Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Qupperneq 43
SAKAMÁL 416. júlí 2018
urinn lá, var eins og jarðveginum
hefði verið raskað en erfitt var að
átta sig alveg á því þar sem ný-
lega hafði rignt. Hundur var lát-
inn leita á staðnum og var hann
mjög ákafur og fór að grafa. Hann
var stöðvaður og sérfræðingar lög-
reglunnar hófust handa við upp-
gröftinn. Á um 15 sm dýpi fannst
grænt nælonband og á 40 sm dýpi
kom blár fatnaður í ljós. Þegar lög-
reglumenn gerðu gat á fatnaðinn
kom mannshúð í ljós. Líkið var
grafið upp og fljótlega var ljóst að
þarna var um lík Miu að ræða. Það
var að hálfu án fata, áverkar voru á
andlitinu og grænt nælonband var
vafið utan um hálsinn og hnútur
á því. Fatnaðurinn, sem vantaði,
fannst í gröfinni.
Umfangsmikil rannsókn
Út frá því sem vitni sögðu var hægt
að slá því föstu að Mia var á lífi
klukkan 20.15 en þá sást til henn-
ar hjóla á stígnum frá Benløse-
skólanum til leikvallarins. Smokk-
urinn var sendur til rannsóknar og
leitað að DNA.
Laugardaginn 5. júlí barst lög-
reglunni ábending um að 22 ára
karlmaður, Steffen Kristensen að
nafni, hefði hugsanlega myrt Miu.
Steffen bjó í Benløseparken. Hann
var sagður hafa komið heim til
sín að kvöldi 27. júní og hafi strax
sett fötin sín í þvottavél og þvegið
þau. Lögreglan ræddi við Steffen
sem sagði þetta rétt vera og gaf
þá skýringu að hann hefði fengið
olíu af reiðhjóli sínu í buxurnar og
því hefði hann þurft að þvo þær.
Hann þvertók fyrir að vita nokk-
uð um morðið og bauðst til að láta
lögreglunni DNA-sýni í té.
Þann 12. júlí barst niður-
staða úr rannsókn á smokkn-
um og sýndi hún að DNA, sem
fannst utan á honum, var úr Miu.
Í sæðinu fannst fullkomin DNA-
-uppbygging sem reyndist vera
úr manni sem var ekki á skrá lög-
reglunnar. Lögreglan ákvað nú
að beina athyglinni að Steffen en
hún hafði 60 nöfn grunaðra á skrá
í málinu. Fjarvistarsönnun Steffen
að kvöldi 27. júní reyndist ekki
vera traust. Auk þess höfðu vitni
séð til manns, sem líktist Steffen,
nærri morðvettvanginum. Steffen
var tekinn til yfirheyrslu á nýjan
leik þann 14. júlí og blóðprufa tek-
in úr honum til DNA-rannsóknar.
Húsleit var einnig gerð heima hjá
honum en hann bjó í foreldrahús-
um. Við leitina fundust umbúðir
utan af smokkum sem og mynd-
ir af rössum barnungra stúlkna en
myndirnar höfðu greinilega verið
teknar á opnum svæðum í og við
Benløseparken. Einnig fundust
klámmyndir sem búið var að líma
andlitsmyndir af ungum stúlkum
á. Um kvöldmatarleyti fékkst stað-
fest hjá tæknideild lögreglunnar
að smokkapakkinn, sem fannst
í íbúð Steffen, passaði við um-
búðirnar sem fundust við
gröfina. Steffen var því hand-
tekinn og yfirheyrður. Hann
bar við minnisleysi en brotn-
aði saman um kvöldið og
sagðist muna eftir að hafa
grafið holu í miðju kjarri.
Þegar færa átti hann fyr-
ir dómara
næsta
morgun til að krefjast gæsluvarð-
halds játaði hann að hafa myrt
Miu. Hann sagðist hafa sett grænt
nælonband utan um háls hennar
og hert að. Hann sagðist því næst
muna að hún hafi legið á jörðinni
og hafi gefið undarleg hljóð frá sér
og hafi hann þá misst stjórn á sér
og stappað á hálsi hennar þrisvar
sinnum. Hann sagðist því næst
hafa klætt hana úr buxunum og
brotið kynferðislega gegn henni.
Dómur kveðinn upp
Steffen sat í gæsluvarðhaldi þar
til dómur var kveðinn upp í lok
apríl 2004. Saksóknari krafð-
ist þess að Steffen yrði dæmd-
ur til ótímabundinnar vistun-
ar í fangelsi en það er þyngsta
mögulega refsing í Danmörku
en til vara að hann yrði dæmd-
ur í ævilangt fangelsi. Steffen var
fundinn sekur um öll ákæruat-
riðin og dæmdur til ótímabund-
innar vistunar í fangelsi. Steffen
áfrýjaði dómnum strax en féll frá
áfrýjuninni nokkrum vikum síð-
ar.
Morðið á Miu vakti mikla
athygli í Danmörku og mikil
fjölmiðlaumfjöllun var um það
enda um sérstaklega grimmdar-
legt barnsmorð að ræða. Mál-
ið fékk að vonum mjög á íbúa
í Benløse sem og í Danmörku
allri. n
ÓHUGNALEGT BARNSMORÐ
n Síðasta mál Rejseholdet var eitt umtalaðasta morðmálið í Danmörku n Deildin lögð niður eftir að málið var leyst
Rannsóknardeild
lögreglu að störfum
Steffen Kristensen Hlaut ævinlangan fangelsisdóm fyrir morðið á Miu.
Mia
Teglgaard
Sprotte
Var aðeins
12 ára gömul
þegar hún
var myrt.
umtalaður glæpaferill hans fyrir alvöru því að Matti hafði
lag á því að sleppa úr fangelsum og brjóta þá aftur af sér.
Árið 1880 var hann sendur í fangabúðir til Síberíu en hélt
þá áfram að drepa og var sendur til austur-Síberíu.
Þaðan slapp hann aftur til Finnlands árið 1890 og eitt
af hans fyrstu verkum í heimalandinu var að myrða
vændiskonu.
Sögur af glæpum Matti voru mikið á síðum
finnsku dagblaðanna, þjóðsögur spruttu upp og
söngvar voru samdir um verknaði hans. Í seinni tíð hafa þrjú leikrit verið
sett á svið um líf Matti.
Í einni flóttatilrauninni árið 1894 drap hann fangavörð en lenti svo í vandræðum
og sá að hann kæmist ekki burt. Þá reyndi hann að taka eigið líf með því að stinga
sig með hníf. Þegar hann hafði náð sér af stungusárinu þremur mánuðum síðar
kláraði hann verkið með því að hengja sig klefanum þar sem hann beið réttarhalda.
MORÐINGINN MATTI VAR SÉRFRÆÐINGUR Í FLÓTTA
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
20-50%
AFSLÁTTUR
Á SÓFA OG
BORÐSTOFUDÖGUM