Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Blaðsíða 2
2 10. ágúst 2018FRÉTTIR 1628 – Sænska herskipið Vasa sekkur í Stokkhólmshöfn 20 mínútum eftir að land- festum var sleppt í fyrstu ferð þess. 1792 – Ráðist er á Tuileries-höllina í Frönsku byltingunni. Loðvík 16. er handtek- inn og svissneskir varðliðar hans brytjaðir niður af múgnum í París. 1969 – Daginn eftir að hafa myrt Sharon Tate og fjóra að auki, myrða meðlimir söfnuðar Charles Manson Leno og Rosemary LaBianca. 1997 – Fjöl- miðlastjarnan og fyrirsætan Kylie Jenner fæðist. Á þessum degi, 10. ágúst 1519 – Fimm skip Ferdinands Magellan leggja úr höfn í Sevilla í leiðangur um- hverfis jörðina. Næstráðandi Magellan, Baskinn Juan Sebastían Elcano, lýkur leiðangrinum í kjölfar dauða Magellan á Filippseyjum. RÁIN Hafnargata 19a Keflavík S. 421 4601 FERSK OG FALLEG ÞJÓNUSTAR ÞIG Í MAT OG DRYKK Síðustu orðin „Jæja, herramenn, brátt munu þið sjá bakað epli (Appel).“ – Morðinginn George Appel, rétt áður en hann var tekinn af lífi í rafmagns- stól árið 1928. Samkvæmt sumum heimildum voru síðustu orðin önnur: „Allar dömur elska bökuð epli.“ Óli lagði sjómennskuna á hilluna og fór að vinna á leikskóla: „KEM STUNDUM HEIM ÞREYTTARI EN EFTIR 15 TÍMA Á SJÓNUM“ Ó lafur Ingi Bergsteinsson er 34 ára, tveggja barna faðir frá Stykkishólmi. Hann hafði starfað sem sjómað- ur í nokkur ár þegar hann ákvað að breyta algjörlega um starfsum- hverfi og sækja um vinnu á leik- skóla í bænum. Það var ákvörðun sem hann sér svo sannarlega ekki eftir. „Ég hafði starfað sem sjómaður hjá útgerðarfélaginu Kára í rúm þrjú ár og fannst það mjög fínt. Því miður hentaði starfið ekki mínu fjölskyldumynstri þar sem kon- an mín á þeim tíma vann vakta- vinnu og því var oft mjög stremb- ið að púsla þessu öllu saman, í sambandi við pössun og annað. Ég ákvað eftir smá hugleiðingu að prófa að fá mér vinnu í landi og sló ég til þegar ég sá að það var auglýst eftir fólki til að vinna á leikskól- anum hér í Stykkishólmi,“ segir Ólafur, Óli eins og hann er jafnan kallaður. Jákvæð viðbrögð Óli segir fjölskylduna og vini hafa stutt þá ákvörðun hans að koma í land. „Ég hef bara fengið já- kvæð viðbrögð við þessu og fólk almennt tekur þessu vel enda er rosalega gott að hafa karlmenn í þessari vinnu. Ég fæ jákvæðar athugasemdir við það sem ég er að gera þannig að ég er sennilega að gera eitthvað rétt.“ Óla líkar starfið á leikskólan- um vel en viðurkennir að það geti verið erfitt. „Ég kem stundum heim þreyttari en eftir fimmtán tíma á sjónum en allt öðruvísi þreyttur. Munurinn á þess- um tveimur stöð- um er í raun sá að vinnan á leikskól- anum getur ver- ið andlega erfið á meðan vinnan á sjónum getur ver- ið líkamlega erfið. Vinnutíminn á leik- skólanum er líka mun betri en á sjón- um og það er gott að vera með öruggt helgarfrí,“ segir Óli. Sest á skólabekk í haust Skömmu eftir að Óli hóf störf á leikskól- anum ákvað hann að ganga alla leið og skrá sig í leikskóla- kennaranám. Óli tek- ur námið í fjarnámi frá Stykkishólmi og byrjar í haust. „Það var fyrst og fremst áhuginn á leikskólastarf- inu sem fékk mig til að sækja um námið. Svo voru þessar elskur sem ég er að vinna með alltaf að ýta þessari hugmynd dýpra og dýpra í hausinn á mér og þakka ég þeim innilega fyrir það. Einhvern tímann hækka svo launin vonandi eitthvað en það er nú svo sem málið út af fyrir sig enda eru þau hlægilega lág,“ segir hann. Þrátt fyrir lág laun sér Óli ekkert eftir ákvörðun sinni og hvetur aðra karlmenn til að feta sömu braut. „Ég mæli hiklaust með þessu fyr- ir karlmenn. Eflaust ríkir einhver hræðsla meðal karlmanna og sumir líta á þetta sem „kvenna- starf“, sem þetta er alls ekki. Það geta allir unnið á leikskóla.“ n Óðinn Svan Óðinsson odinn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.