Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 6
6 28. september 2018FRÉTTIR
PIZZERIA
Dalvegi 2, 201 Kópavogi -
Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði
Það er
staðreynd að…
Listamaðurinn Vincent van Gogh seldi
aðeins eitt málverk á meðan hann lifði.
Í rúm 3.500 ár hefur heimsfriður verið á
tæpum 230 árum samanlagt.
Það er ómögulegt að láta lífið með því
að halda niðri í sér andanum.
Meðallíftími drekaflugu er einn
sólarhringur.
Ef þú setur ekki nema smádropa af
áfengi á sporðdreka verður hann
samstundis trylltur og stingur sig að
öllum líkindum til dauða.
É
g er því hugsi yfir því að
óreyndur krakki fái eins tæki
í hendurnar og ég fékk um
15 ára aldur án þess að skrá
það, tryggja eða fá bifhjólaréttindi,
heldur geti bara stokkið af stað. Ég
er líka hugsi yfir því að sama barn
fái ökuréttindi á gangstéttum. Til
dæmis leggur fjöldi eldri borg-
ara leið sína í fyrirtæki mitt og ég
þori vart að hugsa það til enda ef
mótorhjólið hefði skollið á eldri
manneskju. Það er alveg ljóst að
höggið hefði nægt til að senda við-
kvæma til forfeðra sinna,“ segir
Gylfi Gylfason, eigandi Radíó-
búðarinnar í Bæjarlind.
Í vikunni lenti Gylfi í því óhappi,
þegar hann var að yfirgefa verslun
sína, að 13 ára stúlka keyrði hann
um koll á rafmagnsvespu. Að sögn
Gylfa var höggið afar mikið og
taldi hann sig hafi flogið tæpa þrjá
metra við höggið. „Ég átti nú ekki
von á því að vera keyrður niður
hérna beint fyrir utan búðina hjá
mér, ég lenti næstum því fyrir utan
næstu búð við götuna. Stúlkan var
á miklum hraða þegar hún keyrir
á mig. Ég tókst á loft og lenti með
góðum skelli á steinsteypunni,“
segir Gylfi.
Tryggingamálin óljós
Hann telur brýnt að opna um-
ræðuna um þessi farartæki sem
eru orðin algeng á gangstéttum
um allt land. Mörg þeirra geta
náð ansi miklum hraða og sum
vega allt að 100 kíló, án far-
þega. Eins og áður segir var
öku maðurinn sem keyrði Gylfa
um koll var 13 ára gömul stúlka
og var vespan sem hún keyrði
ótryggð að sögn lögreglu. „Það
má einnig nefna að trygginga-
mál þessa búnaðar virðast
óljós og nái heimilistrygging
til slíkra tjóna þá minni ég á að
slík trygging er ekki undir sama
eftirliti og aðrar ökutækja-
tryggingar,“ segir Gylfi.
Að sögn Gylfa eru foreldrar í
mörgum tilfellum ekki mjög vel
upplýstir um þá hættu sem get-
ur fylgt þessum farartækjum.
„Mín skoðun er sú að það hafi
verið gerð alvarleg mistök með
að leyfa allt að 50cc mótorhjól-
um að yfirtaka hér gangstéttir
á þeim forsendum að lág hest-
aflatala setji þessi tæki í sama
flokk og rafvespur. Staðreyndin
er sú að mörg mótorhjól eru
útbúin með innsigli sem gerir
að verkum að tækin ná krafti
skellinaðra þegar það er fjar-
lægt. Út frá því má einnig vera
ljóst að foreldrar eru jafnvel að
leyfa notkun tækja á fölskum
forsendum. Þá er hjálmleysi
orðið ótrúlega algengt og ég hef
orðið miklar áhyggjur af þessu
agaleysi á gangstéttunum. Það
er ekki gæfulegt að krakkar séu
að byrja ökuferilinn utan laga
og reglna,“ segir Gylfi. n
Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
bjartmar@dv.is
„ALVARLEG MISTÖK AÐ LEYFA
ÞESSI TÆKI Á GANGSTÉTTUM"
Mynd: Hanna