Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Síða 4
2 6. júlí 2018FRÉTTIR
Á þessum degi,
6. júlí
1189 - Var Ríkharður ljónshjarta krýnd-
ur konungur Englands.
1946 Tóku Íslendingar yfir Reykjavíkur-
flugvöll af Bretum við hátíðlega athöfn.
1954 Urðu flóð og skriðuföll á Norður-
landi eftir stórrigningar. Í Norðurárdal
urðu jarðirnar Ytrai-Kot og Fremra-Kot
illa úti.
1958 Sundkappinn Eyjólfur Jónsson
synti frá Reykjavík til Akranes. Var
Eyjólfur 13 tíma að synda þessa 22
kílómetra leið.
Fædd þennan dag:
1907 – Frida Kahlo, listakona
1946 – George W. Bush, 43. forseti
Bandaríkjanna.
1946 – Sylvester Stallone, leikari.
1951 – Magnús Kjartansson, tónlist-
armaður.
1955 – Sigurður Sigurjónsson, leikari.
sem gætu tekið við af Heimi Hallgríms
Heimir Hallgrímsson landsliðs-
þjálfari liggur nú undir feldi og
veltir fyrir sér framtíð sinni. Heimir
er rétti maðurinn til að halda utan
um strákana okkar og komast í
lokakeppni næstu tveggja stór-
móta. Ísland spilaði vel í Rússlandi
ef seinni hálfleikurinn gegn Nígeríu
er undanskilinn. Heimir gerði
ein mistök og þau voru að láta
fyrirsætuna í liðinu spila á kostnað
Emils Hallfreðssonar sem var
okkar besti maður. Við viljum að
Heimir skrifi undir strax í dag, en ef
ekki, þá eru hér fimm þjálfarar sem
gætu tekið við af tannlækninum í
Eyjum.
Guðjón Þórðarson
Guðjón Þórðarson
með Loga Ólafsson
sem aðstoðarmann.
Guðjón spilaði 5-4-1 og
náði frábærum árangri
og hélt svo í víking
til Englands þar sem
hann stýrði Stoke upp
um deild. Skapið hefur
stundum hlaupið með
Guðjón í gönur og því
er Logi tilvalinn að-
stoðarmaður sem mun
létta lund
leikmanna
með bestu
fimmaura-
brönd-
urum í
heimi.
Erik Hamrén
Erik Hamrén er á lausu
og Svíar hafa reynst
okkur vel. Hann þjálf-
aði sænska landsliðið
á árunum 2009 til
2016. Vinnings-
hlutfall hans var 54
prósent. Hann stýrði
Svíum í 83 leikjum og
sigraði liðið í 45
þeirra.
Sófaþjálfarinn
Já, þessi sem er tíu
kílóum of þungur.
Hann veit uppá hár
hvernig við hefðum
getað unnið Nígeríu.
Hann hefur aldrei
keppt á fótboltamóti
og öskrar á dómarann
að fara til fjandans á
öllum Pollamótum.
Hann er samt sá
reyndasti þegar kemur
að því hvernig við
áttum að vinna HM.
Slaven Bilic
Slaven Bilic er fyrrver-
andi þjálfari Króatíu.
Króatar eru um margt
líkir Íslendingum. Bar-
áttuglaðir leikmenn
sem eru harðir í horn
að taka og elska að
spila fyrir þjóð sína.
Bilic
stýrði
Króa-
tíu í
sex ár
og var
vinn-
ings-
hlut-
fallið 65
prósent.
Claudio Ranieri
Claudio Ranieri er
atvinnulaus og hann
kann að gera það
ómögulega. Hann
gerði Leicester að Eng-
landsmeisturum og er
uppgangi landsliðsins
oft líkt við ævintýri
Ranieri og félaga. Fá
hann inn sem fyrst ef
Heimir
fer!
Ráðherrann
og forstjórinn
Ljósmæðradeilan er eitt þeirra
mála sem hafa verið í brennid-
epli undanfarna mánuði og
um síðustu helgi hættu á ann-
an tug ljósmæðra störfum og
fleiri uppsagn-
ir taka gildi
í október
næstkom-
andi. Bjarni
Benedikts-
son fjár-
málaráð-
herra og Páll
Matthíasson
forstjóri LSH eru meðal þeirra
sem sætt hafa mikilli gagnrýni
vegna málsins.
Það vita það kannski ekki
allir að Bjarni og Páll eru þre-
menningar. Afi Bjarna, Sveinn
Benediktsson, og amma Páls,
Ólöf Benediktsdóttir, voru
systkini. Frændurnir eru því
báðir af Engeyjarættinni, einni
valdamestu ætt landsins um
árabil sem lýsir sér kannski
ágætlega í því að frændurnir
eru í áhrifamiklum valdastöð-
um. Ætti þeim frændum að
vera hæg heimatökin að leysa
ljósmæðradeiluna í næsta af-
mæli eða fermingarveislu.
