Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Qupperneq 24
22 UMRÆÐA
Sandkorn
6. júlí 2018
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson
Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Þ
ið hafið öll séð Gremlins,
er það ekki? Þið munið,
myndin með Gizmo,
sætasta bangsakrútti heims,
sem purraði, dansaði og var svo
æðislegur að mann langaði til að
borða hann. Svona eru allir stjórn-
málamenn fyrir kosningar. Bros-
andi, einlægir, indælir og algjör
krútt. Alltaf til taks og tilbúnir að
gefa af sér. Þeir elska okkur og við
elskum þá.
En síðan koma kosningar og þá
er eins og Gizmo fái á sig vatns-
gusu. Og þið munið hvað gerist
þá? Jú, drýslarnir mæta á svæð-
ið, grænleitir, slímugir, illa tennt-
ir og illa innrættir. Drýslarnir eru
stjórnmálamenn flesta aðra daga.
Þeim er slétt sama um okk-
ur og það sem þeir gera kemur
okkur ekki við. Fjölmiðlar hætta
að vera verkfæri fyrir þá og verða
þess í stað eins og pirrandi mý sem
þeir reyna að slá í burtu eða setja
á sig fælandi krem til að losna við.
Þegar óþægileg mál koma upp og
skýið af mýflugum orðið of þykkt
þá fara þeir inn í hús og loka á eftir
sér. Þeir koma ekki aftur út fyrr en
flugurnar eru farnar og vonast eft-
ir því að málið sé gleymt og grafið.
Það er starf okkar
mýflugnanna að fá skýr-
ingar og upplýsingar frá
þessum drýslum en
það er lýjandi verk.
Ritarinn bendir á
aðstoðarmaninn og
aðstoðarmaðurinn
bendir á skrifstofu-
stjórann og skrif-
stofustjórinn bendir
á mannauðsstjór-
ann. Að lok-
um fær maður
sam-
band við upplýsingafulltrúann,
sem er eitt mesta rangnefni á
stöðugildi sem fyrirfinnst. Stjórn-
málamaðurinn eða embættismað-
urinn sem flugan litla er að reyna
að ná í er einhverra hluta vegna
alltaf á fundi, eða á leiðinni á fund,
eða í fríi eða bara „ekki í húsinu“.
Nýlegt dæmi er flótti Svandís-
ar Svavarsdóttur und-
an umfjöllun DV um
geðheilbrigðismál
sem og önnur að-
kallandi mál
sem heyra und-
ir hennar ráðu-
neyti. Í tveimur
síðustu blöð-
um höfum
við sagt frá
ungmenn-
um með
geðræn
vanda-
mál
sem
kerfið hefur brugðist með skelfi-
legum afleiðingum. Eftir að hafa
loksins fengið viðtal við ráðherr-
ann var beðið um spurningar til að
Svandís gæti undirbúið sig undir
viðtalið. Þegar í ljós kom að ræða
ætti óþægileg mál eins og sumar-
lokanir geðdeilda, biðlista, skort
á hjúkrunarfræðingum og fleira
var viðtalinu skyndilega frestað …
fram á haust.
Þetta er dæmi um mjög óþægi-
leg mál fyrir ráðherrann. En það er
ekki boðlegt í lýðræðissamfélagi
að stjórnmálamenn, sem starfa í
okkar umboði og fyrir okkur, geti
falið sig fyrir fjölmiðlum sem hafa
þá einu skyldu að upplýsa fólk um
málefni líðandi stundar.
Nýlega skrifaði Brynjar Ní-
elsson stafkrók um að fjölmiðl-
ar væru „veikasti hlekkurinn í ís-
lensku samfélagi“. Að þeir væru
í „ruslflokki“ og hlutdrægir.
Reynslan er hins vegar sú að ef
stjórnmálamaður flýr umræðuna,
flýr fjölmiðla og neitar að gefa
upplýsingar þá hefur hann eitt-
hvað að fela. Eitthvað sem hann
vill ekki að almenningur viti eða
sem mjög erfitt er að svara fyrir.
