Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Blaðsíða 32
Snæfellsnes Helgarblað 6.júlí 2018KYNNINGARBLAÐ
KAFFIHÚSIÐ GILBAKKI Á HELLISSANDI:
Staðurinn til að tékka á á leið
um Snæfellsnes
Þetta hefur gengið alveg rosa-lega vel, samt höfum við ekkert auglýst og ekki einu sinn merkt
húsið. En þetta er í alfaraleið og þetta
flotta hús selur sig sjálft,“ segir Anna
Þóra Böðvarsdóttir, eigandi kaffi-
hússins Gilbakka á Hellissandi, sem
opnað var þann 7. júní síðastliðinn.
Opið er á Gilbakka alla daga vik-
unnar frá 9 til 18 og Anna stendur
þar vaktina ásamt tveimur stúlkum,
þeim Selmu Marín Hjartardóttur og
Anítu Sif Pálsdóttur. Hafa þær stöllur
ekki undan því að Gilbakki hefur slegið
í gegn, jafnt hjá heimamönnum sem
ferðamönnum sem eiga leið um
svæðið. „Gilbakki er klárlega staður-
inn sem þarf að tékka á ef fólk á leið
um Snæfellsnes,“ segir Anna.
Þó að Gilbakki sé splunkunýtt
kaffihús hvílir það samt á gömlum
grunni því Anna rak um árabil kaffi-
húsið Gamla Rif. Þaðan kemur rómuð
fiskisúpa Önnu, sem má nánast segja
að sé heimsfræg, og er súpan í boði
allan daginn á Gilbakka. Þar er líka
frábært úrval af kökum og brauðrétt-
um og er það allt búið til á staðnum.
Það lífgar upp á stemninguna á kaffi-
húsinu að hægt er að fylgjast með
þeim stöllum búa til réttina í opnu
eldhúsinu.
Enn fremur er boðið upp á fjöl-
breytta kaffidrykki og staðurinn er
með vínveitingaleyfi þannig að hægt
er að fá sér bjór og léttvín.
Gilbakki er til húsa að Höskuldar-
braut á Hellissandi, í afar fallegu
húsi þar sem gaman er að sitja með
heimilislegum anda sem augljóslega
höfðar vel til bæði heimamanna og
ferðafólks sem á leið um svæðið og á
notalega stund á þessu nýja kaffihúsi.
Sjá nánar á Facebook-síðunni Gil-
bakki Kaffihús. Símanúmer er 436 1001.