Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Blaðsíða 46
46 FÓLK 10. ágúst 2018
Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu.
Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur.
Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt
úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig.
Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570
VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR
„Munum þá sem gleyma“
– Hlaupið í minningu Magnúsar Andra fyrir Alzh
eimersamtökin
Þ
ann 23. október síðast-
liðinn lést Magnús Andri
Hjaltason langt fyrir aldur
fram, en hann varð bráð-
kvaddur í sundlauginni í Grinda-
vík. Magnús Andri og fjölskylda
hans eru ötulir stuðningsmenn
Alzheimersamtakanna, en Hjört-
fríður Jónsdóttir, eiginkona Magn-
úsar Andra, greindist með Alzhei-
mer árið 2012.
Magnús Andri vann í Tengi
ehf. í 26 ár og var einn af lykil-
starfsmönnum fyrirtækisins í vexti
þess. Í minningu hans hyggst hóp-
ur fyrrverandi vinnufélaga hans
hlaupa til styrktar Alzheimersam-
tökunum í Reykjavíkurmaraþon-
inu þann 18. ágúst næstkomandi.
„Magnús Andri hljóp í nokkur
ár með hlaupahópnum Stingum
af, sem hleypur fyrir Alzheimer-
samtökin,“ segir Arnar Árnason
hjá Tengi ehf. „Þar var Maggi Andri
afskaplega hár í áheitasöfnun og
var hann áheitakóngur í fyrra.
Hann var ötull stuðningsmaður
til styrktar samtökunum og hefur
unnið mjög vel í þeirra þágu, eins
og hann gat samhliða því að að-
stoða konuna sína, hana Hjöddu.“
Í febrúar síðastliðnum ákváðu
samstarfsfélagar og vinir Magn-
úsar Andra að stofna hlaupahóp í
minningu hans. „Við vildum halda
kyndli hans á lofti, hann hafði sett
sér það markmið að Stingum af
myndi safna milljón og við höfum
sett okkur það markmið að safna
hálfri milljón þannig að saman
ættum við að ná þessari milljón
sem er markmiðið. Það er aðdá-
unarvert að sjá hve margir eru
tilbúnir til að taka þátt og gefa í
maraþoninu.“
Allir starfsmenn Tengis ehf.
sem tök hafa á taka þátt. „Við gerð-
um okkur vonir um að tíu starfs-
menn tækju þátt, en um leið og við
lögðum þetta til voru allir sem til-
tækir voru til í að vera með. Raun-
in er því sú að við erum 24, um 60
prósent starfsmanna fyrirtækis-
ins. Hlauparar eru á öllum aldri,
af báðum kynjum og í öllu formi.
Hver og
einn hleypur á sínu tempói, þrír
fara hálfmaraþon og hinir 10 kíló-
metra.“
Tengi ehf. styður við alla starfs-
menn með því að greiða þátttöku-
gjald allra og styður við undir-
búninginn. „Þetta hefur verið
hvatning fyrir marga til að byrja
að hreyfa sig. Við höfum verið að
hvetja hvert annað, fara í hlaupa-
greiningu og fá tilboð á hlaupa-
vörum fyrir okkur.
Andlát Magnúsar Andra var
reiðarslag fyrir marga starfsmenn
hér, hann var mikill húmoristi og
þekkingarbrunnur, mjög vandað-
ur maður,“ segir Arnar. „Við hvetj-
um alla sem geta til að styrkja
þetta verðuga málefni, margt
smátt gerir eitt stórt. „Munum þá
sem gleyma“.“ n
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Magnús Andri og Hjörtfríður ásamt börnum sínum, Berglindi Önnu, Hjalta og Ernu Rún í maraþoninu árið 2014, en Erna Rún og Hjalti hlaupa einnig í ár fyrir Alzheimersamtökin.
Hvað halda margir um þig sem er alls
ekki satt? Að ég sé ljóshærður.
