Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Síða 62
6. júlí 2018
26. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Hrafninn
leigir!
Hrafn
leigir út
umdeilt
hús
Hjónin Jóhann Helgi
Hlöðversson og Margrét
Ormsdóttir, eigendur Blind
Raven veitingahússins í Vatns-
holti, hafa leigt hús af Hrafni
Gunnlaugssyni.
Um er að ræða umdeilt hús
við Helluvatn, Elliðavatnsblett
3, sem deilur stóðu um á milli
Hrafns og Orkuveitu Reykja-
víkur.
Málið á sér aðdraganda 90
ár aftur í tímann, til dagsins
30. júní árið 1927, þegar land-
eigendur Elliðavatns seldu
jörðina til Reykjavíkurborgar
gegn vissum skilyrðum.
Dómur féll í máli Orku-
veitunnar gegn Hrafni Gunn-
laugssyni þann 14. júní 2016
þar sem segir í dómsorði:
„Stefnanda, Hrafni Gunn-
laugssyni, eru heimil afnot
af lóðinni Elliða vatns bletti
3 í eigu stefnda, Orkuveitu
Reykjavíkur, í 15 ár talið frá
uppkvaðningu þessa dóms.
Rétt ur inn er bundinn við
stefnanda og fellur niður að
honum látnum.“
Ekki er búið að þinglýsa
leigusamningi, en í símtali við
blaðamann DV staðfestir Jó-
hann Helgi að hann hafi leigt
þetta fallega hús til næstu 14
ára.
Auðvelt að versla á byko.is • Sendum út um allt land
REIÐHJÓL OG FYLGIHLUTIR -30% • GARÐHÚSGÖGN -27% • SLÁTTU-
VÉLAR -20-40% • RAFMAGNS- OG BENSÍNGARÐVERKFÆRI -20-40%
NAPOLEON GRILL -30% • BROIL KING GRILL -30% • BLÓMAPOTTAR
OG GARÐSKRAUT -35% • TIMBURBLÓMAKASSAR -25% • BLÓM, TRÉ
OG RUNNAR -30% • FRÆ -40% • REYKOFNAR OG ELDSTÆÐI -30%
GJØCO INNIMÁLNING -25% • VERKFÆRABOX OG -SKÁPAR -30%
JÁRNHILLUR -30% • ÁLTRÖPPUR OG STIGAR -25% • EINHELL
RAFMAGNSVERKFÆRI -25% • HARÐPARKET -20% • LJÓS -25%
PLASTBOX -35% • FERÐAVARA -25% • FERÐATÖSKUR -35%
LEIKFÖNG -35% • KÖRFUBOLTASPJÖLD -30% • POTTAR,
PÖNNUR OG BÚSÁHÖLD -25% • TEXTÍLVÖRUR -25%
BLÁ BOSCH VERKFÆRASETT -25% • COFRA ÖRYGGISSKÓR
OG FATNAÐUR -25% • LOFTASTIGAR -25% • MOTTUR OG
DREGLAR -25% • BAÐFYLGIHLUTIR -25% • SALVIA ESPALE
GIRÐINGAEININGAR -20% • OG MARGT MARGT FLEIRA!
Sjáðu öll
tilboðin á
byko.is
B
ir
t m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
in
ns
lá
tt
ar
-/
pr
en
tv
ill
ur
o
g/
eð
a
m
yn
db
re
ng
l.
Klárum
pallinn!
Fáðu tilboð á byko.is
A
ðalbergur Sveinsson, lög-
reglumaður hjá Lög-
reglunni á höfuðborgar-
svæðinu, vill 1,5 milljónir
króna í skaðabætur ásamt afsök-
unarbeiðni frá Stundinni vegna
fréttaflutnings blaðsins um mál-
efni hans. Þrjár stúlkur stigu fram
í fjölmiðlum og sögðu frá meint-
um kynferðisarbrotum hans gegn
þeim, sem þær kærðu allar til lög-
reglu en Ríkissaksóknari lagði
aldrei fram ákærur vegna málanna.
DV fjallaði um málefni stúlkn-
anna og störf Aðalbergs innan lög-
reglunnar, en hann fékk 32 daga
skilorðsbundinn dóm árið 2005. Í
dómsgögnum ásamt skýrslu innra
eftirlitis lögreglu kom fram að Að-
albergur sagði ekki rétt frá við rann-
sókn málsins.
Samkvæmt frétt Stundarinnar
snýst málið um lagalega skilgrein-
ingu á orðinu naugðun, en Stund-
in birti í upprunarlegu frétt sinni að
hann hafi fengið á sig kæru vegna
nauðgunar. Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson, lögmaður Aðalbergs,
sendi Stundinni bréf þess efnis að
hann vildi 1,5 milljónir króna og
opinberlega afsökunarbeiðni innan
sólahrings frá afhendingu bréfsins.
Segir hann einnig: „Að þeim tíma
liðnum er áskilinn réttur til þess að
höfða dómsmál á hendur þér án
frekari viðvörunar.“ Stundin breytti
orðalaginu úr „nauðgunarkærum“
í „kynferðisbrotakærur“ eftir að
þeim barst bréfið frá Vilhjálmi.
DV hefur ekki fengið nein bréf
frá Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni
vegna umfjöllunar DV um málefni
Aðalbergs Sveinssonar. n
bjartmar@dv.is
Vill 1,5 milljónir í skaðabætur vegna fréttaflutnings