Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Page 31
Íslensk framleiðsla 28. september 2018 KYNNINGARBLAÐ
1000 ÁRA SVEITAÞORP:
Ferskar kartöflur í
umhverfisvænum umbúðum
Þetta er óneitanlega hugsjón enda er ekki nóg að hafa bara plastlausan september. Við
þurfum að gera meira, gera allt
sem við getum til að minnka notk-
un á einnota plastumbúðum,“ segir
Ársæll Markússon, eigandi fyrirtæk-
isins 1000 ára sveitaþorp sem selur
ferskar kartöflur í umhverfisvænum
pappírsumbúðum.
„Ég er búinn að vera í kartöflum frá
því ég var pínulítill patti og í gegnum
tíðina hef ég séð hvað plastnotkun
hefur aukist gríðarlega. Ég spurði
sjálfan mig hvernig gæti ég breytt
nærumhverfi mínu til að sporna við
þessu og svarið var sérvaldar og
handpakkaðar kartöflur í fallegum,
umhverfisvænum umbúðum,“ segir
Ársæll.
Kalla má 1000 ára sveitaþorp
fjölskyldufyrirtæki en Ársæll, sem
er alinn upp við kartöfluræktun í
Þykkvabænum, starfar einn í fyrir-
tækinu en nýtur aðstoðar foreldra
sinna sem eru gamalgrónir kartöflu-
ræktendur. Ársæll er 32 ára gamall,
menntaður matreiðslumaður og
hefur starfað í Bandaríkjunum, Frakk-
landi og Danmörku.
„Síðan kom ég heim og þá var gott
að leita aftur til upprunans, komast
með hendurnar aftur í jörðina, í gróð-
urmoldina,“ segir Ársæll, en fyrirtækið
var í raun stofnað utan um nýja kjöt-
afurð sem Ársæll hefur þróað og ber
heitið Skræður. Skræðurnar koma á
markaðinn síðar í haust og segjum við
þá betur frá þeim.
Kartöflurnar í umhverfisvænu
pappírsumbúðunum frá 1000 ára
sveitaþorpi eru til sölu í verslunum
Krónunnar, Melabúðinni og Nóatúns.
„Vonandi fylgja aðrar búðir þeirra
fordæmi. Því fólk verður að hafa
val í sínu nærumhverfi til jákvæðra
breytinga,“ segir Ársæll að lokum. Þeir
sem kaupa þær fá góðar og ferskar
kartöflur um leið og þeir stuðla að
minni plastnotkun á Íslandi.