Hvað finnst þér að eigi að kenna í skólum
sem er ekki kennt þar núna? Kurteisi og
næringarfræði.
Ef þú þyrftir að eyða einni milljón á
klukkutíma, í hvaða verslun færirðu?
B&L bíl.
Hvað viltu að standi skrifað á legsteinin-
um þínum? Vinur vina sinna.
Sex ára barn spyr þig hvort jólasveinn-
inn sé til. Hvernig svarar þú? 63 stykki á
Austurvelli.
Ef þú mættir velja eitt lag sem
yrði alltaf spilað um leið og
þú gengir inn í herbergi
allt þitt líf, hvaða lag
myndirðu velja? Afrika
með TOTO.
Hvað ætti ævisagan
þín að heita? Síðasta
fíflið er ekki fætt.
Hvaða bíómynd hefurðu séð
oftast? Nýtt líf.
Hvað var í tísku þegar þú varst yngri
en er það ekki lengur? Handball Special
Adidas-skór.
Yfir hverju getur þú alltaf hlegið? Einsa
kalda vini mínum (Einar Björn Árnason
kokkur).
Borðarðu mat sem er kominn fram yfir
síðasta söludag?
Helst ekki.
Heilsarðu frægum Íslendingum úti á
götu, þótt þú þekkir þá ekki persónu-
lega? Nei, en konan mín gerir það.
Ef þú mættir bæta við ellefta boð-
orðinu, hvernig hljómaði það? Þetta
reddast.
Hvaða hljóð fer mest í taugarnar á þér?
Tuð.
Hvaða viðburð sérðu mest eftir að hafa
misst af? Rammstein í Kórnum.
Ef þú yrðir handtekinn án skýringa, hvað
myndu vinir þínir og fjölskylda halda að
þú hefðir gert af þér? Keyrt of hratt.
Hvaða teiknimyndapersónu myndirðu
vilja eiga sem vin? Tomma og Jenna.
Hvað ættu allir að prófa að minnsta
kosti einu sinni í lífinu? Að fara á Þjóðhá-
tíð í Vestmannaeyjum.
Ef þú kæmir einn daginn heim úr
vinnunni og þar væri enginn nema Geir
Ólafsson í sturtu, myndirðu hringja í
lögregluna? Nei, ég myndi rétta honum
handklæði og gefa honum hárblásarann
minn (þarf hann ekki lengur).
Hver er tilgangurinn með þessu jarðlífi?
Að vera til staðar fyrir fjölskyldu sína, sama
á hverju gengur.
Hvað er framundan um helgina? Bara
afslöppun og að rífa æfingar aftur í gang.
„Ég myndi gefa Geir Ólafs hárblásarann minn“
Björgvin Þór Rúnarsson er stoltur Eyjamaður og lék með ÍBV í hand-
knattleik áður en hann hélt upp á land til að nema bakaraiðn hér á árum
áður, en þar lék hann með Víkingi og fleiri liðum á sínum langa ferli.
Björgvin lék með öllum landsliðum Íslands í handbolta og þjálfaði einnig
í Noregi. Einnig hefur hann starfað sem aðstoðaþjálfari hjá KR og síðan
Gróttu í úrvalsdeild karla. Björgvin nemur nú löggildingu fasteignasala og
útskrifast í vor frá Háskóla Íslands og hefur starfað hjá Domusnova fast-
eignasölu í tæp fimm ár. Eitt af hans stóru áhugamálum er viðburðahald
tengt tónleikum og því um líku en hann hefur komið nálægt því síðast-
liðin 20 ár, þar á meðal Harlem Globetrotters/TOTO og svo Foreigner í
vor svo eitthvað sé nefnt, en hann undirbýr nú tvo stórviðburði 2019 sem
verða tilkynntir fljótlega. Björgvin er mikill fjölskyldumaður og líður best í
faðmi fjölskyldunnar. Hann sýnir lesendum DV á sér hina hliðina.
HIN HLIÐIN