Ný Dögun - 01.11.1991, Side 32
/sjý Dogun.
maki fengið frest til að greiða út hluti ófjár-
ráða erfingja.
Eins og nú hefur verið rakið, er staða
langlífari maka við skipti dánar- og félags-
búsins sterk. Lögformlega tekur skiptaréttur
eignir búsins undir sína varðveislu eins og
áður segir við andlát. Hins vegar skal
skiptaráðandi sjá svo til, að langlífari maka,
sem ábyrgist skuldir, sé gerð sem minnst
tálmun í afnotum búsins. Hann getur haldið
umráðum búsins og ráðið yfir eignum þess
á venjulegan hátt. Hann verður ekki sviptur
umráðum búsins, nema sérstök ástæða sé til
að óttast, að hann muni fara illa með eignir
þess meðan skiptin fara fram. Skiptin
byggjast á framtali eftirlifandi maka, á eign-
um og skuldum búsins, taki erfingjar og
fjárhaldsmenn ófjárráða erfingja það gilt og
skiptaráðandi véfengi það ekki. Eignir
búsins má virða og ekki er þörf að selja þær,
heldur getur eftirlifandi maki haldið þeim
gegn greiðslu í peningum.
Þegar um eignalaus bú er að ræða lýkur
meðferð þeirra með yfirlýsingu um það á
brotalítinn hátt.
Erfðaf j ár skattur
Ein réttarbótin enn á síðustu árum til
hagsbóta fyrir langlífari maka er sú, að hann
er undanþeginn greiðslu erfðafjárskatts af
arfi eftir skammlífari maka og sama lá við
um arf sambýlismanns, enda hafi arftaka
verið getið sem sambýlismanns í erfðaskrá.
í lögum um erfðafjárskatt er hugtakið sam-
býlismaður látið ná yfir þann, sem stofnað
hefur til óvígðrar sambúðar við persónu af
gagnstæðu kyni og tekur arf eftir hana
samkvæmt erfðaskrá, þar sem stöðu hans
sem sambýlismanns er ótvírætt getið.
Óvígð sambúð
Sé erfðaskrá ekki til að dreifa milli
sambýlisfólks og ekki samningur í gildi milli
þeirra um eignir er staða langlífari við andlát,
miklu veikari, en ef um hjón er að ræða.
Nægir þar að nefna að eftirlifandi sam-
búðaraðili nýtur h vorki erfðahlutar að lögum
né búshluta. Skiptareglur skiptalaga eiga
ekki við, reglur um fjármál hjóna eiga ekki
við og skiptin fara fram eftir almennum
reglum fjármunaréttarins, nema að því er
snertir ágreining, sem upp kann að koma
milli langlífari sambúðaraðila og erfingja
hins skammlífari. Úr slíkum ágreiningi sker
skiptaréttur.
Aður var talið að sambúðarkona ætti rétt
á ráðskonulaunum við slit sambúðar.
Ráðskonulaun voru einnig dæmd í nokkrum
tilvikum við slit sambúðar vegna andláts. Á
síðari árum hefur hins vegar verið tilhneiging
til þess að líta svo á, að slík laun eigi ekki að
dæma við sambúðarslit, liggi ekki fyrir
samningur um það. Þess í stað hafa dóm-
stólar dæmt langlífari sambúðaraðila rétt til
hlutdeildar í eignamyndun á sambúðartíma,
eða viðurkennt að sameign hafi stofnast.
Með því móti hefur verið komið í veg fyrir,
að sá aðilinn, sem ekki er skráður fyrir eða
talinn eigandi eignanna glati rétti sínum á
ósanngjarnan hátt.
Tryggingar til hagsbóta fyrir langlífari
maka
Höfuðstólstrygging er nefnd sú líftrygg-
ing, þar sem greiða skal út tryggingafjár-
hæðina í einu lagi, er vátryggingarat-
burðurinn gerist.
Lífeyristrygging á hinn bóginn er nefnd
sú trygging, þar sem vátryggingarféð er
greitt smátt og smátt.
Um þessar tryggingar gilda reglur vá-
tryggingarsamningsins, sem gerður er á
grundvelli skilmála tryggingarfélagsins og
laga um vátryggingarsamninga. Mikilvægt
er, að maki sé skilmerkilega tilnefndur
viðtakandi bótanna, til þess að tryggt sé að
hann fái einn bæturnar, standi vilji til þess
og er unnt að gera tilnefninguna óafturtæka.
Unnt er að taka líftrygginguna til hagsbóta
fyrir sambúðaraðila, en þá er nauðsynlegt
32