Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Blaðsíða 12
12 10. ágúst 2018FRÉTTIR
Þ
að hefur væntanlega ekki
farið framhjá mörgum að
Donald Trump virðist ekki
vera neitt sérstaklega hlýtt
til Þýskalands og Angelu Merkel
kanslara. Hann hefur ekki farið
leynt með þessar tilfinningar sínar
og skoðanir og sett þær fram bæði
í ræðu og riti. Má þar nefna um
mæli hans um að Þjóðverjar séu
háðir orku frá Rússlandi og séu
þar með eiginlega á valdi Rússa.
Hann hefur sagt að Merkel sé
að eyðileggja Þýskaland. Flótta
mannamálin hafa heldur ekki far
ið framhjá honum en hann hefur
haldið því fram að glæpatíðnin í
Þýskalandi hafi aukist mikið í kjöl
far þess að um ein milljón flótta
manna kom til landsins 2015.
Oftast setur hann gagnrýni sína
fram á uppáhaldsvettvangi sínum
Twitter, en hann hefur einnig látið
ýmis ummæli um Þýskaland og
Þjóðverja falla á fundum. Hann á
meira að segja erfitt með að halda
aftur af sér þegar hann ræðir við
Merkel í síma að sögn The New
York Times sem segir að í sím
tölunum við Merkel komi oft fyrir
að þau nái varla að skiptast á hefð
bundnum kurteisiskveðjum áður
en Trump byrjar að ræða um út
gjöld Þjóðverja til varnarmála eða
viðskiptajöfnuð ríkjanna.
En það eru ekki aðeins tölur
sem eiga hlut að máli hvað varð
ar andstöðu Trumps við Merkel og
Þýskaland. Það er ekki síður Mer
kel og persónuleiki hennar sem
og heimssýn sem fer í taugarnar á
Trump að mati sérfræðinga.
Merkel segir það rétt að við
skiptajöfnuður ríkjanna sé hag
stæður Þjóðverjum. Þegar þau
ræða saman segist hún reyna að fá
Trump til að líta einnig til þjónustu
sem ríkin veita hvort öðru en þá
kemur nýtt sjónarhorn á hlutina
að hennar sögn. Sumir telja að
skapferli leiðtoganna tveggja sé
svo ólíkt að þeir eigi einfaldlega
enga samleið og það kyndi jafnvel
undir gagnrýni og meintri andúð
Trumps á Þýskalandi og Merkel.
Ein af ástæðunum fyrir þessari
óánægju hans með Þýskaland er
hversu hagstæður viðskiptajöfn
uður Þýskalands er í viðskiptum
ríkjanna tveggja. Í hans augum eru
Þjóðverjar ósanngjarnir.
Obama blandast í málið
Trump er tilfinningaríkur og tel
ur sig vera „sterkan mann“ eins
og Pútín og það virðist ekki fara
vel saman við hversu litlar tilfinn
ingar Merkel sýnir, hversu raunsæ
hún er og hve mikið hún heldur sig
við staðreyndir. Þetta virðist ergja
Trump sem er vanur að spila inn
á tilfinningar fólks. Þá er ljóst að
Trump er mjög í nöp við Barack
Obama, forvera sinn á forseta
stóli, og nýtir hvert tækifæri til að
vinna gegn því sem Obama stóð
fyrir og hratt í framkvæmd í for
setatíð sinni. Á valdatíma Obama
var Þýskaland talið náinn banda
maður Bandaríkjanna en sú staða
breyttist snögglega þegar Trump
tók við embætti. Obama hafði og
hefur væntanlega enn háar hug
myndir um Merkel og telur að
hún berjist fyrir sameiginlegum
frjálslyndum hugmyndum þeirra
beggja. Obama hvatti Merkel til að
bjóða sig fram á nýjan leik í kjölfar
sigurs Trumps í forsetakosningun
um og hefur Merkel viðurkennt
að kjör Trumps hafi verið ein af
ástæðunum fyrir að hún bauð sig
fram á nýjan leik. New York Times
hefur til dæmis stillt henni upp
sem nýjum leiðtoga hins frjálsa
heims en Trump hefur lagt mesta
áherslu á Bandaríkin á forsetatíð
sinni og dregið Bandaríkin út úr
ýmsu alþjóðlegu samstarfi. Ekki er
því ólíklegt að Trump líti á Merkel
sem einhvers konar framlengingu
eða framhald á heimsmynd
Baracks Obama og það kyndi und
ir andstöðu hans við Þýskaland og
það sem þýskt er.
Könnun sem Pew Research
Center gerði á síðasta ári sýndi að
rúmlega helmingur Bandaríkja
manna taldi að Merkel stæði sig vel
í starfi hvað varðar alþjóðamál. En
frá 2012 hafa viðhorf repúblikana
og demókrata til Merkel breyst.
Árið 2012 var nær enginn mun
ur á viðhorfum stuðningsmanna
flokkanna. En á síðasta ári höfðu
64 prósent demókrata trú á Mer
kel en aðeins 50 prósent repúblik
ana, svo viðhorf Trumps virðast
að einhverju leyti hafa smitast út
til stuðningsmanna repúblikana
flokksins.
Hvað gerist í framtíðinni?
Þýskir stjórnmálamenn velta eðli
lega fyrir sér hvort sambandið
við Bandaríkin muni batna þegar
Trump lætur af embætti. Sumir
telja að Þjóðverjar og Evrópa í
heild þurfi einfaldlega að venja sig
við að Evrópa verður ekki lengur
eins mikilvægur hluti af utanríkis
stefnu Bandaríkjanna og áður og
að Evrópa fái sífellt minni stuðn
ing. Þetta fær stuðning í að Obama
horfði í kringum sig í sinni forseta
tíð og einblíndi ekki á Brussel. Á
valdatíma hans spurðu Banda
ríkjamenn einnig um framlög
Evrópu til NATO og hvers vegna
þau væru ekki hærri.
Aðrir telja að stefna Trumps
muni á endanum styrkja hina
frjálslyndu heimsmynd vegna sí
felldrar andstöðu hans við hana.
Þannig hafi orð hans og gerðir
þveröfug áhrif við það sem hann
ætlar. n
Jakson sófi frá Dawood
Verð: 44.030
Verð áður: 62.900
Rúm, borð, stólar
sængur, koddar,
sófar, gjafavara ofl.
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
20-70%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
n Merkel framhald af Obama n Afstaðan í Bandaríkjunum að breytast
Af hverju er
svona mikið í nöp við ?
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is