Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2018, Síða 2
2 16. nóvember 2018FRÉTTIR
F
yrir tíu árum birti DV frétt
um samband Davíðs Odds-
sonar við nágrannaköttinn
Eldibrand. Kötturinn átti að
vera í megrun en Davíð var sífellt
að skemma fyrir með því að gauka
að honum góðgæti. Eigandinn,
Garðar Árni Garðarsson, sem var
átta ára þá, greindi DV frá því að
Eldibrandur hefði látist nú í sum-
ar. Sjálfur er Garðar gallharður
Sjálfstæðismaður og útilokar ekki
feril í stjórnmálum.
Skemmdi megrunina
„Davíð og Eldibrandur áttu mjög
skemmtilegt samband. Eldibrand-
ur var mjög sjálfstæður köttur og
leitaði mikið í Davíð. Davíð var
líka duglegur að gefa honum að
borða“ segir Garðar Árni í samtali
við DV.
Fyrir tíu árum birti DV frétt um
pattaralega skógarköttinn Eldi-
brand sem bjó í Skerjafirðinum.
Bar fréttin titilinn „Besti vinur
Davíðs.“ Garðar Árni og móðir
hans, Margrét Birna Garðarsdóttir,
voru eigendur þessa glæsilega
eðalkattar sem var innfluttur frá
Noregi. Fullt nafn kattarins var
Aliosha’s Eldibrand Fortransson
og var hann ættfaðir margra hrein-
ræktaðra skógarkatta.
Eldibrandur var vinsæll sýn-
ingarköttur, vel þekktur í brans-
anum og með mikla sögu. Kettir
hugsa vitaskuld meira um hið ljúfa
líf frekar en að halda sér flottum
fyrir sýningar. Til að halda Eldi-
brandi glæsilegum og grönnum
var hann settur í heilsuátak. En
þá kynntist hann Davíð Odds-
syni, hinum mikla kattavini.
Eldibrandur fór að venja komur
sínar heim til Davíðs sem færði
honum dýrindis gúmmelaði
og harðfisk. Var það ólíkt meira
freistandi en heilsufæðið sem
boðið var upp á heima fyrir. Einnig
mjög fitandi.
Hvernig gekk megrunin á þess-
um tíma?
„Tja, það gekk svona brösug-
lega. Hann var mjög duglegur að
fara í mat til fólks og Davíð er alltaf
með mat fyrir utan hjá sér. Oft
leynist eitthvað girnilegt þar,“ segir
Garðar.
Féll frá eftir erfið veikindi
Eldibrandur klagaði óspart í Davíð
og konu hans, Ástríði Thorarensen.
Var hann því farinn að fá harðfisk í
hvert mál og var tíður gestur
á heimili þeirra. „Það er
engin kreppa hjá Eldi-
brandi,“ sagði Margrét
Birna við DV á sínum
tíma en þá var banka-
hrunið skollið á með
miklum þunga. Sagði
hún Davíð eiga tvo dygga
stuðningsmenn á heim-
ilinu, Eldibrand
og hinn átta
ára Garðar.
„Þeir tveir
styðja
Davíð
fram í
rauðan dauðann. Það má ekki hall-
mæla Davíð í þeirra eyru.“
Eldibrandur var ekki eini
kötturinn sem naut góðs af
kattaást Davíðs og frúar. Hafa
fjölmargir kettir Skerjafjarð-
ar verið þar aufúsugestir í
langan tíma. Í miðju hruni
þegar Davíð sigldi ólgusjó
í Seðlabankanum gat hann
alltaf treyst á stuðning katt-
anna.
Garðar og Davíð eru enn
nágrannar. Garðar seg-
ir hins vegar að
Eldibrandur
sé ekki leng-
ur meðal okk-
ar en þeir voru
jafnaldrar.
„Því miður
féll Eldibrand-
ur frá núna í
sumar eftir erfið veikindi. Hann
náði þó 18 ára aldri.“
Um tíma var Eldibrandur í
fóstri hjá Davíð og Ástríði á með-
an viðhald fór fram á húsi Mar-
grétar. Reyndi hann þá alltaf að
sofa uppi í hjá þeim hjónum. Eftir
að þau tóku að sér flækingsgrey
mátti Eldibrandur ekki vera inni
við lengur.
Fótar sig í flokknum
Sjálfur fer Garðar Árni ekki leynt
með það að hann er gallharður
Sjálfstæðismaður. Tekur hann
virkan þátt í ungliðastarfi flokks-
ins.
„Jújú, ég er Sjálfstæðismaður.
Það getur vel verið að Davíð hafi
haft einhver áhrif á það. Ég leit að
minnsta kosti mikið upp til hans
þegar ég var lítill“ segir Garðar og
brosir.
Kemur stjórnmálaferill til
greina í framtíðinni?
„Það getur alveg vel verið. Mað-
ur heldur öllum möguleikum opn-
um. Ég byrja alla vega ferilinn með
stjórnarsæti í Heimdalli.“ n
Hallur Hallsson
Hallur starfaði áður
sem blaðamaður og er
nú reglulegur gestur
hjá Útvarpi Sögu. Hann
hefur farið mikinn
undanfarið og til
dæmis leitt fjöldafund
til stuðnings Tommy
Robinson fyrir utan
breska sendiráðið.
