Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Blaðsíða 60
58 FÓLK 6. júlí 2018
Bókin á náttborði
Gunnars Alexanders
„Ég les mikið
af bókum og er
alltaf að lesa nokkrar
bækur á hverjum
tíma. Flestar glugga ég
í við og við og tekur það
því góðan tíma að klára
þær. Bókin sem ég er að lesa
núna heitir Ekki gleyma mér
eftir Kristínu Jóhannsdóttur og
fjallar um tíma hennar í Aust-
ur-Þýskalandi. Svo les ég við og
við bókina Fagur fiskur í sjó eftir
Ágúst Einarsson prófessor sem
er stórmerkileg og fræðandi bók
um sjávarútveginn og þróun hans.
Síðan les ég líka við og við kafla í
sænskri bók, Största brottet, sem
fjallar um fórnarlömb Nasista og
Quislinga í Noregi í seinni heim-
styrjöldinni. Ég les alltaf sænskar
og enskar bækur og ég er líka að
glugga í kafla og kafla í bókinni
Inequalities of Health: The Black
Report eftir Peter Townsend sem
er grundvallarrit um mælingu á
ójöfnuði í samfélagi. Síðan var
ég að kaupa Stormfugla eftir
Einar Kárason og hlakka til
lestursins því Einar er einn
af mínum uppáhaldsrit-
höfundum.“
Jóhann keyrði aftan á bíl og
tognaði á hálsi.
Hann fékk 3,7 m.kr. í bætur.
Lifðu lífinu - Við sækjum bæturnar.
FRIÐGEIR EINARSSON:
„Eyjan hans Múmínpabba er dulúðug
saga. Samt gáskafull og krúttleg“
R
ithöfundurinn Friðgeir
Einarsson hefur víða látið að
sér kveða, einna helst í sviðs-
listum og við auglýsinga-
gerð. Árið 2016 gaf hann út sína
fyrstu bók, smásagnasafnið Takk
fyrir að láta mig vita og í fyrra kom
út hans fyrsta skáldsaga, Formaður
húsfélagsins.
Hvaða barnabók er í eftirlæti?
„Mig minnir að sem barn hafi ég
aðallega lesið teiknimyndasögur,
eins og Sval & Val, Viggó viðutan,
Andrés Önd og Goðheima. Fyrsta
bókin sem ég man eftir að hafi rist
djúpt og hreyft við mér var Bróðir
minn Ljónshjarta sem mamma las
fyrir mig. En ef einhver barnabók
er í uppáhaldi frekar en önnur hlýt-
ur það að vera Eyjan hans Múmín-
pabba. Það er dulúðug saga um
meðvirkni, stjórnsemi, kvíða og leit
að tilgangi í heimi án tilgangs. Samt
gáskafull og krúttleg.“
Hvaða bók er uppáhalds?
„Ég er alltaf tregur til að úr-
skurða að eitthvað eitt sé „uppá-
halds“, ég á mér enga eina uppá-
haldsbíómynd né uppáhaldsplötu
og heldur ekki uppáhaldsbók.
Smekkur minn á slíku breytist
nokkuð ört. En auðvitað eru nokkr-
ar bækur betri en aðrar og nokkrir
höfundar öðrum fremri. Þegar ég
tala um bókmenntir þessi misserin
stend ég mig oftar en ekki að því að
tala um Raymond Carver. Ætli það
megi ekki segja að smásagnasafnið
Cathedral sé í eftirlæti hjá mér um
þessar mundir.“
Hvaða bók myndirðu mæla með
við aðra?
„Það veltur dálítið á því um
hvern ræðir og í hvaða samhengi.
Meðal þeirra bóka sem ég hef les-
ið nýlega og haft gaman af eru The
First Bad Man eftir Miröndu July,
Don’t Cry eftir Mary Gaitskill og
Veisla í greninu eftir Juan Pablo
Villalobos í íslenskri þýðingu Maríu
Ránar Guðjónsdóttur. Allt kyngi-
magnaðar og hugvekjandi bækur.“
Hvaða bók hefur lesið oftast?
„Ég forðast það jafnan að lesa
bækur oftar en einu sinni, aðallega
af því að ég les mjög hægt og finnst
blóðugt að verja óratíma í eitthvað
sem ég er búinn með. Samt hef
ég lesið Útlendinginn eftir Albert
Camus fjórum eða fimm sinnum,
á mismunandi tungumálum og í
mismunandi þýðingum. Á sínum
tíma skrifaði ég útskriftarritgerð úr
Háskólanum um Gæludýrin eftir
Braga Ólafsson; þá hlýt ég að hafa
lesið hana nokkrum sinnum. Og
um daginn endurnýjaði ég kynnin
við Svefnhjólið eftir Gyrði Elíasson
eftir langa pásu, það var mjög
ánægjulegt.“
Hvaða bók breytti lífi þínu og
hvernig?
