Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 62
62 SPORT 28. sept 2018 H eimur fótboltans getur verið grimmur, smáat- riði og heppni geta skipt sköpum ef þú ætlar að ná alla leið. Ungir drengir, sem eiga sér þann draum að ná langt, missa hann oft fljótt úr höndum sér. Meiðsli, rangar ákvarðanir og fleira getur leik- ið þar stórt hlutverk. DV fékk til liðs við sig nokkra álitsgjafa til að skoða hvaða íslenskir leik- menn hefðu átt að ná miklu lengra en raun bar vitni, leik- menn sem höfðu allt til þess að ná langt. Um er að ræða leik- menn sem sköruðu fram úr mjög ungir að árum og mikið var látið með. Listinn gæti verið lengri en ákveðið var að skera niður við níu nöfn. BARNASTJÖRNUR SEM NÁÐU EKKI AÐ UPPLIFA DRAUMINN n Heimur fótboltans getur verið grimmur n Meiðsli verða oft til þess að draumurinn rætist ekki Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Við gömlu höfnina EILÍF HAMINGJA GRILLAÐ ÞORSKSPJÓT, HUMARSÚPA & BRAUÐ HÁDEGIS TILBOÐ VIRKA DAGA 2.850 Viktor Unnar Illugason Meiðsli á meiðsli ofan hafa einkennt feril Viktors Unnars Illugasonar sem var á sín- um ein mesta vonarstjarna sem íslenskur fótbolti hafði séð. Hann var keyptur 16 ára gamall til Reading og það var slegist um hann, stórlið um alla Evrópu vildu fá Viktor. Sú saga er sögð að Reading, sem á svipuðum tíma fékk Gylfa Þór Sigurðsson, hafi lagt mesta áherslu á að fá Viktor og þá rekið augun í Gylfa, sem gæti náð langt. Hjá Reading töldu allir öruggt að Viktor gæti orðið næsta stjarna liðsins. Alvarleg bakmeiðsli gerðu Viktori erfitt fyrir hjá félaginu, hann komst aldrei inn í aðalliðið. Hann kom heim til Íslands árið 2008 og gekk í raðir Vals. Síðan hann kom heim hafa meiðsli plagað hann og orðið til þess að hann hefur leikið í neðri deildum síðustu ár. Hann lék með Kórdrengjum í sumar en liðið komst upp úr neðstu deildarkeppni KSÍ. Átti að verða íslenski Alan Smith Sigurður Donys Sigurðsson Kraftur, snerpa, úthald og elding. Svona væri hægt að lýsa því hvernig Sigurður Donys frá Austurlandi hafi verið á sínum yngri árum sem knattspyrnumaður. Sjaldan hefur ungur drengur vakið jafn mikla athygli á Íslandi. Newcastle, Manchester United og Middlesbrough höfðu öll sýnt Sigurði áhuga og fylgst með framgangi hans. Hann fór ungur að árum frá Einherja, uppeldisfélagi sínu, í Þór á Akureyri en náði aldrei flugi þar. Hann hefur stundum prófað að vera í öðru liði en Einherja en hugurinn leitar alltaf heim. Átti að verða íslenski Diego Maradona Hjálmar Þórarinsson Hjálmar byrjaði að vekja athygli fyrir frammistöðu sína með Þrótti 16 ára gamall árið 2002. Þar var á ferð öflugur framherji, klókari en flestir, sterkur og nokkuð áræðinn. Skoska stórliðið Hearts ákvað að festa kaup á Hjálmari en þar fékk hann lítil tækifæri. Eftir tæp þrjú ár í Skotlandi kom Hjálmar heim, árið 2007, og lék með Fram árið 2011. Síðan þá lék hann aðeins í neðri deildum. Það var árið 2014 sem Hjálmar opnaði sig um geðræn vandmál sín og skrifaði um það pistil. ,,Þunglyndi er ógeðslegt og ég óska ekki mínum versta óvini að ganga í gegnum það sem ég hef á síðustu þremur árum. Orsakirnar eru alls konar og úrræðin álíka flókin. Sum úrræði hjálpa manni mikið, önn- ur ekki svo mikið og mikill munur getur verið á milli alvarleika og mismunandi „útfærslum“ einkenna milli einstak- linga,“ skrifaði Hjálmar meðal annars. Átti að verða íslenski Robbie Fowler Ingólfur Sigurðsson Gæti enn orðið frábær