Ný Dögun - 01.11.1991, Page 35
AJý Dðgun.
Aðrar tryggingar eða bótaskylda
Eftirlifandi maki ogböm geta verið tryggð
með öðrum hætti, t.d. í bifreiðatryggingum,
og þau geta einnig átt rétt á bótum vegna
andláts af bótaskyldri háttsemi, en slíkt
verður að kanna í hverju einstöku tilfelli og
er ekki efni til að fara frekar út í hér.
Skattamál
Hjón og sambúðaraðilar einnig ef þeir
óska að telja fram til skatts sameiginlega.
Njóta sambúðaraðilar þá sömu réttinda og
bera sömu skyldur sem hjón. Við andlát
lýkur rétthæfi og lögaðili verður til, dánarbú.
Hins vegar getur eftirlifandi notið áfram í
tiltekinn tíma réttinda hins látna eins og um
hjón væri að tefla.
Langlífari getur nýtt sér persónuafslátt
hins látna og talið fram sameiginlega allar
tekjur sínar og hins látna í allt að 9 mánuði
talið frá og með andlátsmánuði.
Við álagningu eignaskatts skal skipta
álagningarstofni eftirlifandi maka sem situr
í óskiptu búi og reikna eignaskatt hans eins
og hjá hjónum væri, næstu fimm ár eftir lát
maka. Vekja verður athygli á því, að þennan
rétt eiga aðeins þeir sem rétt eiga til að sitja
í óskiptu búi. Þennan rétt virðist því, t.d.
ekki eiga eftirlifandi maki, þegar niðjum er
ekki til að dreifa.
Eignaskattsálagningu eftirlifandi sam-
búðaraðila eða maka skal á dánarári maka
eða sambúðaraðila hagað á sama hátt og um
hjón væri að ræða.
Sækja þarf um þessa álagningaraðferð til
þess að framteljandi njóti hennar örugglega,
en ekki er það skilyrði. Skattyfirvöld reyna
að meta hvort framteljandi, sem ekki sækir
um, eigi þennan rétt.
Skattfrelsi bóta
Svonefndar 8 ára bætur frá almanna-
tryggingum eru skattfrjálsar, enda séu þær
ákveðnar í einu lagi.
Eignaauki sem verður vegna greiðslu
líf try ggingarfjár og dánarbóta sem ákveðnar
eru í einu lagi telst ekki til tekna.
Bamalífey rir er skattfrjáls ef annað foreldri
eða bæði eru látin.
Styrki og samskotafé vegna veikinda eða
slysa skal ekki telja til tekna.
Langlífari getur átt rétt á ívilnun vegna
andláts, hafi það skert gjaldþol manns
verulega. Sækja þarf um slíka ívilnun. Sé
hún veitt kemur það fram í lækkun tekju-
skatts- og eignaskattsstofns. Lækki skatt-
stjóri tekjuskattsstofn skal útsvarsstofn
lækka um sömu fjárhæð. Sveitarstjórn er
einnig heimilt að lækka eða fella niður út-
svarsstofn samkvæmt umsókn, þegar
ívilnunarheimild þessi á við, telji hún ástæðu
til að veita frekari lækkun en skattstjóri veitti.
Á sama hátt getur sveitarstjórn lækkað
eða fellt niður álagt útsvar þeirra, sem nutu
bóta úr lífeyris- og slysatryggingum al-
mannatrygginga.
Þá er sveitarstjórn heimilt að lækka eða
fella niður fasteignaskatt, sem tekjulitlum
elli- eða örorkulífeyrisþegum er gert að
greiða.
Eitthvað mun tíðkast, að sveitarstjómir
gangi í sérstökum tilfellum lengra en nú var
getið um lækkun eða niðurfellingu gjalda.
Niðurlag
Þetta yfirlit getur ekki skoðast sem tæm-
andi lýsing á réttarstöðu ekkna og ekkla eða
langlífari sambúðaraðila. En það getur verið
leiðbeinandi fyrir þá sem verða fyrir röskun
á stöðu og högum við andlát maka eða
sambýlismanns og til upplýsingar fyrir þá
sem starfa í samtökum þeim sem standa
fyrir námsstefnu þessari. Vil ég að lokum
óska þeim allra heilla.
35