Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Page 18
16 6. júlí 2018FRÉTTIR - EYJAN E inu sinni var maður í New York sem fór í neðanjarðarlest þar í borg seint um kvöld. Hann var gríðarlega vel klæddur, með gullúr og á gullskóm og hann var mikið við skál. Mjög mikið. Nema hvað, þessi flott klæddi maður sofn- aði í lestinni. Og svo fast svaf hann að hann varð einskis var þegar hann var rændur. Hann var eins og opinn konfektkassi fyrir þjófa. Ekki var nóg með að tekið væri af honum Ró- lexúrið gyllta og gullskórnir heldur líka fötin öll. Og þegar hann loks- ins vaknaði var hann á nærbuxun- um einum. Fáráðlingar fá enga meðaumkun Nú voru góð ráð dýr. Einu þóttist hann þó geta reiknað með; nefni- lega að hann ætti samúð allra vegna þess hve illa hann hafði ver- ið leikinn. Og þarna kom hann á nærbuxunum inn á kontór braut- arvarðanna. Þeir horfðu á hann í forundran en ekki var að sjá vott af meðaumkun í viðmóti þeirra. Allt annað skein úr andlitum þeirra: Hvílíkur fáráðlingur, fullur á nær- buxunum einum; hafði lagt sig til svefns í neðanjarðarlest í sjálfri miðborg glæpanna og það um miðja nótt. Hlutskipti Íslendinga? Svona verður litið á Íslendinga þegar við verðum búin að tapa öllu frá okkur, landinu og orku- lindunum. Óneitanlega bregður manni í brún þegar maður verður þess áskynja að á bak við umdeild virkjunaráform á Vestfjörðum eru erlendir fjárfestar sem vilja maka krókinn. Á meðal Íslendinga er gamalþekktur áhugi á slíku en ein- hvern veginn verður þetta skýrara í hugum okkar þegar eignarhaldið er komið út fyrir landsteinana og framtíð íslenskra náttúruperla þannig orðið að viðfangsefni í kauphöllum heimsins. Eignarhald á landi til útlanda Sama er nú að gerast með sjálft landið, eignarhald á því. Breskur auðkýfingur safnar jörðum á norð-austurlandi einsog börn- in skrautkúlum í perluband. Vopnafjörðurinn er að hverfa ofan í vasa hans en þar voru Grímsstaðir fyrir – stórjörðin sem ríkisstjórn Íslands reyndist of smá til að festa kaup á þrátt fyrir áskoranir úr öllum kimum þjóðfélagsins. Í Fljótum er hið sama að ger- ast. Þar eru auðmenn að ná til sín eignarhaldi á heilli sveit. Hvað næst, hvenær kemur að Mývatns- sveit og Þingvallasveit? Það er auð- velt að kaupa Ísland og gera okk- ur öll að leiguliðum í eigin landi. Það þarf ekki annað en svoldinn skammt af ófyrirleitni kaupand- ans og græðgi seljandans og þá er björninn unninn. Lagabreytingu í haust! Hve lengi ætla stjórnvöld að sofa á sinni vakt. Á þingi eru tilbúin þing- mál frá fyrri árum til að snúa vörn í sókn. Nú þarf að hefjast handa og það strax. Fyrstu þingmál í haust eiga að snúast um þetta og fyrir áramót þurfa varnarmúrarnir að vera komnir upp. Eða stendur til að bíða eft- ir því að vakna á nærbuxunum? Stjórnvöld hafa enga afsökun lengur fyrir sofandahætti og að- gerðaleysi. Ekki hlutskipti Íslands Þegar orkan og landið hefur ver- ið tekið af okkur, verður torsótt að snúa til baka. Enginn mun þá hafa samúð með okkur, fremur en sof- andi fyllibyttunni í neðanjarðar- lestinni. Varla viljum við að þetta verði hlutskipti Íslands. n Beri maðurinn í neðanjarðarlestinni„Óneitanlega bregður manni í brún þegar maður verður þess áskynja að á bak við umdeild virkjunaráform á Vestfjörðum eru erlendir fjárfestar sem vilja maka krókinn. Ögmundur Jónasson skrifar Aðsent eldbakaðar eðal pizzur sími 577 3333 www.castello.is Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði Boltinn í beinni á castello N úverandi bæjarfulltrúi H-Listans í Sandgerði/ Garði og formaður Verka- lýðs- og sjómannafé- lags Sandgerðis, Magnús Sig- fús Magnússon, hefur sagt sig frá öllum trúnaðarstörfum innan Starfsgreinasambandsins og Al- þýðusambandi Íslands. DV hef- ur undanfarið fjallað um málefni Magnúsar þar sem hann var að leigja út ólöglegt íbúðarhúsnæði í heimabæ sínum. Í kjölfar frétta DV lokuðu Brunavarnir Suðurnesja húsnæðinu. Samkvæmt heimild- um DV var ástand húsnæðisins slæmt og kröfðust Brunavarnir Suðurnesja tafarlausrar lokun- ar húsnæðisins. Þar bjó meðal annars fjölskyldu með börn. Þá leigði verkalýðsforinginn út hús- næði til einstaklings sem greiddi fyrir leiguna með skiptivinnu. Á dögunum sendi formaður Eflingar, Sólveig Anna Jónsdótt- ir, bréf til formanns Starfsgreina- sambandsins, Björns Snæbjörns- sonar, vegna málsins. Samkvæmt heimildum DV spurði Sólveig Anna þeirrar ágengu spurningar hvort Starfsgreinasambandið teldi Magnúsi stætt á að gegna ábyrgðarstörfum innan sam- bandsins. Einnig kom fram í bréf- inu að háttsemi Magnúsar sam- ræmist í engu stöðu formanns í verkalýðsfélagi og að hún sé Starfsgreinasambandinu, sem er landssamband almennra verka- lýðsfélaga, til mikillar vansæmdar. Starfsgreinasabandið svar- aði Sólveigu og hefur tilkynnt henni að Magnús hafi sagt sig úr laganefnd sambandsins ásamt því að segja sig úr Vinnumark- aðasnefnd Alþýðusambands Ís- lands. Ekki náðist í Magnús Sigfús Magnússon vegna vinnslu fréttar- innar. n Magnús segir upp trúnaðarstörfum Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson bjartmar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.