Fréttablaðið - 28.12.2018, Síða 13
hefur verið opnuð af mér í Domus Medica,
Egilsgötu, Reykjavík.
Tek að mér öll hefðbundin verk öldrunarlæknis, þar á meðal
minnisuppvinnslu, mat á endurhæfingaþörf, vistunarþörf
ásamt allri nauðsynlegri eftirfylgni, auk annarra hefðbundinna
starfa öldrunarlæknis.
Tímapantanir Domus Medica
sími: 563 1000.
Kristmundur Ásmundsson
Öldrunarlæknir.
LÆKNINGASTOFA Í
ÖLDRUNARLÆKNINGUM
DOMUS MEDICA
EGILSGÖTU 3 • 101 REYKJAVÍK • SÍMI 563 1000 • domusmedica.is
Léttir á verknum
H
V
´ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
is
8
10
13
2
Paratabs 500 mg lmuhúðaðar töur, innihalda parasetamól sem tilheyrir okki lya sem kallast verkjalyf.
Paratabs er notað gegn vægum til miðlungi miklum verkjum og til að lækka hita. Töuna skal gleypa með glasi
af vatni. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyð á www.serlyaskra.is.
www.apotekarinn.is
- lægra verð
Eftir því sem lífsgæðunum fleygir fram breytast áhyggjur mannanna og metnaður. Fyrir
örfáum kynslóðum höfðu for-
eldrar áhyggjur af því hvort börnin
þeirra lifðu bernskuna af. Svo fóru
foreldrar að hafa áhyggjur af því
hvort börnin hefðu nóg að borða,
því næst að þau slösuðu sig—næsta
kynslóð vildi forða börnunum frá
því að meiða sig, sú þar næsta hafði
áhyggjur af því að börn yrðu fyrir
óþægindum—og nú til dags hafa
foreldrar einna mestar áhyggjur af
því að börnunum þeirra leiðist.
Auðvitað eru enn til ýmis alvöru-
vandamál; fátækt og átakanlegur
heilsubrestur hrjáir enn of marga.
En flest njótum við í þessum heims-
hluta þeirra fáheyrðu forréttinda að
áhyggjuefnin eru af léttvægari gerð-
inni. Þessi staðreynd endurspeglar
góða og jákvæða þróun, þrátt fyrir
alla rómantík um fortíðina þá vill
enginn snúa aftur til þeirra tíma
þegar barnadauði var mikill, vinna
flestra erfið og slítandi og fólk þurfti
að líða ýmiss konar skort á raun-
verulegum lífsnauðsynjum. Hvað
þá að við vildum kalla yfir okkur
hörmungar, stríð eða eldgos, til þess
eins að vekja upp í okkur dyggðir,
eins og hugrekki og fórnfýsi. Þær
ágætu dyggðir eru nefnilega þess
eðlis að þegar velmegun og öryggi
ríkja reynir lítið á þær. Gallinn er
hins vegar sá að það er erfitt að vita
hvort þær séu enn til staðar þegar
maður telur sig lítið þurfa á þeim
að halda.
Metnaðarlaust áramótaheit
Allsnægtirnar eru nefnilega ekki
líklegar til þess að draga fram það
allra besta í fari okkar. Og það
vita allir þeir sem rannsakað hafa
hamingjuna að því fer víðs fjarri
að hún felist í innantómri vellíðan
eða lífsnautnum. Sumir virðast
meira að segja hafa komist að þeirri
niðurstöðu að það séu einmitt
þessar gömlu dyggðir—eins og hug-
rekki og fórnfýsi—sem líklegastar
eru til þess að gera menn raun-
verulega sátta við tilveruna. Og að
það sé jafnvel þess virði að þjálfa
upp í sér getuna til þess að umbera
skort og óþægindi—svo maður sé
óhræddur við að glata einhverju
af þeim munaði sem einkennir líf
okkar flestra.
Það er ýmist meðvitað eða ómeð-
vitað sem áramótaheit fela einmitt
gjarnan í sér að gefa upp á bátinn
einhvern óþarfan lúxus; eða að fara
út fyrir þægindarammann með
einum eða öðrum hætti. Innst inni
vitum við að við höfum gott af því.
Líklega er metnaðarminnsta ára-
mótheit sem ég man eftir það sem
skólabróðir minn strengdi skömmu
fyrir aldamót. Það fólst nánast
áþreifanleg fegurð í því að líf þessa
unga manns virtist svo áreynslu-
laust að honum kom ekkert betra
til hugar en að strengja þess heit
að halda sig við sömu tegundina
af sígarettum út næsta ár. Það
eykur enn á sjarmann yfir þessari
minningu að jafnvel þrátt fyrir
hið yfirþyrmandi metnaðarleysi
í heitstrengingunum þá má bóka
að allt hafi verið margsvikið, yfir-
gefið, gleymt og grafið löngu fyrir
þrettándann.
