Ný Dögun - 01.11.1991, Page 40

Ný Dögun - 01.11.1991, Page 40
Dógun Henni þótti ósköp mikið til bræðra sinna koma, sem voru tæpum tveimur og fimm árum eldri en hún. Þau voru öll mjög samrýnd. Ekki merkti ég hjá henni sterk viðbrögð í fyrstu og satt að segja man ég ekki mikið eftir henni fyrstu dagana eftir slysið, enda var hún að miklu leyti að leik og í umsjá góðra nágranna okkar fyrst á eftir. Þegar vikur og mánuðir liðu frá slysinu ræddi ég allmikið um bræður hennar við hana, lýsti söknuði og eftirsjá. En um það bil hálfu öðru ári eftir lát bræðra hennar tók hún upp á þ ví að hverfa að heiman, þá aðeins tæpra fimm ára. í þrígang gerðist þetta og þá ætíð að kvöldi til, eftir að aldimmt var orðið. Eftir mikla leit okkar foreldranna í öll skiptin hafðist upp á henni eða hún kom heim af sjálfsdáðum. Ég leit fyrst og síðast á þetta sem óhlýðni og óþekkt af hennar hálfu. Eitthvað hefur þetta þó verið að veltast um í kollinum á mér, því ég hafði orð á þessari uppátekt hennar við Pál Eiríksson, geðlækni, sem þá starfaði með okkur, sem þá stóðum að undirbúningi þessara samtaka. Páll leit þetta alvarlegum augum og fullyrti að hún væri að reyna að segja okkur eitthvað með þessari framkomu. Ekki vildi ég taka mark á honum í fyrstu, en lét á endanum til leiðast að fara að hans ráðum. - Hann bað mig spyrja hana í góðu tómi hvort hún héldi að okkur þætti ekki eins vænt um hana og Fannar Karl og Brynjar Frey. Páll gat sagt nákvæmlega fyrir hver svör hennar yrðu. Og fyrsta svarið var auðvitað það, að okkur hefði þótt miklu vænna um þá. - Síðan átti ég samkvæmt hans ráði að reyna að sannfæra Margréti Hildi um hið gagnstæða. Páll sagði jafnframt að líklega kæmi hún með þá skýringu, að þeir hefðu alltaf verið s vo góðir og þægir, en sífellt væri verið að skamma hana. Þetta gekk eftir nánast orðrétt. En hún bætti við í þessu eftirminnilega samtali okkar, að við hefðum ekki einu sinni farið að gráta, þegar hún hefði „látið" sig týnast. Óneitanlega kom þetta mjög illa við mig og nú fannst mér ég hafa brugðist henni 40 gersamlega. Hún hafði hárrétt fyrir sér. Við höfðum ævinlega talað um hið góða og jákvæða í fari þeirra bræðra og eflaust sjaldan eða aldrei minnst á þær stundir sem voru neikvæðar í minningunni. - Ég reyndi af öllum mætti að sannfæra hana um að okkur þætti ekki minna vænt um hana, og sagði henni jafnframt frá því að oft hefði ég þurft að skamma þá, því þeir höfðu ekki alltaf verið þægir og góðir. Ég lagði mig fram um það næstu vikur og mánuði og geri enn, að tjá Margréti Hildi væntumþykju mína í hennar garð, tek hana oft í fangið og læt hana finna hversu mikið hún er elskuð. Ég vil taka það fram að eftir þetta merki- lega samtal okkar, „týndist" hún ekki framar. Margrét Hildur er hamingjusamt barn. Það veit ég. Hún er lífsglöð og gengur afburðavel í skóla og er vinsæl meðal vina. Ég vona því að hún hafi engan skaða hlotið af þessum mikla missi. Þó þykist ég vita að sorgin mun fylgja henni í einhverri mynd um ókomin ár. Heimir Snær, sonur minn er sex ára, en var átta mánaða þegar slysið varð. Skiljan- lega vissum við ekki hvað fór um huga svo lítils barns. Hans fyrsta verk á morgnana var að skríða inn í herbergi til Fannars og Bry njars og gantast við þá. Þessu hélt hann áfram nokkrum sinnum eftir slysið og alltaf kom sami undrunarsvipurinn á litla andlitið, er hann sá að bræðurnir voru ekki á sínum stað. Skyndilega var eins og hann skynjaði að strákarnir yrðu ekki þama meira og lét sér nægja eftir það að skríða upp í ból okkar foreldranna. Mjög fljótlega fórum við að sýna honum myndir af Fannari og Brynjari og tala um þá við hann. En það var ekki fyrr en hann var hátt á sjötta ári að bera fór á sterkum við- brögðum hjá honum vegna fráfalls bræðra hans. Ég kom að honum þó nokkrum sinnum á síðastliðnu ári, grátandi, þar sem hann var að glugga í myndaalbúm og skoða myndir

x

Ný Dögun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.