Ný Dögun - 01.11.1991, Page 41
/Oý Dogun
af bræðrunum. Hann á stundum erfitt með
að hlusta á falleg lög og sögur þar sem
eitthvað sorglegt kemur fyrir. Til dæmis var
ég að lesa fyrir hann söguna um Bróður
minn Ljónshjarta. Það var honum ofviða að
hlusta á þá sögu. Það hefur verið mjög erfitt
að horfa á hann líða svona mikið. Eg hef
fengið að heyra það hjá fólki sem stendur
mér nálægt, að ef til vill höfum við talað of
mikið við hann um strákana og haldið
minningu þeirra um of á lofti. Ég held hins
vegar ekki.
Við höfum aldrei þröngvað honum til
eins eða neins sem tengistminningu Fannars
og Brynjars, heldur höfum við notað tæki-
færið þegar hann opnar sjálfur fyrir þá um-
ræðu. Það hafa komið þær stundir þegar
hann hefur viljað fá að vita allt um slysið og
aðdraganda þess og svo framvegis. Hann
hefur spurt óþægilega nærgöngulla spurn-
inga, sem ég hef ekki alltaf verið tilbúin að
svara, þ.e. ekki mín vegna heldur hans sjálfs
vegna.
Hann hefur átt erfitt síðastliðið ár og það
hefur komið fram m.a. í skólanum. Hátíða-
stundirnar í skólastofunni fyrir s.l. jól voru
honum mjög erfiðar. Þá var eins og sorgin
helltist yfir hann. Hann var svo lánsamur að
hafa einstakan kennara, unga konu sem hafði
orðið fyrir svipaðri reynslu sem bam, hafði
misst bróður sinn nokkurra mánaða gömul.
Hún sagði mér að hún skildi Heimi minn
mjög vel. Hún reyndist honum einstaklega
vel og ég er ekki frá því að það hafi að
einhverju leyti skilað sér.
Ég hef reynt að útskýra fyrir honum að
hann sé fimm árum á eftir okkur í sorginni.
Við séum farin að jafna okkur eftir að hafa
liðið eins og honum núna.
Ég vil fara örfáum orðum um yngsta
bamið mitt, Fannar Frey. Hann fæddist tæpu
einu og hálfu ári eftir að Fannar og Brynjar
létust. Hann er því fimm ára núna. Hann
skoðar myndir af þeim og talar oft um þá og
spyr okkur um ýmislegt varðandi líf þeirra
hérna megin. Mér finnst eins og hann sé ekki
enn farinn að skynja sorgina sem fylgir því
að missa ástvin. Að minnsta kosti sýnir hann
enga tilburði í þá átt. - En ég er við öllu búin
eftir að hafa gengið þessa erfiðu göngu með
Heimi minn síðustu misseri.
Það er sárt til þess að hugsa að bömin mín
skuli þurfa að alast upp frá frumbernsku
með sorgina sér við hlið. - Ég bið þess að við
foreldrar þeirra höfum tekið sem réttast á
málum og börnin okkar komist tilfinninga-
lega heil til fullorðinsára - að þau verði
jaftivel enn betri manneskjur en ella.
Við verðum að vera á varðbergi gagn vart
börnum okkar eftir ástvinamissi. Leyfum
þeim að vera þátttakendur í sorginni með
okkur. Útilokum þau ekki. Verum sjálf virkir
þátttakendur í þönkum þeirra um lífið og
tilvemna.
■ /
om
wmxM
uv\ar skipat
Varastjóm skipa:
Sigurður Jóhannsson - Formaður
Bragi Skúlason - Varaformaður
Kristín Aðalsteinsdóttir - Gjaldkeri Árni Árnason
IngibjÖrg Jóhannsdóttir - Ritari Ásgeir Ágústson
Elínbjörg Jónsdóttir - Meðstjórnandi Halla Eiríksdóttir
Elín Sverrisdóttir - Meðstjómandi Guðbjörg Þórðardóttir
Jóna Dóra Karlsdóttir -Meðstjómandi Sesselja Hrönn Guðmundsdóttir
41