Fréttablaðið - 28.12.2018, Page 13

Fréttablaðið - 28.12.2018, Page 13
hefur verið opnuð af mér í Domus Medica, Egilsgötu, Reykjavík. Tek að mér öll hefðbundin verk öldrunarlæknis, þar á meðal minnisuppvinnslu, mat á endurhæfingaþörf, vistunarþörf ásamt allri nauðsynlegri eftirfylgni, auk annarra hefðbundinna starfa öldrunarlæknis. Tímapantanir Domus Medica sími: 563 1000. Kristmundur Ásmundsson Öldrunarlæknir. LÆKNINGASTOFA Í ÖLDRUNARLÆKNINGUM DOMUS MEDICA EGILSGÖTU 3 • 101 REYKJAVÍK • SÍMI 563 1000 • domusmedica.is Léttir á verknum H V ´ÍT A H Ú S IÐ / A ct av is 8 10 13 2 Paratabs 500 mg lmuhúðaðar töur, innihalda parasetamól sem tilheyrir okki lya sem kallast verkjalyf. Paratabs er notað gegn vægum til miðlungi miklum verkjum og til að lækka hita. Töuna skal gleypa með glasi af vatni. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyð á www.serlyaskra.is. www.apotekarinn.is - lægra verð Eftir því sem lífsgæðunum fleygir fram breytast áhyggjur mannanna og metnaður. Fyrir örfáum kynslóðum höfðu for- eldrar áhyggjur af því hvort börnin þeirra lifðu bernskuna af. Svo fóru foreldrar að hafa áhyggjur af því hvort börnin hefðu nóg að borða, því næst að þau slösuðu sig—næsta kynslóð vildi forða börnunum frá því að meiða sig, sú þar næsta hafði áhyggjur af því að börn yrðu fyrir óþægindum—og nú til dags hafa foreldrar einna mestar áhyggjur af því að börnunum þeirra leiðist. Auðvitað eru enn til ýmis alvöru- vandamál; fátækt og átakanlegur heilsubrestur hrjáir enn of marga. En flest njótum við í þessum heims- hluta þeirra fáheyrðu forréttinda að áhyggjuefnin eru af léttvægari gerð- inni. Þessi staðreynd endurspeglar góða og jákvæða þróun, þrátt fyrir alla rómantík um fortíðina þá vill enginn snúa aftur til þeirra tíma þegar barnadauði var mikill, vinna flestra erfið og slítandi og fólk þurfti að líða ýmiss konar skort á raun- verulegum lífsnauðsynjum. Hvað þá að við vildum kalla yfir okkur hörmungar, stríð eða eldgos, til þess eins að vekja upp í okkur dyggðir, eins og hugrekki og fórnfýsi. Þær ágætu dyggðir eru nefnilega þess eðlis að þegar velmegun og öryggi ríkja reynir lítið á þær. Gallinn er hins vegar sá að það er erfitt að vita hvort þær séu enn til staðar þegar maður telur sig lítið þurfa á þeim að halda. Metnaðarlaust áramótaheit Allsnægtirnar eru nefnilega ekki líklegar til þess að draga fram það allra besta í fari okkar. Og það vita allir þeir sem rannsakað hafa hamingjuna að því fer víðs fjarri að hún felist í innantómri vellíðan eða lífsnautnum. Sumir virðast meira að segja hafa komist að þeirri niðurstöðu að það séu einmitt þessar gömlu dyggðir—eins og hug- rekki og fórnfýsi—sem líklegastar eru til þess að gera menn raun- verulega sátta við tilveruna. Og að það sé jafnvel þess virði að þjálfa upp í sér getuna til þess að umbera skort og óþægindi—svo maður sé óhræddur við að glata einhverju af þeim munaði sem einkennir líf okkar flestra. Það er ýmist meðvitað eða ómeð- vitað sem áramótaheit fela einmitt gjarnan í sér að gefa upp á bátinn einhvern óþarfan lúxus; eða að fara út fyrir þægindarammann með einum eða öðrum hætti. Innst inni vitum við að við höfum gott af því. Líklega er metnaðarminnsta ára- mótheit sem ég man eftir það sem skólabróðir minn strengdi skömmu fyrir aldamót. Það fólst nánast áþreifanleg fegurð í því að líf þessa unga manns virtist svo áreynslu- laust að honum kom ekkert betra til hugar en að strengja þess heit að halda sig við sömu tegundina af sígarettum út næsta ár. Það eykur enn á sjarmann yfir þessari minningu að jafnvel þrátt fyrir hið yfirþyrmandi metnaðarleysi í heitstrengingunum þá má bóka að