Fréttablaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 28
MMA Sunna Rannveig Davíðsdóttir,
Sunna Tsunami eins og hún er þekkt
í heimi blandaðra bardagalista, er
enn frá vegna meiðsla en vonast til
að geta barist fljótlega á nýju ári. Á
laugardaginn verða sautján mán-
uðir síðan hún barðist síðast þar
sem hún vann þriðja bardaga sinn
á atvinnumannsferlinum í Invicta-
bardagasamtökunum gegn Kelly
D’Angelo.
Hún er ein af fremstu bardaga-
konum landsins en leiðinleg meiðsli
sem tóku sig upp í bardaga hennar
gegn Mallory Martin í fyrra hafa
dregið dilk á eftir sér.
„Þetta eru gömul meiðsli frá bar-
daganum gegn Mallory. Hún er
með mjög harðan haus sem er eins
og veggur og það laskaði höndina
á mér. Eftir þann bardaga fór ég í
myndatökur og þar kom ekkert í
ljós hvað var að hendinni þann-
ig að ég tók strax næsta bardaga
og barðist stuttu síðar gegn Kelly,“
segir Sunna sem átti erfitt með að
æfa fyrir þann bardaga.
„Höndin var nánast ónýt, ég gat
ekki kýlt tveimur vikum fyrir bar-
daga og í öllum myndatökum sást
bara lítið brot en það sást ekki að
ég reif öll liðbönd í þeim hnúa sem
ég nota mest þegar ég kýli. Svo fara
smábein úr liði sem á varla að vera
hægt og það kom ekki í ljós fyrr en
sérstakur handasérfræðingur sá
þetta í samstarfi við röntgenlækni.
Þá sáu þeir loksins hvað hafði farið
úrskeiðis.“
Sunna hefur ekki farið í aðgerð
vegna meiðslanna.
„Rökrétt hefði verið að fara strax
í aðgerð þegar þetta kemur upp en
þetta greindist svo seint og ég var
búin að fara í annan bardaga svo
að það var tvísýnt hvaða árangur
myndi nást með aðgerðinni. Það
hefði tekið sex mánuði í endurhæf-
ingu og svo hefði ég jafnvel þurft að
fara í aðra aðgerð út frá því. Ég hef
farið eftir ráðum hvernig best er að
vinna að endurhæfingu og hef á trú
á hæfni líkamans til að laga þetta.“
Sunna hefur sinnt þjálfun hjá
Mjölni og tekið þátt í daglegu starfi
til að dreifa huganum.
„Þetta hefur verið erfiður tími,
langt tímabil, en það hefur hjálpað
mér mikið að taka þátt í starfi
Mjölnis við að þjálfa. Það hefur
dreift huganum. Erfiðasta við þetta
allt saman er hausinn á manni,
hvort þetta sé varanlegt og vera að
velta framhaldinu fyrir sér. Um tíma
átti ég erfitt með að lyfta vatnsglasi
og prjóna en núna get ég prjónað,
haldið á stórri vatnsflösku og kýlt
hluti þannig að þetta er allt að koma
til,“ sagði Sunna glaðbeitt.
„Höndin er ekki eins og verður
aldrei aftur 100 prósent en ég er
búin að sætta mig við það. Það er
allt á réttri leið og ég sé bjarta tíma
fram undan.“
Búið var að samþykkja bardaga
gegn Jamie Moyle sem átti að fara
fram á laugardaginn en hún þurfti
að hætta við vegna meiðslanna.
„Ég var búin að bóka bardaga
15. desember þar sem ég átti að
mæta Jamie Moyle sem hefði verið
frábær bardagi fyrir mig en ég þurfti
að hætta við vegna meiðslanna.
Hún hefur tvívegis barist í UFC og
þetta hefði verið góður stökkpallur
fyrir minn feril. Ég er enn þá svolítið
að naga mig í handarbökin út af því
að hafa hætt við þann bardaga en
á sama tíma þakklát fyrir að hafa
gefið líkamanum lengri tíma til
endurhæfingar,“ sagði Sunna sem
sinnir endurhæfingunni á stað sem
er henni afar kær.
„Ég ákvað að koma til Taílands til
að hlaða batteríin á sama tíma og
njóta lífsins og æfa á fullu. Hér tók
ég fyrstu bardaga mína og það er
táknrænt að koma hingað aftur með
dóttur mína og við æfum saman. Ég
er að finna aftur eldmóðinn og ég er
alls ekki hætt, þegar ég kem heim þá
set ég allt á fullt og stefni á að berjast
næst í mars.“
kristinnpall@frettabladid.is
Erfiðastur er hausinn á manni
Sunna stefnir á að snúa aftur í búrið í mars á næsta ári. Hún hefur glímt við þrálát meiðsli. Mynd/HallMar Freyr
Sunna Tsunami Davíðs-
dóttir, bardagakona úr
Mjölni, þurfti í haust að
blása af bardaga, sem
átti að fara fram á laugar-
daginn, vegna þrálátra
meiðsla í hendi sem hafa
verið að plaga hana.
Langan tíma tók að
greina meiðslin en hún
er á réttri leið og von-
ast til að komast aftur í
búrið innan skamms.
