Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Page 42
40 6. júlí 2018
Matti Haapoja er þekktasti raðmorðinginn í sögu
Finnlands þrátt fyrir að vera aðeins dæmdur fyrir tvö
morð en hann var uppi á síðari hluta 19. aldar. Talið er að
fórnarlömb hans séu á bilinu 22 til 25.
Fyrsta þekkta drápið framdi hann árið 1867 þegar hann
stakk drykkjufélaga sinn. Eftir þetta hófst blóðugur og SAKAMÁL
M
argir sjónvarpsáhorfend-
ur muna væntanlega eft-
ir dönsku sjónvarpsþátt-
unum Rejseholdet sem
sýndir voru hér á landi fyrir margt
löngu og nutu mikilla vinsælda. En
það eru kannski ekki allir sem vita
að Rejseholdet var í raun og veru
til sem sérstök deild hjá danska
ríkislögreglustjóraembættinu og
sá um rannsóknir alvarlegra af-
brota um alla Danmörku. Málið
sem hér er til umfjöllunar var það
síðasta sem Rejseholdet rannsak-
aði og upplýsti áður en það var lagt
niður eftir 75 ára sögu.
Það var föstudagskvöldið 27.
júní 2003 að hin 12 ára gamla Mia
sagði mömmu sinni að hún ætlaði
að skjótast út á leikvöll en kæmi
heim um 22. Hún bjó ásamt fjöl-
skyldu sinni í Benløse sem er lítill
bær á Sjálandi. Hún þurfti að hjóla
smá spöl frá heimili sínu til leik-
vallarins en þar léku börn sér oft á
kvöldin. Foreldrar hennar sofnuðu
og vöknuðu ekki fyrr en klukkan
02.40 og sáu þá strax að Mia hafði
ekki skilað sér heim. Þau hringdu
í lögregluna og ákveðið var að ef
Mia yrði ekki komin heim næsta
morgun myndi þau hringja aft-
ur. Þegar hún hafði ekki skilað sér
klukkan 08.30 hófst leit að henni.
Leitað var nærri leikvellinum og
var fjöldi lögreglumanna við leit
og lögregluhundar voru fengn-
ir frá öðrum lögregluliðum. En
leitin bar engan árangur. Lýst var
eftir henni í sjónvarpsfréttum um
kvöldið. Á sunnudeginum var enn
viðameiri leit gerð að Miu. Leitað
var í kjöllurum 630 heimila, sorp-
rennum, gámum og lóðum húsa
auk almenningsgarða. Um klukk-
an 14.30 fannst reiðhjól Miu í lim-
gerði sem skilur tvo knattspyrnu-
velli að á milli Asgårdsskólans og
Benløseskólans. Þetta var tæplega
300 metra frá leikvellinum.
Í framhaldi af þessu var leitað
í limgerðinu sem skilur leikvöll-
inn frá öðrum knattspyrnuvellin-
um. Það var um sjö metra breitt
og tíu metra hátt og mjög grósku-
mikið. Í miðju þess var göngu-
stígur sem ekki sást utanfrá.
Síðdegis gaf einn lögreglu-
hundanna til kynna að
hann hefði fundið eitt-
hvað. Það reyndist
vera notaður smokk-
ur. Nærri staðnum,
þar sem smokk-
ÓHUGNALEGT BARNSMORÐ
n Síðasta mál Rejseholdet var eitt umtalaðasta morðmálið í Danmörku n Deildin lögð niður eftir að málið var leyst„Síðdegis
gaf einn
lögregluhund-
anna til kynna
að hann hefði
fundið eitthvað.
MORÐINGINN MATTI VAR SÉRFRÆÐINGUR Í FLÓTTA
ALLT FYRIR
FUNDARHERBERGIÐ
Þráðlaust
sýningartjald
Þráðlaus
búnaður
Hágæða öruggur
fjarfundabúnaður
DALVEGI 16B / S. 510 0500