Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Blaðsíða 28
26 FÓLK - VIÐTAL 6. júlí 2018 og því hef ég fyrirgefið öllu þessu fólki. Það eru kannski tveir sem ég myndi alveg heilsa á förnum vegi en ég mun samt ekkert mæta í jarðafarirnar þeirra,“ segir Steini brosandi. Sér eftir að hafa ekki komið fyrr út úr skápnum Eins og áður segir er Steini samkynhneigður og það reyndist honum erfitt að koma út úr skápn- um. „Eftir alla þessa stríðni þurfti ég eiginlega að yfirgefa Garðabæ til þess sem ég og gerði. Ég var líka lengi að horfast í augu við þetta sjálfur og átti kærustur þegar ég var yngri. Það tók mjög langan tíma fyrir mig að telja í mig kjark að ræða þetta við foreldra mína. Ég tók loks það samtal þegar ég var 24 ára gamall og skalf af stressi. Síðan var þetta ekkert mál. Þau tóku því afar vel og sýndu mér fullan stuðning. Ég dauðsá strax eftir því að hafa ekki gert þetta miklu fyrr,“ segir Steini. „Þetta er eitthvað sem ég átti að gera“ Að sögn Steina hefur leiklistin blundað í honum frá barnsaldri. „Ég fékk áhuga á leiklist strax á barnsaldri og fann strax að þetta átti vel við mig. Það var draum- ur minn að verða leikari,“ segir Steini. Þegar grunnskólagöngunni lauk fór hann í Fjölbrautarskól- ann í Garðabæ í skamman tíma en flosnaði fljótlega upp úr námi. Steini sótti síðar um í leiklist- ardeild Listaháskóla Íslands og tók þátt í hinum alræmdu en fjöl- mennu inntökuprófum. „Mér gekk mjög vel og komst í lokaúr- takið. Þegar það próf var afstað- ið fékk ég þau skilaboð að próf- dómurunum hefði litist mjög vel á mig en þeir sem væru með stúd- entpróf fengju forgang og því fengi ég ekki skólapláss,“ segir Steini. Um mikið áfall var að ræða og segist Steini hafa farið í allsherjar fýlu. „Ég varð alveg brjálaður. Sár, reiður og bitur. Ég fór í svo mikla fýlu að ég ákvað að sækja aldrei aftur um að skólavist í leiklist. Ég ákvað að gera þetta bara sjálfur,“ segir Steini. Hann sótti sér þvi reynslu hjá hinum ýmsu áhugamannaleikhús- um á höfuðborgarsvæðinu, allt þar til að hugmyndin um Lottu kvikn- aði. Síðan þá hefur það verkefni átt hug og hjarta Steina. „Ég hef líka leikið í sjónvarpi, sérstaklega í Stundinni okkar, í auglýsingum og síðan hef ég verið að veislustýra og skemmta við hin ýmsu tilefni. Mér finnst mjög gaman að leika fyrir börn og þetta form sem Lotta notar hentar mér afar vel. Ég finn að ég er á réttri hillu, þetta er eitthvað sem ég átti að gera,“ segir Steini. Kvíðir því að velja á milli starfa Samhliða sumarvertíðinni hjá Lottu starfar Steini sem félags- liði í Dimmuhvarfi og hefur gert undanfarin þrettán ár. „Þetta byrj- aði sem heimili fyrir einhverfa stráka með hegðunarvanda en hefur þróast talsvert á undanför- um árum. Þetta er frábært og gef- andi starf og ég gæti ekki hugsað mér betri vinnustað. Yfirmenn mínir hafa sýnt leiklistinni mik- inn stuðning og ég er afar þakklát- ur fyrir það,“ segir Steini. Að hans sögn verður starfsemi Lottu sífellt umfangsmeiri og sérstaklega í ljósi þess að hópurinn hefur verið að sýna eldri verk innandyra á vet- urna. „Ég óttast þá stund mjög að ég þurfi að velja á milli Dimmu- hvarfs og leiklistarinnar. Mér þykir ofboðslega vænt um þessa stráka sem ég hef unnið með undanfarin ár og ég get varla hugsað þá hugs- un til enda að þurfa að gera upp á milli þessara starfa. Ég óttast samt að sá tími muni koma,“ seg- ir Steini. Greiningin var afar mikilvæg Eins og áður segir er Steini félags- liði að mennt en sú vegferð hófst með mikilvægu prófi. „Eftir alla þessa árekstra við skólakerfið fór ég loksins í greiningu. Eftir langa bið sló ég í gegn í því prófi og fékk langan lista af greiningum,“ seg- ir Steini og hlær. Hann segir að þetta hafi verið mjög stór stund. „Það var ótrúlegur léttir að fá þá viðurkenningu að maður væri ekki heimskur. Að þessir erfiðleik- ar mínir ættu sér skýringar,“ segir hann. Hann hófst þegar handa við að feta menntaveginn og út- skrifaðist loks sem félagsliði. „Ég þurfti ekki einu sinni lyf til þess að læra. Bara það að vita af þess- um áskorunum sem hugur minn setur og vinna í kringum þær var nóg. Ég sat kannski í skólastof- unni og leyfði mér að spila ein- hvern heiladauðann tölvuleik í símanum á meðan ég hlustaði á kennarann. Það er nauðsyn- legt til þess að ég geti haldið ein- beitingu,“ segir Steini. Hann flaug í gegnum námið og fékk í fyrsta skipti háar einkunnir. „Ég fékk bara níur og tíur. Það var rosalega góð tilfinning og hafði góð áhrif á sjálfsmyndina.“ Erfitt að horfa upp á glímu föðursins við Alzheimer Það er því mikið að gera í leik og starfi hjá Steina. Hann segist hafa afar gaman að því sem hann fæst við en þann stór skugga ber þó á að faðir hans er að glíma við Alzheimer-sjúkdóminn illvíga. „Það hefur tekið afar mikinn toll af fjöskyldunni, sérstak- lega mömmu. Fjölskyldan mín er mjög náin. Ég elska foreldra mína og systur útaf lífinu og því er hrikalega erfitt að fylgjast með þessum eyðileggingarmætti sem Alzheimer-sjúkdómurinn hef- ur í för með sér. Foreldrar mín- ir eru hetjurnar mínar og það er afar sárt að fylgjast með þessum hræðilega sjúkdómi taka pabba yfir og geta ekkert að gert,“ segir Steini. Hann segir að það sé afar mik- ilvægt fyrir einstaklinga að leita sér hjálpar ef einhver einkenni láti á sér kræla. „Það er rosalega mikilvægt fyrir alla aðila að sjúk- lingurinn fái strax greiningu og sé meðvitaður um þá vegferð sem er að hefjast. Ef sjúkdómurinn fær að krauma óáreittur of lengi þá byrjar afneitun sjúklingsins og það brýst oft út í reiði og biturð,“ segir Steini. n „Ég þótti kven- legur og var með ýmsa takta sem gert var grín að. Ég var alltaf upp- nefndur Steini píka og það særði mig mjög þó ég hafi reynt að bera mig vel. Orðið hommi var eitt helsta uppnefnið og ég var ekki einu sinni sjálfur farinn að horfast í augu við eigin kynhneigð á þessum tíma. HVERSDAGSLEIKINN Á SKILIÐ ÓTRÚLEGAN SÍMA DUAL 12 MP MYNDAVÉL NOKIA 8 SIROCCO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.