Fréttablaðið - 15.12.2018, Síða 4

Fréttablaðið - 15.12.2018, Síða 4
Veður Suðaustan 10-15 og víða vætusamt í dag, en áfram hægara og þurrviðri á Norðurlandi. Hiti 2 til 7 stig. sjá síðu 62 Sundlaugarpartí Heimilisfólk á Hrafnistu í Hafnarfirði skemmti sér konunglega í gær við serrí- drykkju og konfektát og leiki í sundlaug hjúkrunarheimilisins. Fréttablaðið/Eyþór sAMGÖNGuMáL „Ungir ökumenn eru í rauninni sá hópur sem er að skera sig úr með sinni góðu hegðun. Þau hafa kannski bara aldrei staðið sig jafn vel og núna,“ segir Þórhildur Elín Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu, en á undanförnum árum hefur dregið úr umferðar- slysum sem ungir ökumenn eiga aðild að. Samkvæmt tölum Samgöngu- stofu, sem ná til fyrstu átta mánaða ársins, hafa orðið 107 umferðar- slys sem ungir ökumenn eiga aðild að. Er þar um að ræða ökumenn á aldrinum 17-20 ára. Hafa þessi slys aðeins einu sinni verið færri á sama tíma frá árinu 2002 en fyrstu átta mánuði síðasta árs voru þau 113 og 137 árið áður. Hið sama er uppi á teningnum þegar horft er á alvarleg umferðar- slys. Þau voru 12 fyrstu átta mánuði ársins en 19 bæði í fyrra og hittið- fyrra. Umferðarslysum þar sem ungir ökumenn eiga í hlut hefur fækkað umtalsvert frá 2007 og 2008 þegar fjöldi þeirra náði hámarki. Fyrstu átta mánuði þeirra ára voru slysin um 250 talsins. Að sögn Þórhildar má rekja þennan árangur til nokkurra þátta. „Það var gerð breyting á ökunáminu 2010 sem hafði strax merkjanleg áhrif í fækkun slysa hjá ungum öku- mönnum. Námið var gert ítarlegra þar sem Ökuskóla 3 var bætt við.“ Annar stór þáttur séu breytingar sem gerðar voru á punktakerfinu 2007. „Það ár var svolítill hápunktur í fjölda slysa. Það var farið í það að nýta punktakerfið skipulega gagn- vart ungum ökumönnum þannig að það varð mjög virk endurgjöf á hegðun í umferðinni.“ Þá skipti miklu máli það fræðslu- og forvarnarstarf sem unnið sé. „Krakkar eru alveg frá leikskólaaldri að fá umferðarfræðslu sem hentar þeirra aldri og þroska. Þessi fræðsla heldur áfram alveg upp í framhalds- skólana.“ Þórhildur telur einnig að samfélagsbreytingar eigi þátt í þess- ari jákvæðu þróun. „Síðast en ekki síst er hægt að nefna ábyrgð foreldra. Samfélagið hefur verið að þróast á þann hátt að foreldrar taka upp til hópa virkari þátt í uppfræðslu barna sinna og hegðun þeirra.“ Það sé merkilegt að þessi þróun eigi sér stað á sama tíma og umferð hafi aukist umtalsvert. „Þessi árang- ur er sérstaklega eftirtektarverður í því ljósi. Þeim er reyndar pínulítið að fækka sem taka bílpróf 17 ára. Við sjáum þá tilhneigingu í útgáfu ökuskírteina. Það er ekki endilega sama ofuráhersla lögð á það að fá bílpróf 17 ára.“ sighvatur@frettabladid.is Ungir ökumenn aldrei staðið sig jafn vel og nú Umferðarslysum sem ungir ökumenn eiga aðild að hefur farið fækkandi undan­ farin ár og miðað við tölur fyrstu átta mánaða ársins heldur sú þróun áfram. Samskiptastjóri Samgöngustofu segir ýmsar ástæður að baki þessari þróun. Umferðarslysum sem ungir ökumenn eiga aðild að hefur farið fækkandi undanfarin ár þrátt fyrir umtalsvert aukna umferð. Fréttablaðið/aNtON briNK Ungir ökumenn eru í rauninni sá hópur sem er að skera sig úr með sinni góðu hegðun. Þau hafa kannski bara aldrei staðið sig jafn vel og núna. Þórhildur Elín Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu 595 1000 GRAN CANARIA60+ ALLT INNIFALIÐ 29. Janúar í 14 nætur Frá kr. 199.995 FARARSTJÓRI: GUNNAR SVANLAUGS viðskipti Bandaríska fjárfestingar- félagið Indigo Partners hyggst fjár- festa fyrir allt að 75 milljónir Banda- ríkjadala, jafnvirði nær 9,4 milljarða króna, í WOW air. „Fjárfestingin er þó háð niður- stöðunni í viðræðunum við skulda- bréfaeigendur WOW air,“ segir í til- kynningu frá WOW. Enn sé unnið að áreiðanleikakönnun. Indigo kaupi hlutabréf í WOW air og sé að skoða að gefa út breytanlegt skuldabréf til WOW. – gar Fjárfest í WOW með fyrirvörum Fleiri myndir af fjörinu á Hrafnistu er að finna á +Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Fréttablaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+Plús verðLAGsMáL Samkvæmt verðlags- vísitölu fyrir neysluútgjöld heimil- anna er Ísland dýrasta landið í Evr- ópu. Niðurstöðurnar eru á vegum Eurostat, Hagstofu Evrópusam- bandsins, og byggja á umfangsmikl- um verðmælingum í 38 löndum. Það er nánast sama hvar borið er niður, Ísland kemur yfirleitt verst út. Eini flokkurinn sem Ísland kemur þokkalega út, í evrópskum samanburði, er sameiginlegur flokkur fyrir rafmagn, eldsneyti og aðra orkugjafa. Þar leikur lágt raf- orkuverð lykilhlutverk. Húsgögn og innréttingar, heim- ilistæki og raftæki eru dýrust á Íslandi. Vöruflutningar eru hvergi dýrari en hér og verðlag á veit- ingastöðum og hótelum er hæst á Íslandi. Aðeins í Noregi er áfengi og tóbak dýrara en hér, en þar munar litlu. Matvara er dýrari í Sviss og Noregi en Ísland er í þriðja sæti. – bg  Ísland dýrasta land í Evrópu svíÞjÓð Dómstóll í Gautaborg úrskurðaði í gær lýðháskólanema á þrítugsaldri í gæsluvarðhald vegna gruns um að hafa undirbúið hryðju- verk í samráði við aðra. Hinn grunaði er ríkisfangslaus Palestínumaður með tengsl við Sýrland og hefur búið á ýmsum stöðum í vesturhluta Svíþjóðar frá 2014. Hann er með bráðabirgða- dvalarleyfi. Sænska öryggislög- reglan handtók manninn snemma á fimmtudagsmorgun. Nokkrir voru þá kallaðir til yfirheyrslu en þeim var sleppt síðar um daginn. Lögreglan fékk tilkynningu frá öðru landi um meintan undirbún- ing að hryðjuverki í Svíþjóð. – ibs Palestínumaður talinn hyggja á hryðjuverk skúli Mogesen, forstjóri WOW air. Fréttablaðið/aNtON briNK 1 5 . d e s e M b e r 2 0 1 8 L A u G A r d A G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð 1 5 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 4 4 s _ P 1 4 1 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 2 8 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 C E -F 4 9 0 2 1 C E -F 3 5 4 2 1 C E -F 2 1 8 2 1 C E -F 0 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 4 4 s _ 1 4 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.