Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Blaðsíða 30
Snæfellsnes Helgarblað 6.júlí 2018KYNNINGARBLAÐ
VEITINGASTAÐURINN VIÐVÍK:
Matarupplifun við þjóðveginn
Veitingastaðurinn Viðvík var opnaður í júlí árið 2017 og er í gullfallegu nýuppgerðu húsi
við þjóðveginn á Hellissandi. Eigend-
urnir eru bræðurnir Gils Þorri, yfir-
matreiðslumaður í Viðvík, og Magnús
Darri, og makar þeirra, Aníta Rut
Aðalbjargardóttir og Helga Jóhanns-
dóttir. Foreldrar Gils og Magnúsar,
þau Kristín Gilsfjörð og Sigurður V.
Sigurðsson, hjálpuðu til við upp-
byggingu hússins sem er uppruna-
lega frá árinu 1942.
Fallegt hús og einstaklega fallegt
umhverfi í kringum veitingastaðinn
kallar á nokkuð fína matreiðslu. „Við
ákváðum að fara ekki þessa hefð-
bundnu leið veitingastaða við þjóð-
veginn, að bjóða upp á hamborgara,
pítsur og hálfgerðan skyndimat,
heldur vildum við bjóða upp á öðru-
vísi upplifun. Við erum með lítinn,
hnitmiðaðan matseðil með gæði
hráefna í fyrirrúmi og reynum að
breyta honum nokkuð reglulega og
nýtum einnig hráefni úr nærliggjandi
umhverfi eftir bestu getu. Við erum
staðsett alveg við sjóinn og fáum við
úr honum þorsk, bláskel, hörpuskel
og fleira. Hraðfrystihús Hellissands
er hér rétt hjá okkur og sjá þau okkur
fyrir gæðahráefni,“ segir Gils.
Gott úrval drykkja er líka á staðn-
um, vín, kokteilar og íslenskar bjór-
tegundir. Starfsfólk veitir góðfúslega
ráðgjöf um heppilega drykki sem
henta hverjum og einum.
Gestirnir á Viðvík eru, að sögn
Gils, skemmtileg blanda af erlend-
um og innlendum ferðamönnum og
heimafólki. „Heimamenn, innlendir og
erlendir ferðamenn eru farnir að veita
okkur meiri athygli eftir að við höfum
skapað okkur sess fyrir gæði í mat-
reiðslu og þjónustu,“ segir Gils en Við-
vík hefur fengið mjög góðar umsagnir.
„Fólk hrósar ekki síður þjónustunni
hér en matnum. Við erum líka fjöl-
skyldustaður og kappkostum að taka
vel á móti fólki, láta því líða vel hér og
kveðja það alúðlega líka,“ segir Gils,
en hann og aðrir eigendur staðarins
eru himinlifandi með hvað vel hefur
gengið og hversu góðar móttökurnar
hafa verið fyrsta ár veitingastaðarins.
Það er ánægjuleg upplifun að
eiga stund á veitingastaðnum Viðvík.
Að snæða góðan mat í fallegu húsi
og njóta góðrar þjónustu er alltaf
ánægjulegt, en gullfalleg náttúra allt
í kring magnar enn upplifunina. „Við
höfum sjóinn og fjörðinn á aðalhlið
hússins og hinum megin í salnum
blasir Snæfellsjökullinn við,“ segir Gils
og ljóst er að umhverfið gæti ekki
verið fallegra.
Viðvík er fremur lítill veitingastaður,
tekur 30-40 manns í sæti, og vegna
vinsælda staðarins er mælt með því
að borð séu pöntuð fyrirfram, í síma
436 1026. Viðvík er kvöldverðarstað-
ur og er opið frá 17 til 22 þriðjudaga –
laugardaga og 17 til 21 sunnudaga.
Sjá nánar á Facebook-síðu Viðvík
Restaurant og öðrum miðlum.
Instagram @vidvikrestaurant