Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Síða 12
12 10. ágúst 2018FRÉTTIR Þ að hefur væntanlega ekki farið framhjá mörgum að Donald Trump virðist ekki vera neitt sérstaklega hlýtt til Þýskalands og Angelu Merkel kanslara. Hann hefur ekki farið leynt með þessar tilfinningar sínar og skoðanir og sett þær fram bæði í ræðu og riti. Má þar nefna um­ mæli hans um að Þjóðverjar séu háðir orku frá Rússlandi og séu þar með eiginlega á valdi Rússa. Hann hefur sagt að Merkel sé að eyðileggja Þýskaland. Flótta­ mannamálin hafa heldur ekki far­ ið framhjá honum en hann hefur haldið því fram að glæpatíðnin í Þýskalandi hafi aukist mikið í kjöl­ far þess að um ein milljón flótta­ manna kom til landsins 2015. Oftast setur hann gagnrýni sína fram á uppáhaldsvettvangi sínum Twitter, en hann hefur einnig látið ýmis ummæli um Þýskaland og Þjóðverja falla á fundum. Hann á meira að segja erfitt með að halda aftur af sér þegar hann ræðir við Merkel í síma að sögn The New York Times sem segir að í sím­ tölunum við Merkel komi oft fyrir að þau nái varla að skiptast á hefð­ bundnum kurteisiskveðjum áður en Trump byrjar að ræða um út­ gjöld Þjóðverja til varnarmála eða viðskiptajöfnuð ríkjanna. En það eru ekki aðeins tölur sem eiga hlut að máli hvað varð­ ar andstöðu Trumps við Merkel og Þýskaland. Það er ekki síður Mer­ kel og persónuleiki hennar sem og heimssýn sem fer í taugarnar á Trump að mati sérfræðinga. Merkel segir það rétt að við­ skiptajöfnuður ríkjanna sé hag­ stæður Þjóðverjum. Þegar þau ræða saman segist hún reyna að fá Trump til að líta einnig til þjónustu sem ríkin veita hvort öðru en þá kemur nýtt sjónarhorn á hlutina að hennar sögn. Sumir telja að skapferli leiðtoganna tveggja sé svo ólíkt að þeir eigi einfaldlega enga samleið og það kyndi jafnvel undir gagnrýni og meintri andúð Trumps á Þýskalandi og Merkel. Ein af ástæðunum fyrir þessari óánægju hans með Þýskaland er hversu hagstæður viðskiptajöfn­ uður Þýskalands er í viðskiptum ríkjanna tveggja. Í hans augum eru Þjóðverjar ósanngjarnir. Obama blandast í málið Trump er tilfinningaríkur og tel­ ur sig vera „sterkan mann“ eins og Pútín og það virðist ekki fara vel saman við hversu litlar tilfinn­ ingar Merkel sýnir, hversu raunsæ hún er og hve mikið hún heldur sig við staðreyndir. Þetta virðist ergja Trump sem er vanur að spila inn á tilfinningar fólks. Þá er ljóst að Trump er mjög í nöp við Barack Obama, forvera sinn á forseta­ stóli, og nýtir hvert tækifæri til að vinna gegn því sem Obama stóð fyrir og hratt í framkvæmd í for­ setatíð sinni. Á valdatíma Obama var Þýskaland talið náinn banda­ maður Bandaríkjanna en sú staða breyttist snögglega þegar Trump tók við embætti. Obama hafði og hefur væntanlega enn háar hug­ myndir um Merkel og telur að hún berjist fyrir sameiginlegum frjálslyndum hugmyndum þeirra beggja. Obama hvatti Merkel til að bjóða sig fram á nýjan leik í kjölfar sigurs Trumps í forsetakosningun­ um og hefur Merkel viðurkennt að kjör Trumps hafi verið ein af ástæðunum fyrir að hún bauð sig fram á nýjan leik. New York Times hefur til dæmis stillt henni upp sem nýjum leiðtoga hins frjálsa heims en Trump hefur lagt mesta áherslu á Bandaríkin á forsetatíð sinni og dregið Bandaríkin út úr ýmsu alþjóðlegu samstarfi. Ekki er því ólíklegt að Trump líti á Merkel sem einhvers konar framlengingu eða framhald á heimsmynd Baracks Obama og það kyndi und­ ir andstöðu hans við Þýskaland og það sem þýskt er. Könnun sem Pew Research Center gerði á síðasta ári sýndi að rúmlega helmingur Bandaríkja­ manna taldi að Merkel stæði sig vel í starfi hvað varðar alþjóðamál. En frá 2012 hafa viðhorf repúblikana og demókrata til Merkel breyst. Árið 2012 var nær enginn mun­ ur á viðhorfum stuðningsmanna flokkanna. En á síðasta ári höfðu 64 prósent demókrata trú á Mer­ kel en aðeins 50 prósent repúblik­ ana, svo viðhorf Trumps virðast að einhverju leyti hafa smitast út til stuðningsmanna repúblikana­ flokksins. Hvað gerist í framtíðinni? Þýskir stjórnmálamenn velta eðli­ lega fyrir sér hvort sambandið við Bandaríkin muni batna þegar Trump lætur af embætti. Sumir telja að Þjóðverjar og Evrópa í heild þurfi einfaldlega að venja sig við að Evrópa verður ekki lengur eins mikilvægur hluti af utanríkis­ stefnu Bandaríkjanna og áður og að Evrópa fái sífellt minni stuðn­ ing. Þetta fær stuðning í að Obama horfði í kringum sig í sinni forseta­ tíð og einblíndi ekki á Brussel. Á valdatíma hans spurðu Banda­ ríkjamenn einnig um framlög Evrópu til NATO og hvers vegna þau væru ekki hærri. Aðrir telja að stefna Trumps muni á endanum styrkja hina frjálslyndu heimsmynd vegna sí­ felldrar andstöðu hans við hana. Þannig hafi orð hans og gerðir þveröfug áhrif við það sem hann ætlar. n Jakson sófi frá Dawood Verð: 44.030 Verð áður: 62.900 Rúm, borð, stólar sængur, koddar, sófar, gjafavara ofl. Síðumúla 30 - Reykjavík Hofsbót 4 - Akureyri 20-70% AFSLÁTTUR ÚTSALA n Merkel framhald af Obama n Afstaðan í Bandaríkjunum að breytast Af hverju er svona mikið í nöp við ? Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.