Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2018, Síða 22
22 FÓLK - VIÐTAL 16. nóvember 2018
meiri hefð fyrir því að liðið vinni,
það er krafa um að við vinnum alla
leiki sem við spilum. Það er það sem
leikmenn elska, þegar þú vinnur þá
gefur það meira, það er sætara þegar
pressan er meiri. Það skiptir ekki
máli hvort við séum að spila gegn
bestu eða slökustu liðunum, það er
krafa á sigur, alltaf.“
Mættu bara í landsleiki til að vera
með
Frá því Gylfi hóf vegferð sína með
landsliðinu hefur margt breyst. Liðið
hefur farið á tvö stórmót. Blaða-
manni leikur forvitni á að vita hvað
hafi breyst?
„Hugarfarið, fyrst og fremst,“
svarar Gylfi. „Það verða einhverjir
ósammála sem lesa þetta, en hugar-
farið var ekkert sérstakt. Það voru
allir mættir til að mæta, aðeins til
að vera með. Það er allt öðruvísi að
mæta núna, sérstaklega undir stjórn
Lagerbäck og Heimis. Þá mættu
menn í leiki til að vinna þá, það var
ekkert að trufla okkur. Menn gerðu
allt til þess að vinna næsta leik, við
ætluðum okkur á stórmót. Ég var
ungur og nýlega mættur inn í liðið
árið 2010, markmiðið hefur verið
síðustu ár að komast í fremstu röð,
það eru allt aðrir hlutir sem við höf-
um einblínt á en áður og markmið
okkar allra var og er að komast inn á
stórmót í hverri riðlakeppni.“
Tók svefntöflu en sofnaði ekki
Í sumar tók íslenska landsliðið þátt
í sínu fyrsta heimsmeistaramóti.
Gylfi var þar eins og svo oft áður í
lykilhlutverki. Í leik á móti Níger-
íu varð Gylfi fyrir áfalli. Íslenska
liðið var tveimur mörkum undir og
skammt til leiksloka þegar dómar-
inn dæmdi vítaspyrnu. Gylfi tók sér
stöðu á vítapunktinum, þjóðin hélt
niðri í sér andanum og eygði von að
komast aftur inn í leikinn, en Gylfi
skaut yfir markið. Það tók á, en Gylfi
hefur unnið úr því.
„Ég tók svefntöflu og sofnaði ekki,
þetta var ansi erfitt. Þegar maður
stígur fram og tekur víti, þá veit
maður að það eru tveir möguleik-
ar; maður skorar eða klikkar. Þetta
er þannig séð þér að kenna, það er
skrýtið að segja það núna, því það
var ekkert jákvætt við að klúðra
þessu. Í dag finnst mér samt að ég
hafi lært mikið af þessu, ég sé and-
lega sterkari. Það var ekki auðvelt að
horfast í augu við þetta svona rétt á
eftir, ég vissi að flestir í heiminum
sem fylgjast með fótbolta, væru að
horfa. Augnablikið að koma okkur
aftur inn í leikinn, við hefðum átt frá-
bæran séns á að setja pressu á það í
lokin.“
Meistarakokkur í eldhúsinu
Óhætt er að fullyrða að Gylfi hafi
gert allt sem í hans valdi stóð til að
ná á toppinn. Hann borðar eins
hollan mat og kostur er. Þá hjálpar
að Alexandra Helga, unnusta Gylfa,
hefur mikla ástríðu fyrir elda-
mennsku.
„Ég hef alltaf verið meðvitaður
um hvað ég er að borða. Eftir leiki
borða ég bara það sem ég vil, maður
er að fylla á tankinn eftir leiki. Ég
fylgist með því í gegnum vikuna,
þetta er orðinn vani, sérstaklega
þegar maður er með alvöru kokk í
eldhúsinu. Hún hefur meira en gam-
an af þessu, hún er að taka diplómu
í náttúrulegri eldamennsku. Hún er
það góð að hún gæti leikandi starf-
að sem kokkur á vinsælum veitinga-
stað,“ segir Gylfi og bætir við: „Ég er
aldrei að fara í vegan, ég borða mikið
af kjúklingi og fiski en ég hef minkað
að borða rautt kjöt. Ég get alveg
fengið mér steik og geri það ef farið
er á þannig stað. Ég reyni að borða
eitthvað sem gefur mér orku, ekki
eitthvað sem fyllir mann „átvisku-
biti“ eftir á.“
Drekkur ekki
Gylfi hefur aldrei neytt áfengis. Það
hefur hvarflað að honum að fá sér
glas af rauðvíni en það hefur ekki
gerst enn.
„Ég hef alveg hugsað í það síðustu
ár hvort ég ætti að fá sér glas af rauð-
víni, prófa það með mat,“ segir Gylfi.
„Ég held að það sé hundrað pró-
sent öruggt að þetta hefur hjálpað
mér, að neyta ekki áfengis. Meiðslin
eru færri og þegar þú drekkur þá
leitar þú meira út. Þegar ég var ung-
ur, þá hjálpaði það mér að leita ekki
í áfengi. Ég hef, 7, 9, 13, verið hepp-
inn með vöðvameiðsli í gegnum tíð-
ina og þetta er held ég ein af ástæð-
um þess. Ég er ekki sá fljótasti og
slepp við þannig meiðsli og að hafa
ekki drukkið áfengi hefur örugglega
hjálpað. Það er allt í lagi að vera í
kringum fólk sem er drukkið en það
er ekki gaman þegar fólk er orðið of
fullt, ég er yfirleitt sá eini sem er edrú
en ég leita ekki mikið niður í bæ.“
Reynir að koma peningum sínum
vel fyrir
Ekkert leyndarmál er að Gylfi er vel
launaður. Fjárfestingar hans hafa
oft ratað í fréttir. Ferillinn er stuttur
og því skiptir máli að fara vel með
peninga. Hann segir að umræða um
hvað hann geri við peningana nái
ekki til hans. „Þetta slær mig ekk-
ert þannig, þetta hefur verið í gangi
lengi, frá því að ég fór til Hoffen-
heim,“ segir Gylfi. „Það vita allir að
það er vel borgað að spila fótbolta.
Þetta er eitthvað sem fylgir því. Ég
held að íslenskir fjölmiðlar séu mjög
sanngjarnir. Sérstaklega við okkur
fótboltamenn, það er jákvæðni í
okkar garð, ég get ekki sett mikið út á
umfjöllun um mína hagi. Hvort það
komi fólki við eða ekki, ég hef
Útifuglafóður
Mikið úrval, gott verð
Smáratorg · Bíldshöfði · Grandi · Hafnarörður
Fimm þjálfarar í
atvinnumennsku:
Brendan Rodgers:
Frábær, mjög góður í mannlegum sam-
skiptum. Hann vildi alltaf fullkomnun á
hverri einustu æfingu, harður þar en strax
eftir æfingu mjög hress, alltaf klár í að
spjalla við alla. Geggjaðar æfingar og gam-
an að spila fyrir hann, mjög góður þjálfari.
Andre-Villas-Boas:
Mjög fínn karl, allt öðruvísi en Rodgers
sem dæmi. Hann var mjög ungur þegar
hann var með Tottenham, þegar horft er
til aldurs þjálfara. Var mjög góður þjálfari.
Paul Clement:
Geggjaður, einn af betri þjálfurum sem ég
hef haft. Það er ástæða fyrir því að Carlo
Ancelotti hefur tekið hann með sér út um
allt, geggjaður þjálfari og geggjuð persóna,
ég tala enn þá við hann í dag. Það er ekkert
slæmt um hann að segja, bara jákvætt.
Sam Allardyce:
Það er mjög skemmtilegt að spila fyrir
hann, skemmtilegur karl en stundum
sérstakur. Hann veit hvað þarf að gera
til að sækja nógu mikið af stigum til að
halda sér í deildinni, margir segja að
hann spili ekki skemmtilegan fótbolta.
Það eru leikmennirnir sem spila inni á
vellinum, varnarlega þá gerir hann lið
betri. Með mikla reynslu.
Mauricio Pochettino:
Það var gríðarlega erfið ákvörðun að
vera kominn til liðs eins og Tottenham
og með nýjan stjóra í Pochettino, sem
er frábær stjóri. Það var ekki auðveld
ákvörðun að fara aftur til Swansea. Ég
náði alltaf vel til Pochettino og talaða
mikið við hann þegar við spilum við
Spurs, hann vildi ekki losna við mig. Ég
var á þeim aldri að mig langaði spila
fótbolta í hverri viku og Swansea bauð
mér það.
Fimm samherjar úr
atvinnumennsku:
Gareth Bale:
Hann var í ruglinu, hann er með ótrúlegan
vinstri fót. Fljótur og sterkur, allt sem
toppleikmaður þarf. Hann er búinn að
ná gríðarlega langt, hann hefur höndlað
pressuna sem fylgir því að spila með Real
Madrid, hún er mikil.
Roberto Firmino:
Hann var mjög ungur, hann hefur breyst
eitthvað í dag. Hann talaði ekki mikla
ensku, mjög flott að sjá hversu langt hann
hefur náð.
Wayne Rooney:
Geggjað að fá að spila með honum, leik-
maður sem maður horfði á þegar maður var
yngri. Var í United-liði sem maður fylgdist
með og hélt með. Heiður að spila með
honum, geggjað að fá að spila með honum
og kynnast því hvernig hann er innan sem
utan vallar.
Emmanuel Adebayor:
Svakalegur leikmaður, þegar hann er
upp á sitt besta, þá er ekki hægt að
stöðva hann. Stór, sterkur og fljótur.
Getur skorað mörk af öllum gerðum;
skot, skallar og hvað sem það er. Hefur
átt sturlaðan feril.
Harry Kane:
Svakaleg breyting á honum frá því að
hann var að koma upp hjá Totten-
ham. Í dag er hann bara félagið,
hann stjórnar því liði. Við erum í fínu
sambandi í dag, toppgaur, við spil-
uðum oft golf saman og gerum enn.
Hann er með Tottenham á herðum
sér og enska landsliðið í raun líka, ef
þú horfir á hann þá myndir þú ekki
halda að hann væri einn sá besti í
heimi. Klárar vel og heldur boltanum
vel, tímasetningar á hlaupum er hann
með á hreinu. Alltaf á réttum stað.