spilari í efstu deild á Íslandi en Ingólfur fór mjög ungur að vekja athygli erlendra liða. Það var árið 2008, þegar Ingólfur var 15 ára gamall, sem hann gekk í raðir Heerenveen í Hollandi. Hann vakti athygli þar og margir héldu að þarna væri næsta stjarna hollenska fótboltans. Hann fór hins vegar að finna fyrir andlegum veikindum sem hann hefur svo rætt opinskátt í seinni tíð, Ingólfur kom heim árið 2009 og fór í KR en ári síðar var hann aft- ur farinn í hollenska félagið. Stoppið var stutt og síðan þá hefur Ingólfur spilað á Ís- landi. Hann lék í sumar í næstefstu deild en á sér þann draum að finna sig í Pepsi-deildinni á nýjan leik. Átti að verða íslenski Cristiano Ronaldo Björn Jónsson Hætti í fótbolta sumarið 2014 eftir aðeins einn leik með Kára í neðri deildum. Það heyrðu flestir talað um Björn Jónsson af Akranesi í kringum 2000 og í nokkur ár þar á eftir. Hann hætti hins vegar í fótbolta aðeins 24 ára gamall. Ungur að árum hélt Björn til hollenska félagsins Heerenveen, hann var hjá félaginu í nokkur ár en kom til Íslands árið 2011 og gekk í raðir KR. Þar náði hann aldrei neinu flugi vegna meiðsla. Björn gafst að lokum upp á fótboltanum, var með ótrúlega hæfileika til að vera í fremstu röð. Átti að verða íslenski Cristiano Ronaldo Rannver Sigurjónsson Rannver er eitt mesta efni sem Breiðablik, þar sem besta unglingastarf landsins fer fram, hefur séð. Ótrúlegur styrkur og hraði varð fljótt vopn sem fáir réðu við í fari Rannvers, hann var 17 ára gamall byrjaður að láta til sín taka í Kópavoginum. Hann og allir aðrir bjuggust við því að atvinnumennskan kæmi, það var ekki spurning um hvort, heldur hvenær. Hann lék í nokkur ár í Kópavoginum en fór síðan í önnur lið og hætti loks sumarið 2013, þá 29 ára gamall. Átti að verða íslenski Michael Owen Þórarinn Kristjánsson Bjargvætturinn, Þórarinn Brynjar Krist- jánsson úr Keflavík var 16 ára byrjaður að láta til sín taka. Eins og svo margir sem eiga að eiga glæsta framtíð fyrir sér, þá voru það meiðsli sem urðu til þess að Þórarinn náði ekki að gera neitt merkilegt úr ferli sínum. Hann lék með Keflavík stærstan hluta ferilsins og var oft öflugur, miðað við byrjunina á ferli hans og hæfileika þá hefði Þórarinn átt að ná miklu lengra en að vera á Íslandi í stundum ekkert alltof góðu formi. Átti að verða íslenski Dennis Bergkamp Björn Orri Hermannsson Nautið úr Árbænum var maður sem flestir töldu að myndi leika fjölda A-landsleikja í hjarta varnarinnar. Hann virtist hafa allan pakkann, 16 ára gamall var hann keyptur til Ipswich á Englandi en draumurinn rættist aldrei þar. Björn kom heim 18 ára gamall, árið 2007, en meiðsli urðu til þess að ferill hans komst aldrei af stað. Björn lék með yngri landsliðum Íslands og hefði með smá heppni getað náð mjög langt. Átti að verða íslenski Tony Adams Sigmundur Kristjánsson „Simmi Kristjáns, hann á eftir að verða stjarna,“ mátti oft heyra á völlum landsins í kringum 2000. Þá var Sigmundur farinn að vekja áhuga erlendra lið og árið 2001 samdi hann við Utrecht í Hollandi. Hann stoppaði ekki lengi þar og kom heim skömmu síðar. Meiðsli höfðu mikið að segja í því að Sigmundur náði aldrei að hámarka það úr ferlinum sem var mögulegt. Hann átti góð ár í KR frá 2005 til 2007. Sigmund- ur lék oftast sem kantmaður en hann var klókari en flestir og með hraða og styrk. Átti að verða íslenski David Beckham
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.