Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Side 16
14 6. júlí 2018FRÉTTIR Undanfarið hefur blaðamaður DV reynt að falast eftir viðtali við Svandísi Svav- arsdóttir, heilbrigðisráðherra. Mörg spjót standa á ráðuneyti hennar vegna ástands- ins í geðheilbrigðismálum þjóðarinnar, kjarabaráttu ljósmæðra og sumarlokana á heilbrigðisstofnunum landsins svo eitt- hvað sé nefnt. Vel var tekið í beiðni blaða- manns til að byrja með og fljótlega barst tímasetning fundar við ráðherra, mánu- daginn 2. júlí og væru 30 mínútur í boði. Óskaði ráðuneytið enn fremur eftir upp- lýsingum um hverjar spurningar blaða- mannsins yrðu. Var því svarað föstu- daginn 29. júní á þá leið að blaðamaður myndi spyrja út í biðlista, stöðu geðheil- brigðiskerfisins, sumarlokanir og skort á hjúkrunarfræðingum. Tveimur tímum síðar barst tölvupóstur þess efnis að ráðherra væri ekki lengur laus til við- tals. Engar skýringar voru gefnar en þegar geng- ið var eftir þeim barst nýr tími fyrir 30 mínútna viðtal. Það á að fara fram eftir einn og hálfan mánuð, nánar tiltekið þann 21. ágúst kl. 11. Þangað mun blaðamaður mæta og freista þess að taka viðtal við hæstvirt- an ráðherra. Þjóðin á það skilið að æðstu ráðamenn þjóðarinnar svari aðkallandi spurningum. Þögnin er versti óvinur lýð- ræðisins. Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson bjartmar@dv.is HÉR ÁTTI A Ð VERA VI ÐTAL VIÐ SVANDÍSI SVAVARSD ÓTTUR HEILBRIGÐ ISRÁÐHER RA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.