Við megum ekki leyfa stjórn-
málamönnum að komast upp
með þetta lengur. Hífum íslensk
stjórnmál upp úr ruslflokki
þöggunar og yfirhylmingar. n
Leiðari
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
„Það er starf okkar
mýflugnanna
að fá skýringar og
upplýsingar frá þessum
drýslum…
Hífum íslensk stjórnmál upp úr
ruslflokki þöggunar og yfirhylmingar
Mjálmar Kolbeinn?
Talað er um að Rósa Björk og
Andrés Ingi, „villikettir VG“,
séu að fá liðsauka úr óvæntri
átt. Engan annan en Kolbein
Óttarsson Proppé. Kolbeini hef-
ur verið teflt fram sem varð-
hundi Katrínar Jakobsdóttur til
að verja þau mörgu óþægilegu
mál sem VG-liðar hafa þurft að
kyngja í stjórnarsamstarfinu.
Má þar nefna Landsdómsmál-
ið, stuðning við loftárásir NATO
í Sýrlandi, lækkun veiðigjalda
og nú síðast kjarabaráttu ljós-
mæðra. Allir sem hafa hlustað
á Kolbein verja slík mál í út-
varpi heyra að hann gerir það
með óbragð í munni og lítilli
sannfæringu. Nú virðist sem
stíflan sé að bresta og fyrsta
sprungan komin í ljós því Kol-
beinn hjólar í Brynjar Níelsson
stjórnarbróður sinn fyrir um-
mæli um fjölmiðlamenn.
Bjarni Fel óhress
með málfarið
Knattspyrnan á hug flestra
þessa dagana, enda stend-
ur HM yfir og margir leikir
hafa verið hin besta skemmt-
un, jafnvel er talað um besta
heimsmeistaramót allra tíma.
Íslensku þulirnir sem lýsa leikj-
unum verða þjóðareign og fer
þar vitaskuld fremstur Guð-
mundur Benediktsson sem er
kominn á sérstakan stall í þeirri
deild við hlið Hemma Gunn, Sig-
urðar Sigurðssonar og Bjarna Fel.
Sá síðastnefndi er enn gang-
andi alfræðiorðabók um allt
sem viðkemur fótboltanum, en
segir þó öllum sem vilja heyra
að hann horfi minna en áður á
útsendingar Ríkissjónvarpsins
frá HM, þar sem honum finnist
málfarið orðið svo slæmt.
Er þá Bleik nokkuð brugð-
ið…
Spurning vikunnar Hvert yrði þitt fyrsta verk sem einræðisherra?
„Ríkisstyrkt útgáfa ljóðabóka.“
Valdimar Tómasson
„Tryggja jöfnuð allra.“
Magdalena Gestsdóttir
„Ég myndi koma ríkisstjórninni burt af Alþingi.“
Rúnar Stefánsson
„Að hjálpa fátæklingunum.“
Guðrún Guðjónsdóttir
H
veitibrauðsdagar nýs
meirihluta í Reykjavík
verða líkast til færri en
alla jafna hjá nýjum vald-
höfum, þar sem mörgum finnst
gamli meirihlutinn sem féll aðal-
lega hafa fengið örlitla andlitslyft-
ingu í boði Viðreisnar. Dagur B.
Eggertsson stjórnar enn öllu eins
og hann hefur gert undanfarin ár,
fyrst sem formaður borgarráðs og
svo sjálfur sem borgarstjóri.
Engum blöðum er um það að
fletta, að stjórnarandstaða Ey-
þórs Arnalds og Vigdísar Hauks-
dóttur verður harðsnúin og bar-
áttuglöð, en kannski um leið
nokkuð fyrirsjáanleg. Það verð-
ur líklega ekki erfitt fyrir Dag
að skapa stemningu innan
meirihlutans til þess að takast á
við Sjálfstæðisflokk og Miðflokk
næstu árin.
En það er vandinn til vinstri
sem líkast til verður mesta ógn
hins nýja meirihluta. Jafnvel
banabiti hans. Til vinstri er nefni-
lega Sósíalistaflokkurinn og það
verður líkast til málefnalegt að-
hald úr þeirri áttinni sem verð-
ur borgarstjórnarmeirihlutanum
skeinuhættast.
Vandi frá vinstri
Kaffistofan