„Nýlega las ég frekar leiðinlega
bók um tiltektir sem varð til þess
að ég tók til í fataskápnum hjá mér,
fleygði gömlum lörfum og endur-
menntaði sjálfan mig í að brjóta
saman og raða. Sjálfsagt eru þetta
áþreifanlegustu áhrifin sem stök
bók hefur haft á líf mitt í seinni tíð.
Á eftir fataskápnum stóð til að taka
til í bókaskápnum, en þá féllust
mér hendur. Það er ákaflega erfitt
að henda bókum.
Hvaða bók býður þín næst til
lestrar?
„Ég var að byrja á skáldsögunni
Okkar á milli eftir Sally Roony í fyr-
irtaks þýðingu Bjarna Jónssonar.
Hún fer vel af stað. Þá er ég enn
að vinna á stórum búnka sem ég
bar heim í vetur af bókamarkaðn-
um á Laugardalsvelli. Svo stend-
ur ólesin í hillu hjá mér sexhund-
ruð blaðsíðna bók um Jón lærða.
Og þar við hliðina á nokkrar bæk-
ur sem ég hef frestað í nokkur ár
að lesa, Pale Fire eftir Nabokov,
Lífið notkunarreglur eftir Perec og
þriðja bók í Min kamp-bálknum
hans Knausgaards. Við þetta bæt-
ast bókaklúbbsbækur og ýmis-
legt sem safnast fyrir hjá mér. Öllu
þessu þarf að sinna. Ég stórefa að
mér endist ævin til þess.“
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
BÓKAKLÚBBAR STJARNANNA –
Þær elska að lesa og mæla með góðum bókum
Þ
að elska allir að lesa góða
bók og það á líka við
um stjörnurnar
í Hollywood.
Nokkrar þeirra hafa
ákveðið að taka
bókaástríðuna á
næsta stig og hafa
stofnað bókaklúbba
við miklar vinsældir
aðdáenda þeirra. Það
er líka til mikillar fyrir-
myndar og hvetur til bókalesturs
þegar „idolið“ þitt er bókaormur.
Sú þekktasta þeirra og sem
segja má að hafi rutt brautina fyrir
aðrar stjörnur, er Oprah Winfrey.
Fyrsta bókin sem hún mælti með
var The Deep End of the Ocean
eftir Jacquelyn Mitchard, það var
17. september 1996. Síðan þá eru
bækurnar orðnar 79 talsins og
bókaklúbburinn er orðinn vöru-
merki og sérflokkur á heimasíðu
hennar.com. Bókaklúbburinn
hefur vaxið úr því að vera að-
eins meðmæli Oprah með
ákveðinni bók í að vera
bókaklúbbur sem vel-
ur nýja bók reglulega,
tekur viðtöl við höf-
unda, gefur lesendum
lestrarleiðbeiningar og
fleira. Nýjasta bókin er
The Sun Does Shine: How
I Found Life and Freedom
on Death Row eftir Anthony Ray
Hinton, en hann var laus úr fang-
elsi í apríl 2015 þrátt fyrir að hafa
hlotið dauðadóm fyrir
tvö morð þrjátíu árum
áður.
Yngri leikkonurn-
ar nýta sér samfé-
lagsmiðlana, og þá
helst Instagram fyr-
ir sína bókaklúbba.
Bókaklúbbarnir eru þó
allir á Goodreads, bibl-
íu allra bókaunnenda.
Hin fríða Emma
Watson er með
bókaklúbbinn Our
Shared Self, en
klúbbinn stofnaði
hún árið 2016 í tengsl-
um við starf hennar við UN
Women. Einu sinni í mánuði vel-
ur hún eina bók sem hún mælir
með, bækurnar vekja lesandann
ávallt til hugsunar og eru upp-
fullar af feminískum krafti. Bóka-
klúbbur Emmu „hittist“ líka á
Goodreads og Twitter.
Reese Witherspoon
byrjaði í byrjun árs 2017
að mæta með bók-
um á Instagram undir
nafni Hello Sunshine,
sem er framleiðslufyr-
irtæki hennar. Reese
kann greinilega að velja
góðar sögur, því að
Gone Girl, Big Little
Lies og Wild eru bæk-
ur sem hún mælti
upphaflega með og
hefur síðan framleitt
sem kvikmyndir eða
sjónvarpsþætti og leik-
ið í.
Emma Roberts og vinkona
hennar Karah Preiss, stofnuðu
Belletrist, þar sem ný bók og
ný bókabúð er valin í hverjum
mánuði. Bloggið þeirra býður
einnig upp á viðtöl við höfunda
og Emmu
sjálfa.