Lítt þekkt
ættartengsl:
U
ndanfarnar tvær vikur hef-
ur heimsbyggðin öll fylgst
með örlögum drengjanna
tólf sem festust í víðfemu
hellakerfi í Taílandi ásamt þjálf-
ara sínum. Hellirinn, Tham Luang
Nang Non, er afar vinsæll ferða-
mannastaður í Chiang Rai-héraði
Taílands en hann nær marga kíló-
metra niður í jörðu. Þangað héldu
drengirnir, sem eru á aldrinum 11-
16 ára, ásamt þjálfara sínum sem
er 25 ára gamall, eftir fótboltaæf-
ingu. Þeir lokuðust inn í hellinum
og ekkert spurðist til þeirra fyrr en
níu dögum síðar. Þá fundu bresk-
ir hermenn drengina veikburða
en heila húfi. Þegar þessi orð eru
skrifuð eru umfangsmiklar björg-
unaraðgerðir í gangi en enginn
veit enn hvort drengirnir þurfi að
dvelja í hellinum í marga mánuði
eða geti jafnvel gengið eða kaf-
að út. Hermenn og læknar veita
hópnum félagsskap á meðan og
búið er að birgja hellinn upp af
vistum.
Urðu afar hissa þegar spá-
dómurinn gekk eftir
Erlendur Þór Gunnarsson er þessa
dagana staddur í fríi í Tælandi
ásamt eiginkonu sinni og börn-
um. Málið vekur eðlilega mikla
athygli ytra og fjölskyldan fer ekki
varhluta af því. „Við höfum fylgst
vel með þessu máli enda ekki ann-
að hægt á þessum slóðum. Þetta
er allsstaðar í fjölmiðlum og það
er ekki rætt um neitt annað í þjóð-
félaginu,“ segir Erlendur.
Þá hafi áhugi fjölskyldunn-
ar á málinu orðið enn meiri eft-
ir að búddatrúaður leiðsögu-
maður tjáði þeim nákvæmlega
hvenær drengirnir myndu finnast
og hver væri ástæðan fyrir þessum
þrekraunum þeirra. „Í ljósi þess
sem síðar varð þá var þetta eigin-
lega alveg ótrúleg reynsla. Við vor-
um stödd í bátsferð og þessi leið-
sögumaður fer að rabba við okkur.
Hann fór ítarlega yfir það með mér
hvernig höfuðmunkur einn, sem
búsettur er í Kambódíu, hafi séð
þetta allt fyrir í draumi,“ segir Er-
lendur Þór. Hann segist hafa haft
gaman að frásögn mannsins en
var þó fullur efasemda enda hafði
á þessum tímapunkti ekkert spurst
til drengjanna í heila viku.
„Hann virtist ekkert vera stress-
aður yfir þessu máli. Hann sagði að
munkurinn hefði séð að drengirn-
ir væru á lífi og að þeir myndu
finnast næsta mánudag. Við fylgd-
umst að sjálfsögðu vel með frétt-
um þann daginn og misstum eig-
inlega andlitið þegar drengirnir
fundust heilir á húfi,“ segir Erlend-
ur Þór.
Andarnir áttu að hafa
lokað hellinum
Hann fór því að rifja upp
meira úr samtali sínu
við leiðsögumanninn.
„Að sögn munksins
var hellirinn heilagur.
Hann sagðist hafa séð að
drengirnir hefðu vanhelg-
að hellinn og andana
sem þar dvelja með
því að taka upp
helga muni
og setja skó
og annað
lauslegt á
helga staði.
Andarnir
hefðu brugð-
ist við því
með því að loka hellinum,“ segir
Erlendur Þór.
Með þessa vitneskju að vopni
hófu búddamunkar þegar að friða
andana í hellinum með bænum og
tilbeiðslu. „Það hafi geng-
ið eftir og því hafi borist
þau skilaboð frá öndun-
um að meðlimir hóps-
ins myndu finnast á
lífi þennan mánudag.
Það var afar skrýtin
en áhugaverð reynsla
að sjá og heyra full-
orðinn mann tala
svona um einhverja yf-
irnáttúrulega hluti
eins og ekkert
væri eðlilegra.
Hann var al-
veg 100% viss
um að þetta
myndi ganga
eftir. Við vor-
um auðvit-
að mjög ef-
ins en maður vissi eiginlega ekki
í hvorn fótinn maður átti að stíga
þegar þetta gekk eftir,“ segir Er-
lendur Þór.
Hann segir að það hafi verið
afar áberandi, á þeim slóðum sem
fjölskyldan ferðast um, hvað væri
að gerast þennan mánudag. „Það
var mikil gleði og léttir hjá öll-
um sem við hittum. Við rákumst
á einn eldri mann sem var auðvit-
að afar glaður yfir því að drengirn-
ir væru fundnir á lífi en hann var
ekki síður snortinn af því finna
fyrir hlýju heimsbyggðarinnar og
hversu margir væru tilbúnir að
rétta hjálparhönd. Hann nefndi
sérstaklega Bretland og Svíþjóð í
því samhengi,“ segir Erlendur.
Hann segist hafa sagt gamla
manninum frá hugmynd forseta
Íslands um að drengirnir, ef þeim
yrði bjargað í tæka tíð, myndu
leiða liðin í úrslitaleik HM inn á
völlinn. „Það gladdi þann gamla
afar mikið,“ segir Erlendur Þór. n
„Hann sagðist hafa séð að drengirnir hefðu van-
helgað hellinn og andana sem þar dvelja með
því að taka upp helga muni og setja skó og annað
lauslegt á helga staði. Andarnir hefðu brugðist við því
með því að loka hellinum.
Erlendur Þór
Gunnarsson.
Kambódískur munkur sá
björgun drengjanna fyrir
n „Vissi eiginlega ekki í hvorn fótinn maður átti að stíga þegar þetta gekk eftir“
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is