Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Blaðsíða 26
Brauð og bakkelsi 10. águst 2018KYNNINGARBLAÐ Brauðgerð Ólafsvíkur, sem staðsett er að Ólafsbraut 19 í Ólafsvík, hvílir á gömlum og traustum grunni, en Lúðvík Þórar- insson stofnaði fyrirtækið árið 1951. Jón Þór Lúðvíksson lærði bakara- iðnina hjá föður sínum og hefur rekið bakaríið árum saman ásamt eiginkonu sinni, Bjarneyju Jörgen- sen. „Þetta hvílir á gömlum merg og maður veit hvað maður hefur,“ segir Jón Þór en þrátt fyrir harða og erfiða samkeppni gengur reksturinn ágætlega. Viðskiptavinahópur bakarísins er nokkuð breytilegur eftir árstíðum. „Yfir sumartímann eru þetta nánast allt ferðamenn fyrir utan nokkra sjómenn í landi. Ólsarar eru nefni- lega ekki heima hjá sér á sumrin,“ segir Jón Þór og hlær. Á haustin fjölgar innfæddum viðskiptavinum aftur og segir Jón Þór að þetta sé mikið til sami kjarninn sem verslar reglulega við brauðgerðina. Brauðgerð Ólafsvíkur selur einnig brauð í verslanir í héraðinu og þar ríkir hörð samkeppni. „Við erum í samkeppni við allan heiminn,“ segir Jón Þór en verslunareigendur geta valið um að kaupa brauð af honum, frá Reykjavík eða innflutt brauð. Mikið úrval og lágt verð Brauðgerð Ólafsvíkur er rómuð fyrir sanngjarnt verðlag. Jón Þór er þó lítillátur maður og vill ekki gera mikið úr þessu. „Við erum kannski ódýr miðað við ýmsa túristastaði en við leggjum bara áherslu á að vera með eðlilegt og sanngjarnt verð.“ Úrvalið er mikið af bakkelsi, brauði og samlokum, daglega um 50 tegundir í boði sem renna vel út. Dálítil veitingaaðstaða er líka á staðnum fyrir þá sem vilja setj- ast niður, fá sér kaffibolla og njóta kræsinganna á staðnum. Þrjú borð eru inni og borð og bekkir úti sem kemur sér vel í góðviðri. Vinnutími bakara er sérstæð- ur og núna þegar aðstoðarmaður Jóns Þórs er í fríi þá vaknar hann klukkan korter í tvö á nóttinni og vinnan hefst 2.30, en vanalega er byrjað um hálf fjögur. „Ég legg mig vanalega í einn til tvo tíma eftir há- degið og fer síðan snemma að sofa á kvöldin, enda er maður ekkert unglamb lengur,“ segir Jón Þór sem er þó á besta aldri. Einstakt hafrakex Brauðgerð Ólafsvíkur er opin frá 7.30 til 18 á virkum dögum og á laugardögum er opið frá 9 til 16. Þessi afgreiðslutími gildir út sumar- ið en yfir veturinn er opið virka daga frá 7.30 til 17.00. Kjörið er að kíkja á staðinn fyrir þá sem eiga ferð vestur það sem eftir lifir sumars. Ef þú, lesandi góður, gerir það, verður þú að bragða á hafrakexinu sem Brauðgerð Ólafsvíkur er lands- þekkt fyrir og þykir einstaklega gott. Aðspurður hvað það sé sem geri hafrakexið hans svona einstakt seg- ist Jón Þór ekki vita það. „Ætli þetta sé ekki bara góð uppskrift.“ BRAUÐGERÐ ÓLAFSVÍKUR: Fjölskyldufyrirtæki í 67 ár

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.