Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Page 8
6 6. júlí 2018FRÉTTIR ERTU AÐ FARA Í FLUG? ÞJÓNUSTUM ÞIG OG ÞÍNA Í MAT OG DRYKK Hafnargata 19a Keflavík / S. 421 4601 K arlmaður á fimmtugs- aldri hefur verið kærður til lögreglu fyrir að ráðast á ungmenni á Blönduósi. Samkvæmt heimildum DV er maðurinn grunaður um að hafa í tvígang sama dag ráðist á pilt- inn. Báðir vinna þeir fyrir Blöndu- ósbæ. Hinn eldri er starfsmað- ur áhaldaleigu Blönduósbæjar en pilturinn sér um, ásamt öðrum vöskum ungmennum, að halda bænum hreinum. Meint árás var tilkynnt til lögreglu á þriðjudag. Samkvæmt heimildum DV átti pilturinn erindi í áhaldaleigu bæjarins. Kveðst hann þar hafa orðið fyrir árás og að maður- inn hafi sparkað í hann. Þá segir heimildarmaður DV að síðar um daginn hafi maðurinn setið fyrir piltinum eftir vinnu og ráðist aft- ur á hann. Kærði pilturinn þá árás. Vegna vinnu sinnar er óhjákvæmi- legt fyrir piltinn að fara í áhalda- húsið þegar hann vantar verkfæri. Voru par Rekja má báðar þessar meintu árásir til þess að maðurinn telur piltinn hafa brotið á dóttur hans. Pilturinn og dóttir mannsins voru par fyrir rúmu ári og telur hún að fyrrverandi kærastinn hafa brot- ið á sér. Því neitar pilturinn. Þá hefur pilturinn ekki verið kærð- ur fyrir neitt misjafnt. Samkvæmt heimildum DV hafa foreldrar hans rætt við manninn og tjáð hon- um að hann geti ekki farið þessa leið. Rétta leiðin sé að leggja fram kæru, telji hann að sonur þeirra hafi brotið af sér. Hann geti ekki beitt piltinn ofbeldi eða setið fyr- ir honum. Sagði einn heimildar- manna DV að maðurinn hefði ver- ið að bíða eftir að hann næði 18 ára aldri svo ekki væri mögulegt að tilkynna hann til lögreglu fyrir að berja barn. Pilturinn kærði manninn eins og áður segir á þriðjudag. Sam- kvæmt vottorði mátti sjá áverka á hálsi, bringu og baki. Pilturinn mun samkvæmt heimildum DV vera hræddur við manninn og ótt- ast að fara um bæinn. Hann hélt sig heima fyrst eftir meinta árás en mætti til vinnu í gær. Pilturinn vildi ekki tjá sig þegar eftir því var leitað en staðfesti að hann hefði lagt fram kæru. Hinn grunaði í málinu hafði þetta að segja þegar hann var spurður hvort hann vildi koma sinni hlið á framfæri: „Ætlið þið að fara að gera frétt um þetta?“ Þegar honum var tjáð að það væri fréttnæmt að maður á fimmtugs- aldri væri grunaður um að hafa í tvígang gengið í skrokk á ung- lingi svaraði hann: „Ég lamdi ekki neinn“ og neitaði að tjá sig frekar um málið. Áminntur en ekki í leyfi Samkvæmt heimildum DV var maðurinn áminntur en ekki send- ur í leyfi. DV ræddi við yfirmann hins grunaða en sá heitir Ágúst Þór Bragason, kallaður Gústi græni. Í samtali við DV sagði Gústi græni: „Við erum að sinna málinu þannig að við séum að uppfylla allar kröfur og skyldur sem er hjá vinnuveitanda í svona máli. Þetta er í eðlilegri málsmeðferð að því leytinu til.“ Bætti Gústi græni við að nauðsynlegt væri að hlusta á sjón- armið beggja og skoða hvað sneri að þeim sem atvinnurekanda „Það þarf að hlusta og ræða og fá fram sjónarmið beggja að- ila áður en við tökum einhverjar ákvarðanir í svona máli. Það er það sem ég kalla eðlilega málsmeð- ferð.“ Aðspurður hvort hinn grunaði hefði verið sendur í leyfi eða væri enn við störf, svaraði Gústi græni því til að maðurinn hefði ekki ver- ið sendur í leyfi á meðan málið er til skoðunar. En finnst þér það ekki alvar- legt ef starfsmaður hjá þér hefur barið annan starfsmann, 18 ára gamlan? „Ofbeldi er aldrei ásættanlegt á neinn hátt, ekki undir neinum kringumstæðum. Það er hin al- menna regla. Eins og ég segi, ég get ekki tjáð mig um þetta atvik eða annað fyrr en ég hef skoðað málið og skoðað það sem að okk- ur snýr.“ Reyna að átta sig á deilunni Þá ræddi blaðamaður einnig við Valgarð Hilmarsson sveitarstjóra. „Mér skilst að það hafi verið kært til lögreglunnar. Við erum að reyna að átta okkur á málinu, það er ekki komið lengra en það,“ sagði Valgarður. Er þér kunnugt um af hverju hann réðist á hann, þessi maður? „Ég hef ekki yfirsýn yfir það. Þetta eru einhverjar persónu- legar deilur bara,“ bætti Valgarð- ur við. Aðspurður hvort maðurinn yrði sendur í leyfi á meðan rann- sókn stendur yfir svaraði hann að sú ákvörðun hefði ekki enn verið tekin. n „Ofbeldi er aldrei ásættanlegt á neinn hátt... GRUNAÐUR UM ÁRÁS Á UNGMENNI Á BLÖNDUÓSI n Segir piltinn hafa brotið á dóttur hans n Ekki sendur í leyfi n „Ég lamdi ekki neinn“ Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@dv.is Valgarður Hilmarsson sveitarstjóri segir málið til skoðunar. Ágúst Þór Bragason er yfirmaður mannsins sem grunaður er um árás á ungmenni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.