ég veit, að svo er einnig um aðra lögreglumenn, sem vinna að hliðstæðum málum. Rætt hefur verið um þessi mál á meðal lögreglumanna og þeir eru mun meðvitaðri um þau en áður. Ég vona að mér hafi tekist að skýra, hvernig þessi mál ganga fyrir sig hjá lögreglu og að þið séuð einhverju fróðari á eftir. Ég þakka fyrir gott hljóð. 12

x

Ný Dögun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.