Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Page 46
44 6. júlí 2018
Tímavélin Gamla auglýsinginVísir 11. október 1956
„Framhald
mikillar vík-
ingahefðar“
Þann 7. ágúst árið 1997 var
fyrsti íslenski geimfarinn,
Bjarni Tryggvason, sendur á
sporbaug um jörðu.
Bjarni fæddist í Reykja-
vík en flutti sjö ára gamall til
Kanada með foreldrum sín-
um og er búsettur í Vancouver
við Kyrrahafið. Hann var ekki
aðeins fyrsti Íslendingurinn
heldur einnig fyrstur Norð-
urlandabúa til að ferðast út í
geiminn.
Í ferðinni gerði Bjarni, sem
er eðlisverkfræðingur, rann-
sóknir á breytingum í lofthjúpi
jarðarinnar.
Hann fór með geimskutl-
unni Discovery frá Canaveral
höfða í Flórída klukkan 14:41
og var alls tólf daga í geimn-
um. Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, og Guðrún
Katrín forsetafrú voru meðal
gesta þegar flauginni var skot-
ið á loft.
„Við erum þjóð land-
könnuða og landnema og við
lítum á þetta sem framhald
mikillar víkingahefðar,“ sagði
Ólafur.
Í
októbermánuði árið 1973
braust út stutt stríð milli Ísraela
annars vegar og Egypta og Sýr-
lendinga hins vegar sem nefnt
var Yom Kippur stríðið eftir hátíð
gyðinga.
Fimm Íslendingar á aldrinum
19 til 24 ára, störfuðu á samyrkju-
búinu Shamir á Gólanhæðum
þegar stríðið braust út og voru bar-
dagar þar um kring mjög harðir.
Gerð var árás á Shamir og voru
Íslendingarnir fluttir í loftvarnar-
byrgi. Töluverðar skemmdir urðu
á húsum en ekkert mannfall í það
sinn.
Erfiðlega gekk að koma Ís-
lendingunum, bæði þeim sem
störfuðu í Shamir og í öðrum
samyrkjubúum, því að flugsam-
göngur lágu niðri. Hafði danska
sendiráðið loks milligöngu um að
koma fólkinu heim.
Skotið að Íslendingum
í Yom Kippur stríði
S
unnudaginn 14. júlí árið
1963 var gerð víðtæk leit
að þremur ungum börnum
sem höfðu týnst í Þingvalla-
sveit. Eftir tíu tíma leit fundust þau
á eyðibýli, furðu brött en yngsta
stúlkan orðin hrædd og grátandi.
Illa búin og kalt í veðri
Börnin þrjú voru Sigfús Kristins-
son, níu ára, Birgir Ragnarsson,
sex ára og Anna Másdóttir, fimm
ára. Drengirnir voru búsettir bæn-
um Brúsastöðum í Þingvallasveit
en Anna gestkomandi þar á bæ.
Um þrjúleytið var tekið eftir því að
börnin væru ekki á bænum og um
fjögurleytið hófst skipuleg leit að
þeim og bættust sífellt fleiri leitar-
menn við.
Kalt var í veðri þennan dag,
miðað við árstíma, og börnin
þrjú illa búin til langrar útiveru.
Drengirnir voru aðeins í peysum
og Anna berleggjuð í stuttu pilsi.
Leitin beindist að Stíflisdal, sem
var í eyði, en annar drengurinn
hafði sagt frá því að hann lang-
aði að fara þangað til að hitta Jó-
hann frænda sinn sem var þar
að slá. Leitað var í dalnum milli
klukkan átta og níu um kvöldið
og var leitarfólk orðið mjög
hrætt um börnin. Um klukkan tíu
var haft samband við lögregluna í
Reykjavík og skömmu síðar komu
hjálparsveitir skáta til að aðstoða
við leitina og þyrla frá varnarliðinu
sem stödd var á Þingvöllum.
Hélt að þau væru að
fara að kaupa nammi
Klukkan eitt um nóttina fann áð-
urnefndur Jóhann, föðurbróð-
ir drengjanna, börnin loksins í
Stíflisdal. Földu þau sig fyrst bak
við olíugeymi þegar Jóhann kom
keyrandi en komu síðan hlaup-
andi þegar þau sáu hann. Urðu þá
miklir fagnaðarfundir og léttir hjá
öllum sem tóku þátt í leitinni.
Börnin voru „kát og hress og
voru drengirnir hinir ánægð-
ustu með skemmtiferðina“ eins
og sagði í Tímanum 15. júlí. En
þó að þeir hafi verið brattir þá var
Önnu litlu hætt að standa á sama
og var grátandi þegar Jóhann kom
að. Hún hélt að drengirnir ætluðu
að fara með hana til Þingvalla að
kaupa sælgæti og skildi því ekkert
í því hversu langan tíma ferðalag-
ið tók. Var hún orðin mjög þreytt
og blaut í fæturna eftir tíu tíma
göngu.
Tveggja klukkutíma ganga er á
milli Brúsastaða og Stíflisdals, ef
farið er beinustu leið en börnin voru
nýkomin í dalinn þegar Jóhann fann
þau. Þau höfðu því villst verulega af
leið og því hefði getað farið illa.
Þegar blaðamenn komu að
bænum daginn eftir var hinn níu
ára Sigfús strax farinn í heyskap
með Jóhanni frænda sínum. Hann
hafði stýrt þessum mikla leið-
angri. Hann sagði að fyrst hefðu
þau gengið eftir veginum en síð-
an símastrengnum. Annað slag-
ið hefði hann þurft að bera Önnu
litlu þar sem hún var orðin svo
þreytt. n
Týnd í tíu klukkutíma
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkrautt