Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2018, Blaðsíða 42
42 LÍFSSTÍLL 10. águst 2018 Sæl Ragga Mig langar að fá að spyrja þig einnar spurningar. Ég er búin að vera gift/í sam- búð í 14 ár. Maðurinn minn hef- ur alltaf sagt að hann eigi bara eina konu og líti ekki á aðrar kon- ur. Samband okkar hefur alltaf verið mjög gott, og þó að það hafi verið hæðir og lægðir í kyn- lífinu í gegnum árin hefur það líka alltaf verið gott. Fyrir stuttu síðan komst ég að því hann hef- ur verið inni á vefnum einkamál. is og verið að tala við karlmenn. Ég fann líka tvær kynferðislegar myndir af honum í tölvunni. Hann segist ekki hafa haldið framhjá, hann hafi bara verið að leika sér og það sé betra að fífl- ast í karlmönnum. Mig langar að spyrja þig hvort þetta sé eðli- legt, eða getur verið að hann vilji prófa að vera með karlmanni? Hann segist aldrei hafa verið með manni og langi ekki til þess, en ég er efins því hann á sjaldn- ast frumkvæði að kynlífi hjá okk- ur. Ég fer eðlilega að spyrja mig hvort skýringin sé að hann vilji frekar menn. Ef þú getur svarað mér yrði ég mjög þakklát. Bestu kveðjur, Guðrún Komdu sæl Spurningu þinni er alls ekki auð- velt að svara – ég get sannarlega velt upp ýmsum pælingum og ástæðum fyrir áhuga manns þíns á kynferðislegum samskiptum við kynbræður sína, en lykillinn að kynhneigð hans liggur innra með honum. Ég get hins vegar spjallað almennt um áhuga karla á körlum, þá sérstaklega þeirra sem líta á sig, og lifa, sem gagn- kynhneigðir. Sumir karlmenn eru kynferðis lega forvitnir um aðra karlmenn – rétt eins og sumar konur eru kynferðislega forvitn- ar um konur. Okkur er tamara að taka því með stökustu ró ef gagnkynhneigð kona velur að eiga kynferðislega upplifun með annarri konu, en það sama virð- ist ekki gilda um nákvæmlega sömu hegðun karla. Lesbísk ævin týri hafa löngum verið efni kynóra í máli og myndum – sér- staklega meðal gagnkynhneigðra karla, en það sama virðist ekki eiga við um karlana. Ef við frétt- um af samkynja ævintýrum karls sem hefur fram að því birst okk- ur sem gagnkynhneigður fer hommabjöllukórinn umsvifa- laust í gang: „Gvuð er hann gay, og hefur hann lifað í lygi öll þessi ár?“ … sem gæti alveg verið, en þarf þó alls ekki að vera sann- leikurinn. En gott og vel – veltum nú upp nokkrum ástæðum sem gætu legið að baki tölvubrölts karls þíns: Forvitni Kynferðisleg forvitni er eðli- leg. Kannski er maðurinn þinn forvitinn um kynlíf með öðrum körlum og langar að velta sér upp úr þannig pælingum með öðrum körlum. Þetta þarf ekki að þýða að hann langi nokkurn tíma að stunda kynlíf með karli af holdi og blóði. Fantasíur Eflaust á maðurinn innra með sér óra um kynlíf milli karla. Kynórar eru þó þess eðlis að það sem kveikir losta þarf ekki að vera það sama og fólk vill gera. Löngun til að prófa í alvöru Kannski langar hann að prófa að vera með karlmanni. Reynd- ar segir þú að hann neiti því, og ég hef enga ástæðu til að halda að hann sé að segja ósatt. Það er samt ekkert að því að langa að prófa – og þarf ekki endilega að hafa neitt með kynhneigð hans að gera, hvað þá ást hans á þér. Losti Einhverra hluta vegna virðast margir karlmenn eiga betra með að losa um losta með nafnlaus- um kynferðislegum samskiptum en konur. Áður fyrr var ástæða þess talin vera meira magn hormónsins testósteróns hjá karlmönnum – hormónsins sem hvetur greddu, drift og árásar- girni. Nú eru æ fleiri á þeirri skoðun að ekki sé síður um að kenna félagsmótun okkar – við gerum ráð fyrir því að karlmenn eigi að vera graðir og árásar- gjarnir, á meðan konur eiga að vera penar, sýna helst ekki að þær séu kynverur og verjast fim- lega ef graðir karlar reyna að fá þær til lags við sig. Druslustimpl- un og siðferðilegan tvískinnung þekkjum við því miður allt of vel. Fullveðja karlar nútímans hafa því alist upp við þá (rang) hugmynd að þeir búi í heimi þar sem ofgnótt er af karlmann- legri greddu en skortur á þeirri kvenlegu. Kannski er það þess vegna sem maðurinn þinn hef- ur ákveðið að klæmast við karla á netinu – það er auðveldara og skilvirkara. Það er líka þess vegna sem sumir karlar velja að fá útrás fyrir greddu með því að stunda kynlíf með öðrum körl- um – það er einfalt, menn koma sér beint að efninu, og oftast án eftirmála. Kynhneigðin kemur því ekki endilega við! Ég vona að þið getið átt áframhaldandi samtal um þess- ar pælingar. Kannski vill mað- urinn þinn deila með þér órum, og kannski býr eitthvað ennþá stærra undir eins og kynhneigð hans. Eina leiðin til að fá botn í málið er að fríka ekki út heldur halda samtalinu áfram með um- burðarlyndi og ást að leiðarljósi. Gangi þér vel, Ragga S. 587 6688 / fanntofell@fanntofell.is / fanntofell.is OPNUM 14. ÁGÚST Í NÝJU OG GLÆSILEGU HÚSNÆÐI AÐ GYLFAFLÖT 6 - 8 Ragnheiður Eiríksdóttir er hjúkrunarfræðingur og kynlífsráðgjafi. raggaeiriks.com raggaeiriks@gmail.com ER EIGINMAÐUR GUÐRÚNAR „GAY“?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.