Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 8
8 MENNING 28. september 2018 Leitin að klaustrunum. Klaustur­ hald á Íslandi í fimm aldir eftir Steinunni Kristjánsdóttur Leitin að klaustrunum eft- ir Steinunni Kristjánsdóttur er glæsilegt verk þar sem gerð er ítar leg grein fyrir rannsóknum höfundar og aðstoðarmanna hennar á sviði fornleifafræði. Auk lýsinga á vett- vangi er vísað til fjölda tiltækra heimilda. Bókin er skrifuð á skýru og aðgengilegu máli og bregður upp lifandi myndum, bæði af sögu klausturhalds á Íslandi og af starfi forn- leifafræðinga. Mjög er vandað til útgáfunnar sem prýdd er fjölda mynda, teikninga og korta. Útgef- andi: Sögufélag, í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands. Litbrigði húsanna. Saga Minjaverndar og endurgerðra bygginga um allt land eftir Guðjón Friðriksson. Í Litbrigðum húsanna rekur Guð- jón Friðriksson sögu Minjavernd- ar og ítarlega sögu marga þekktra húsa á Íslandi, íbúasögu þeirra, hnignunarsögu, baráttu fyrir verndun þeirra og loks endur- gerð. Litbrigði húsanna er ekki einungis saga um byggingar, held- ur einnig saga um samfélag og fólkið sem byggir það. Verkið er ákaflega fallegur gripur og munar þar ekki síst um þátt Snorra Freys Hilmarssonar sem annast mynda- val en bókin er prýdd fjölmörgum ljósmyndum og teikningum sem ásamt texta Guðjóns gera sögu húsanna lifandi og spennandi. Út- gefandi: Mál og menning. Pipraðir páfuglar eftir Sverri Tómasson Í Pipruðum páfuglum fjallar Sverrir Tómasson á fróðlegan og glettinn hátt um mataræði, borðsiði og eldamennsku Ís- lendinga á miðöldum, eins og slíku er lýst í miðaldahandritum. Byggt er á fjölmörgum heimild- um, bæði frumheimildum og síð- ari tíma fræðiritum og höfundur eykur mjög skemmtigildi bókar- innar með vísunum í bókmennta- texta og þjóðsögur. Pipraðir pá- fuglar er fallega hönnuð bók með fjölda litprentaðra mynda úr miðaldahandritum og rúsínan í pylsuendanum eru 23 uppskrift- ir af herramannsmat frá Reykhól- um. Útgefandi: Hið íslenska bók- menntafélag. Sjálfstætt fólk. Vistarband og íslenskt samfélag á 19. öld eftir Vilhelm Vilhelmsson Sjálfstætt fólk er fróðlegt og að- gengilegt verk um vistarbandið og líf alþýðunnar á 19. öld. Höfund- urinn Vilhelm Vilhelmsson setur margslungið samband undir- sáta og yfirboðara, andóf, átök og möguleika í fræðilegt sam- hengi. Hann varpar nýju og nokk- uð bjartara ljósi á vistarbandið og sýnir fram á hvernig það þjónaði margvíslegum samfélagslegum tilgangi og var hluti af menningu og stjórnskipulagi Norður-Evrópu. Víða er leitað fanga í þessu viða- mikla verki og útgáfan öll hin vandaðasta. Útgefandi: Sögufélag. Svo veistu að þú varst ekki hér. Hinsegin sagnfræði og hinsegin saga á Íslandi, ritstj. Íris Ellenberger, Ásta Kristín Benediktsdóttir og Hafdís Erla Hafsteinsdóttir Svo veistu að þú varst ekki hér er fræðirit um sögu hinsegin fólks á Íslandi, hið fyrsta sinnar tegund- ar og er því um tímamótaverk að ræða. Í bókinni er að finna sex ritrýndar greinar eftir jafn- marga höfunda sem hver á sinn hátt varpar ljósi á sögu hinsegin fólks, orðræðu um hinsegin fólk og hinsegin fræði sem nálgun á sögu og samfélag. Verkið er þarft og mikilvægt innlegg í umræðu samtímans. Auk ritstjóranna eiga Þorsteinn Vilhjálmsson, Þorvald- ur Kristinsson og Kristín Svava Tómasdóttir greinar í bókinni. Út- gefandi: Sögufélag. Í dómnefndinni voru: Árni Matthíasson, Hildigunnur Þráinsdóttir og Soffía Auður Birgisdóttir Betri Svefn TILNEFNINGAR TIL MENNINGARVERÐLAUNA DV 2017 M enningarverðlaun DV fyrir árið 2017 verða af- hent við hátíðlega athöfn föstudaginn 5. október í nýjum og glæsilegum höfuðstöðv- um DV að Suðurlandsbraut 14. Í ár verða veitt verðlaun í sjö flokkum; kvikmyndum, leiklist, tónlist, bók- menntum, fræðum og stafrænni miðlun auk þess sem veitt eru sér- stök heiðursverðlaun. Þá verða lesendaverðlaun dv.is veitt en þar munu lesendur dv.is fá tækifæri til þess að kjósa það verk, listamann eða höfund sem þeim líst best á. Þriðjudaginn 2. október hefst netkosning á dv.is sem stend- ur til miðnættis 4. október. Sú til- nefning sem hlýtur flest atkvæði í netkosningunni hreppir lesenda- verðlaun dv.is. Hér má sjá allar tilnefningarnar og skipan dómnefnda í tveimur flokkum, flokki fræðirita og leik- list. Á næstu dögum verða birt á vef dv.is tilnefningar í öllum þeim flokkum sem veitt verða verðlaun fyrir. Fræðirit Steinunn Kristjánsdóttir Hafdís Erla Hafsteinsdóttir Ásta Kristín Benediktsdóttir Brynhildur Guðjónsdóttir Vilhelm Vilhelmsson Guðjón Friðriksson Sverrir Tómasson Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.