Ný Dögun - 01.11.1991, Page 33
Dögurv
að gera tilnefninguna óafturtæka, annars
gengur krafa til skylduarfs fyrir líftrygg-
ingarkröfunni.
Bætur almannatrygginga
Á þessu víðtæka bótasviði hafa reglur að
miklu leyti verið samræmdar fyrir hjón og
sambúðaraðila. Samkvæmt lögum um
almannatryggingar teljast þær vera: líf-
eyristryggingar, slysatryggingar og sjúkra-
tryggingar. Sækja þarf um bætur frá al-
mannatryggingum.
Lífeyristryggingar
6 mánaða bætur:
Fyrstu 6 mánuði eftir fráfall maka eiga
ekkjur eða ekklar yngri en 67 ára rétt á
bótum.
12 mánaða bætur.
Hafi bótaþegi barn yngra en 18 ára á
framfæri sínu á hann einnig rétt á bótum í 12
mánuði til viðbótar 6 mánaða bótunum.
Sambúðarfólk á einnig rétt á þessum
bótum samkvæmt reglum þeim sem um
ekkjulífeyri gilda og síðar verða raktar.
Barnalífeyrir
Bamalífeyrir er greiddur með bömum
yngri en 18 ára, ef annaðhvort foreldri er
látið. Greiddur skal tvöfaldur bamalífeyrir
séu báðir foreldrar látnir. Sömu réttarstöðu
hafa kjörbörn og ennfremur stjúpböm, sem
ekki eiga framfærsluskyldan föður á lífi. Þá
er heimilt að greiða einfaldan barnalífeyri
vegna ólaunaðs skólanáms eða starfsþjálf-
unar ungmenna á aldrinum 18-20 ára sé
annað foreldri eða báðir látnir.
Mæðralaun - Feðralaun
Þessar bætur á að greiða ekkjum og ekkl-
um, sem framfæra börn sín undir 18 ára
aldri.
Ekkjulífeyrir
Greiðsla ekkjulífeyris hefst ekki fyrr en 6
eða 12 mánaða bótum er lokið. Rétt til
ekkjulífeyris á kona, sem orðin er 50 ára við
lát eiginmanns síns, og einnig kona sem
hefur verið ógift í sambúð, ef a) sambúðarfólk
hefur átt barn saman eða b) sambúðarkona
hefur verið barnshafandi er sambýlismaður
andast eða c) sambúð hefur varað samfley tt
í 2 ár.
Konur sem verða ekkjur innan 50 ára
aldurs eiga rétt á ekkjulífeyri, ef þær eru
orðnar 50 ára, þegar þær hætta að taka
bamalífeyri eða meðlag. Tryggingarráði er
heimilt að veita ekkju ekkjulífeyri frá 50 ára
aldri, þótt hún hafi verið yngri er maður
hennar lést, en þá skal hjónabandið hafa
staðið a.m.k. í 20 ár.
Bætur slysatrygginga
Slysatryggðir em launþegar við vinnusly s
eða við slys á beinni leið til og frá vinnu,
iðnnemar við iðnnám, útgerðarmenn, sem
sjálfir eru skipverjar og slasast við vinnu,
björgunarmenn, sem vinna að björgun
manna úr lífsháska eða að vörnum gegn
yfirvofandi tjóni á verðmætum og íþrótta-
menn, sem orðnir eru 16 ára og slasast við
æfingar, sýningar eða keppni á vegum
íþróttasamtaka. Einnig eru tryggðir, nema
tekið sé fram í skattframtali í byrjun hvers
árs, að tryggingar sé ekki óskað a) atvinnu-
rekendur í landbúnaði sem vinna land-
búnaðarstörf, makar þeirra og börn á aldr-
inum 12-16 ára og b) atvinnurekendur sem
starfa að eigin atvinnurekstri í öðrum at-
vinnugreinum. Þeir sem heimilisstörf stunda
geta tryggt sér rétt til slysabóta við þau störf
með því að skrá nöfn sín í sérstakan dálk á
skattframtali hvers árs og er þá iðgjaldið
innheimtmeðopinberum gjöldum. Nokkuð
hefur verið bent á mikilvægi þessarar
33