Hallur er guðsmað-
ur mikill og hefur
harðlega gagnrýnt
íslam, kommúnisma,
fjölmenningu og RÚV.
Allt ætti þetta að falla
hlustendum Útvarps
Sögu vel í geð.
Sveinbjörg Birna
Sveinbjörns-
dóttir
Almennt séð myndu
hlustendur Útvarps
Sögu frekar vilja
karlmann sem forseta.
En ef kona yrði fyrir
valinu væri Sveinbjörg
Birna álitlegur kostur.
Sveinbjörg sló í gegn
þegar hún baunaði
á moskubyggingu í
aðdraganda borgar-
stjórnarkosninganna
vorið 2014. Hún
fékk hins vegar ekki
framgang í vor í nýju
framboði. Í öðru sæti
var Edith Alvarsdóttir,
útvarpskona á Sögu.
forsetar Útvarps Sögu
Nýleg könnun á vef Útvarps
Sögu sýndi að mikill meirihluti
hlustenda vill ekki að Guðni Th.
Jóhannesson verði endurkjörinn
í embætti forseta Íslands. Þetta
er nokkuð á skjön við skoðun
almennings í landinu sem virðist
heillaður af einlægni og látleysi
forsetahjónanna. Um 78 prósent
hlustenda Útvarps Sögu vilja ann-
an frambjóðanda. Hér eru nokkrir
ákjósanlegir.
Guðmundur
Franklín Jónsson
Gúndi er með for-
setann í maganum. Í
mars árið 2016 boðaði
hann framboð sitt til
forseta en dró það til
baka mánuði síðar
eftir að Ólafur Ragnar
hætti við að hætta.
Guðmundur, sem áður
var formaður Hægri
grænna, rekur hótel
í Danmörku. Þaðan
hringir hann reglulega í
Arnþrúði og deilir visku
sinni um heimsfrétt-
irnar.
Davíð Oddsson
Varla þarf að rekja
feril og hæfni Davíðs
Oddssonar til að gegna
embætti forseta.
Hefur hann gegnt
flestum öðrum æðstu
embættum landsins
ef undan er skilinn
biskupsstóllinn. Davíð
fór eins og frægt er
orðið í framboð vorið
2016. Fékk hann hins
vegar rækilega á
baukinn og endaði í
fjórða sæti með aðeins
13,7 prósent atkvæða.
Allt frá hlustendum
Útvarps Sögu.
Sturla Jónsson
Sturla er óskafram-
bjóðandi hlustenda
Útvarps Sögu eins og
kom fram í vefkönnun
fyrir forsetakosn-
ingarnar árið 2016. Þá
hlaut hann 41 prósents
fylgi. Til saman-
burðar þá fékk Guðni
aðeins tæp 14 prósent.
Sturla hefur ekki jafn
öfgafullar skoðanir
og margir hlustenda
Útvarps Sögu. En
hann er alþýðlegur
maður, sannkallað salt
jarðarinnar, með hug-
myndaauðgi og sterka
réttlætiskennd.
Á þessum degi,
16. nóvember
1272 – Játvarður prins verður konungur
Englands í kjölfar dauða Hinriks III.
Prinsinn er þá fjarri heimaströndum, á
kafi í 9. krossferðinni, og enn eiga eftir
að líða tvö ár þar til hann snýr heim til
Englands og tekur við krúnunni.
Síðustu orðin
„Hví ekki það? Hún til-
heyrir, hvað sem öðru líður,
honum.“
– Charlie Chaplin (16. apríl
1889–25. desember 1977) er sagð-
ur hafa sagt þetta þegar prestur
veitti honum síðasta sakramentið
og sagði: Megi Guð vera sálu þinni
náðugur.
1849 – Níutíu prestar sem voru
byltingarsinnum andsnúnir í frönsku
byltingunni eru teknir af lífi. Þeim var
drekkt í borginni Nantes líkt og fjölda
annarra sem reyndust byltingaröflum
óþægur ljár í þúfu.
1855 – David Livingstone series fyrstur
Evrópubúa Viktoríufossana á mörkum
Sambíu og Simbabve.
1849 – Rússneskur dómstóll dæmir rit-
höfundinn Fjodor Dostojevskí til dauða
fyrir tengsl við róttækan félagsskap og
aðgerðir honum tengdar. Dómnum er
síðar breytt í þrælkunarvinnu.
1940 – Nasistar einangra Varsjár-
gettóið í Póllandi frá umheiminum.
1990 – Poppdúettinn Milli Vanilli er
sviptur Grammy-verðlaunum eftir að í
ljós kemur að dúettinn kom ekki nálægt
söng á plötunni Girl You Know It’s True.
Íhlaupasöngvarar sáu um allan söng.
Garðar Árni
Virkur í ung-
liðastarfi Sjálf-
stæðisflokksins.
Garðar og Eldibrandur DV 21. nóvember 2008.
Kötturinn sem Davíð
Oddsson dekraði fallinn frá
n Skemmdi megrunina n Litu báðir upp til Davíðs„Eldibrandur var
mjög sjálfstæður
köttur og leitaði mikið í
Davíð. Davíð var líka dug-
legur að gefa honum að
borða.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is