Um tíma átti ég
erfitt með að lyfta
vatnsglasi og prjóna en í dag
get ég prjónað, lyft vatns-
flösku og kýlt af fullum
krafti.
Sunna Tsunami Davíðsdóttir
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
Golf Atvinnukylfingurinn Guð-
rún Brá Björgvinsdóttir úr Golf-
klúbbnum Leyni hefur leik á
lokaúrtökumótinu fyrir Evrópu-
mótaröðina í Marokkó á sunnu-
daginn. Leiknir verða fimm hring-
ir á Amelkis-golfvellinum í úthverfi
Marrakesh og eru alls 115 kylfingar
skráðir til leiks.
Niðurskurður verður
eftir fjórða hring þar sem
sextíu efstu kylfingarnir
berjast um eitt af efstu
25 sætunum sem veitir
fullan þátttökurétt á
Ev r ó p u m ó t a r ö ð -
inni á næsta ári.
Með Guðrúnu í
ráshóp á sunnu-
daginn eru þær Lauren
Horsford frá Englandi og
hin finnska Niina Liias
og verða þær ræstar
út klukkan 9.40 um
morguninn að staðartíma.
Guðrún Brá sem varð
Íslandsmeistari í högg-
leik í fyrsta sinn fyrr á
þessu ári er að reyna í
annað sinn að komast
inn á Evrópumótaröðina,
sterkustu mótaröð Evr-
ópu. Hún lenti í 53.
sæti á sama tíma
fyrir ári og var sex
höggum frá því
að öðlast þátt-
tökurétt. Þess í
stað keppti hún
á LETA-móta-
röðinni, næst
sterkustu móta-
röð Evrópu á
þessu ári, hennar fyrsta
sem atvinnukylfingur.
Bestum árangri náði
hún undir lok tíma-
bilsins þegar hún deildi
17. sæti í Barcelona eftir að hafa
verið meðal efstu kylfinga fyrir loka-
hringinn.
Takist henni að komast inn á Evr-
ópumótaröðina verða tveir íslenskir
kylfingar á mótaröðinni á næsta ári.
Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, hefur
leikið á mótaröðinni undanfarin
tvö ár með góðum árangri.
Þá verður hún fjórði íslenski kylf-
ingurinn sem kemst á þessa sterk-
ustu mótaröð Evrópu ef henni tekst
að enda meðal 25 efstu kylfinga á
mótinu.
Ólöf María Jónsdóttir úr Keili sem
varð á sínum tíma fjórum sinnum
Íslandsmeistari í höggleik kvenna
varð sú fyrsta til að komast inn á
mótaröðina og lék í tvö ár.
Þá hefur Ólafía Þórunn Kristins-
dóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur
tekið þátt í mótum á Evrópumóta-
röðinni með reglulegu millibili
undanfarin ár. – kpt
Guðrún Brá hefur leik í Marrakesh
HAndbolti Það kemur í ljós í dag
hvaða liði íslenska kvennalandslið-
ið í handbolta mætir í umspilli fyrir
lokakeppni heimsmeistaramótsins
sem fram fer í Japan árið 2019.
Ísland komst áfram á lokastig
undankeppninnar þrátt fyrir að
hafa lent í öðru sæti riðilsins í
Skopje á dögunum en liðið var með
besta árangurinn í öðru sæti riðla-
keppninnar.
Alls verða átján lið í pottinum
þegar dregið verður í París á morgun
og er Ísland í neðri styrkleikaflokki.
Í efri styrkleikaflokki má finna
nágranna okkar frá Danmörku og
Svíþjóð og norsku valkyrjurnar
hans Þóris Hergeirssonar ásamt
Spáni, Þýskalandi, Svartfjallalandi,
Ungverjalandi, Slóveníu og Serbíu.
Leikirnir fara fram í maí og júní
næstkomandi og mun íslenska liðið
byrja á heimavelli. – kpt
Dregið í umspil
fyrir HM í dag
Úr æfingarleik landsliðsins gegn Sví-
þjóð. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Crossfit Björgvin Karl Guðmunds-
son og Sara Sigmundsdóttir eru
bæði í 3. sæti fyrir lokadag Dubai
CrossFit Championship sem fer
fram í Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum þessa dagana.
Sara átti góðan dag í gær þegar
hún lenti í 2. sæti, 4. sæti og 9. sæti
í þrautum dagsins og saxaði með
því á forskot Samantha Briggs sem
leiðir fyrir lokadaginn. Í karlaflokki
var Björgvin í öðru sæti fyrir gær-
daginn en missti Mathew Fraser,
hraustasta mann heims, fram úr sér
snemma í gær.
Björgvin átti góðan dag í gær og
náði best öðru sæti ásamt því að
koma í mark í fimmta og sjötta sæti
en Fraser er kominn með gott for-
skot í efsta sæti. – kpt
Sara og Björgvin
í þriðja sæti
fyrir lokadaginn
1 5 . d e s e M b e r 2 0 1 8 l A U G A r d A G U r26 s p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð
sport
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
C
F
-2
5
F
0
2
1
C
F
-2
4
B
4
2
1
C
F
-2
3
7
8
2
1
C
F
-2
2
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K