allt hafi verið margsvikið, yfir- gefið, gleymt og grafið löngu fyrir þrettándann. Þótt áramótaheitið metnaðar- lausa hafi ekki verið sett fram í fullri alvöru þá fólst mikill sannleikur í því að skólabróðir minn hafði um þær mundir ekki áhuga á að leggja á sig meira erfiði eða óþægindi. Heiður eða þægindi En það er hollt að hugsa til þess að þegar mikið liggur við þá er óhjákvæmilegt að komast að því hvort hugrekkisvöðvinn í sálinni sé slappur eða sterkur. Í söngleiknum Söngvaseiði (Sound of Music) segir frá von Trapp fjölskyldunni austurrísku og nunnunni Maríu sem er send að herragarði höfuðs- manns til að hugsa um börnin hans sjö. Kvikmyndin er skemmtileg en undirtónninn grafalvarlegur. Söngvaseiður fjallar nefnilega um hugrekki. Nunnan María þarf að sigrast á ótta sínum og kvíða þegar hún er send til þess að gæta hinna óstýri- látu barna höfuðsmannsins, og hún þarf að sýna hugrekki þegar hún óhlýðnast valdboði hans ítrekað í þágu barnanna. Þau sýna bæði hug- rekki í ástinni sem blómstrar á milli þeirra. En umfram allt sýna þau hugrekki andspænis þeim ægilega veruleika sem heltók Austurríki á þeim tíma sem sagan gerist. Þýskir nasistar og austurrískir fylgismenn þeirra undirbjuggu jarðveginn fyrir sameiningu ríkjanna tveggja undir hakakrossinum. Höfuðsmaðurinn von Trapp vill ekkert með nasista hafa og segir það hverjum sem heyra vill og rífur sundur fána þriðja ríkisins sem hafinn hafði verið á loft yfir heimili hans. Þegar hann fær svo fyrirskipun frá Berlín um að honum beri að fara til Bremerhaven og taka við stjórn flota í þýska hernum þá reynir á. Að hafna herkvaðn- ingunni fæli í sér dauðadóm yfir honum sjálfum og fjölskyldunni. En að taka boðinu var í huga höfuðs- mannsins einfaldlega óhugsandi. Von Trapp fjöskyldan yfirgaf því ríkmannlegt líf sitt, öll þægindi og lífsgæði og flúði brosandi og alls- laus á fæti yfir Alpana, til þess eins að höfuðsmaðurinn gæti haldið heiðri sínum. Þau vissu öll að sársaukinn var þess virði. Út fyrir þægindarammann Við komumst ekki hjá því í lífinu að mæta erfiðleikum. Jafnvel í velmeg- un nútímans mætum við sársauka, sjúkdómum, sorg og dauða. Allir þessir óhjákvæmilegu erfiðleikar lífsins verða þó bærilegri þeim sem hafa til að bera hugrekki, þeim sem ekki bugast heldur berjast. Við notum oft áramótin til að hugsa um hvernig við getum gert líf okkar betra og einfaldara. Það er stórgóð hefð. Allt sem felur í sér fórn, óþægindi eða skort krefst hugrekkis. Hvort sem það er að hætta að reykja eða drekka, hreyfa sig meira, eyða minni peningum eða borða hollara; það er ekki bara sjálfsaginn, heldur hugrekkið sem kemur manni í gegnum erfiðustu skaflana. Áramótaheitin þurfa kannski ekki að umbylta lífi manns, en það er gott að hugsa til þess að þegar maður stígur viljandi ögn út fyrir þægindarammann þá er maður líka að þjálfa sig til þess að þola betur ágjafir og áföll; verða sterkari og gagnlegri öllum þeim sem á mann treysta. Klíf í brattann Í DAG Þórlindur Kjartansson Áramótaheitin þurfa kannski ekki að umbylta lífi manns, en það er gott að hugsa til þess að þegar maður stígur viljandi ögn út fyrir þægindarammann þá er maður líka að þjálfa sig til þess að þola betur ágjafir og áföll; verða sterkari og gagn- legri öllum þeim sem á mann treysta. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13F Ö S T U D A G U R 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 8 2 8 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 3 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 E 9 -3 8 3 4 2 1 E 9 -3 6 F 8 2 1 E 9 -3 5 B C 2 1 E 9 -3 4 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.