Þótt áramótaheitið metnaðar-
lausa hafi ekki verið sett fram í fullri
alvöru þá fólst mikill sannleikur í
því að skólabróðir minn hafði um
þær mundir ekki áhuga á að leggja á
sig meira erfiði eða óþægindi.
Heiður eða þægindi
En það er hollt að hugsa til þess
að þegar mikið liggur við þá er
óhjákvæmilegt að komast að því
hvort hugrekkisvöðvinn í sálinni sé
slappur eða sterkur. Í söngleiknum
Söngvaseiði (Sound of Music)
segir frá von Trapp fjölskyldunni
austurrísku og nunnunni Maríu
sem er send að herragarði höfuðs-
manns til að hugsa um börnin hans
sjö. Kvikmyndin er skemmtileg
en undirtónninn grafalvarlegur.
Söngvaseiður fjallar nefnilega um
hugrekki.
Nunnan María þarf að sigrast á
ótta sínum og kvíða þegar hún er
send til þess að gæta hinna óstýri-
látu barna höfuðsmannsins, og hún
þarf að sýna hugrekki þegar hún
óhlýðnast valdboði hans ítrekað í
þágu barnanna. Þau sýna bæði hug-
rekki í ástinni sem blómstrar á milli
þeirra. En umfram allt sýna þau
hugrekki andspænis þeim ægilega
veruleika sem heltók Austurríki á
þeim tíma sem sagan gerist. Þýskir
nasistar og austurrískir fylgismenn
þeirra undirbjuggu jarðveginn fyrir
sameiningu ríkjanna tveggja undir
hakakrossinum.
Höfuðsmaðurinn von Trapp vill
ekkert með nasista hafa og segir
það hverjum sem heyra vill og
rífur sundur fána þriðja ríkisins
sem hafinn hafði verið á loft yfir
heimili hans. Þegar hann fær svo
fyrirskipun frá Berlín um að honum
beri að fara til Bremerhaven og
taka við stjórn flota í þýska hernum
þá reynir á. Að hafna herkvaðn-
ingunni fæli í sér dauðadóm yfir
honum sjálfum og fjölskyldunni. En
að taka boðinu var í huga höfuðs-
mannsins einfaldlega óhugsandi.
Von Trapp fjöskyldan yfirgaf því
ríkmannlegt líf sitt, öll þægindi og
lífsgæði og flúði brosandi og alls-
laus á fæti yfir Alpana, til þess eins
að höfuðsmaðurinn gæti haldið
heiðri sínum. Þau vissu öll að
sársaukinn var þess virði.
Út fyrir þægindarammann
Við komumst ekki hjá því í lífinu að
mæta erfiðleikum. Jafnvel í velmeg-
un nútímans mætum við sársauka,
sjúkdómum, sorg og dauða. Allir
þessir óhjákvæmilegu erfiðleikar
lífsins verða þó bærilegri þeim sem
hafa til að bera hugrekki, þeim sem
ekki bugast heldur berjast.
Við notum oft áramótin til að
hugsa um hvernig við getum gert
líf okkar betra og einfaldara. Það
er stórgóð hefð. Allt sem felur í sér
fórn, óþægindi eða skort krefst
hugrekkis. Hvort sem það er að
hætta að reykja eða drekka, hreyfa
sig meira, eyða minni peningum
eða borða hollara; það er ekki bara
sjálfsaginn, heldur hugrekkið sem
kemur manni í gegnum erfiðustu
skaflana.
Áramótaheitin þurfa kannski
ekki að umbylta lífi manns, en það
er gott að hugsa til þess að þegar
maður stígur viljandi ögn út fyrir
þægindarammann þá er maður líka
að þjálfa sig til þess að þola betur
ágjafir og áföll; verða sterkari og
gagnlegri öllum þeim sem á mann
treysta.
Klíf í brattann
Í DAG
Þórlindur
Kjartansson
Áramótaheitin þurfa
kannski ekki að umbylta
lífi manns, en það er gott
að hugsa til þess að þegar
maður stígur viljandi ögn út
fyrir þægindarammann þá
er maður líka að þjálfa sig til
þess að þola betur ágjafir og
áföll; verða sterkari og gagn-
legri öllum þeim sem á mann
treysta.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13F Ö S T U D A G U R 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 8
2
8
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
E
9
-3
8
3
4
2
1
E
9
-3
6
F
8
2
1
E
9
-3
5
B
C
2
1
E
9
-3
4
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K