Fréttablaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 38
Ég vona því að mynd eins og
Mortal Engines verði ekki dæmd
út frá því að kona leiði hana!“ segir
Hera og hlær. „Reyndar er Hester
með gæja í eftirdragi mestalla
myndina, Tom, svo kannski yrði
hún frekar dæmd fyrir að vera ekki
nógu „hot“! En það væri þá algjör
raunveruleg birtingarmynd ádeilu
Mortal Engines, svo kannski væri
eitthvað fútt í því.“
Töluðu um kindur á Skype
Tökurnar tóku sex mánuði á Nýja-
Sjálandi. Þar hefur samfélagið
dafnað í kringum kvikmyndagerð
Peters Jackson á áþreifanlegan hátt.
Hera sendi prufutöku af sér fyrir
myndina sem hún tók upp á Leifs-
götu. Síðan var hún boðuð í spjall
nokkrum dögum síðar á Skype
með leikstjóranum Christian Rivers,
Peter Jackson, Fran Walsh og Phil-
ippu Boyens sem framleiða einnig
og skrifa handritið með Peter. Í því
spjalli segir Hera að þau hafi mest
rætt um söguþráðinn, karakterinn
og svo kindur. Hvort þær væru fleiri
en íbúar hvors lands fyrir sig. Og þar
með var hlutverkinu landað.
„Það sem stendur upp úr í þessu
öllu er hreinlega reynslan af því að
taka þátt í þessu ferli. Þetta var á
svo stórum skala. En vegna þess hve
indælt samfélag Peter er búinn að
byggja upp í kringum kvikmynda-
gerð sína þá upplifði ég vinnuna
á svipaðan hátt og ég væri að taka
þátt í lítilli sjálfstæðri kvikmynd.
Það er mikið jafnræði í vinnu við
kvikmyndina á allan hátt. Það er
samt auðvitað alltaf pressa að leika í
kvikmynd sem er framleidd af Peter
Jackson. Maður veit að maður þarf
að gera eins vel og maður mögulega
getur, eins og náttúrulega alltaf.
Peter er frábær, svolítill nörd og
almennt mjög indæll maður. Hann
er með hugann við verkefni sem
snýst um að búa til hamborgara-
kjöt úr plöntum. Hann var alltaf að
bjóða manni í mat að smakka þessa
grænkeraborgara. Hann er ofboðs-
lega afslappaður.
Ég bjó í einu af húsunum þeirra
sem liggja á strandlengju. Var fáein-
um húsum frá honum og fjölskyldu
hans. Það var mjög huggulegt. Stutt
að rölta á milli ef ég vildi kíkja í
heimsókn, nota sundlaugina eða
klappa köttunum. Við dóttir þeirra
erum líka góðar vinkonur í dag. Tek
það samt fram að þau lifa alls ekki
eins og kóngar þó að það hljómi
kannski þannig þegar minnst er á
sundlaugar og svona. Þau eru virki-
lega hluti af samfélaginu,“ segir Hera
frá.
Viss um meira samstarf
Finnst þér aldrei skrýtið að kynnast
fólki svona náið og fara svo bara á
næsta stað, næsta sett?
„Maður fer að venjast því. Þetta
er flæði. Fyrst var maður fullur
trega en svo áttar maður sig á því
að maður hittir marga vinnufélaga
sem maður hefur tengst vel aftur.
En stundum sækir þetta á mig. Það
fer eftir því hvernig maður dílar við
það. Mér fannst skrýtið að klára
túrinn með þeim en ég veit að ég get
alltaf hoppað upp í flugvél og farið
í frí til þeirra til Nýja-Sjálands. Þau
eru ekki farin úr lífi mínu og ég er
reyndar viss um að við gerum aðra
mynd saman. Hvort sem það verður
framhald á Mortal Engines eða eitt-
hvað annað,“ segir Hera.
Hvað er það besta við að starfa
sem leikkona?
„Það er það að fara inn í alls konar
sögur. Hugsanir og heima og ferðast
á ólíka staði í heiminum. Að sjá og
finna, setja sig í spor annarra og geta
breitt út sögur frá einu heimshorni
til annars,“ segir Hera.
Konur dæmdar eftir útlitinu
Hera segist alltaf taka eitthvað með
sér úr hverju hlutverki og frá hverj-
um stað.
„Ég fann hugrekki og enn meiri
viljastyrk en ég taldi mig búa yfir í
söguhetjunni Hester. Ég er svolítið
mild að eðlisfari en ég get líka verið
sterk. Mér finnst ég sterkari eftir
að ég kynntist Hester,“ segir Hera.
„Fólk dæmir hana. Samfélagið er
alltaf að dæma konur eftir útlitinu.“
Minna „hot“ í ár?
„Já, einmitt,“ segir Hera og skellir
upp úr. „Þetta verður að breytast og
við verðum að fara að horfa meira
á innri heim kvenna. Upplifanir
þeirra og hugsanir en ekki statt og
stöðugt á útlitið. Auk þess sem við
rennum ekki út, takk fyrir. Við erum
eins og falleg tré sem verða stærri og
meiri, marglaga með djúpum línum,
og fallegri fyrir vikið,“ segir Hera.
Gjöf að fá Herdísi fyrir kennara
Hera sleit barnsskónum í Hlíða-
hverfi í Reykjavík og gekk í Ísaks-
skóla. Hún hugsar með hlýju til skól-
ans og síns gamla umsjónarkennara,
Herdísar Egilsdóttur.
„Herdís Egilsdóttir var umsjónar-
kennari minn frá því ég var fjögurra
ára þangað til ég var átta ára gömul.
Ég áttaði mig á því seinna hvað
það var mikilvægt hvað hún kenndi
okkur og hvernig. Ég skil ekki af
hverju það er ekki meira af þessu
alls staðar. Að fara í gegnum það
að búa til sitt eigið land, þjóðsöng,
kosningar. Lýðræði og allt svona.
Þegar Lion King kom út fórum við
öll saman í röð niður í kjallara og
þar var líklega fyrsti stóri flatskjár
landsins!“ segir hún og hlær. „Við
sátum og horfðum á myndina. Það
Hera notar app
sem heitir Head
space til að róa
hugann þegar
hún er á þönum.
FréTTablaðið/Eyþór
Hlutverk eins og Hester Shaw eru ekki á hverju strái í Hollywood.
eru ekki allir kennarar sem myndu
fatta að góð kvikmynd er kennslu-
efni og tæki til að kveikja á alls
kyns hugtökum og málefnum. Við
ræddum um myndina.
Herdís er algjörlega einstök. Ég
var heppin að fá að fara til hennar,
það varð næstum ekki. Svona
grunnur hjálpar öllum. Skapandi
og virk gagnrýnin hugsun er svo
mikilvæg og gagnast ekki bara lista-
mönnum heldur hverjum sem er.“
Dauðans alvara
Hera hefur frá barnsaldri ætlað sér
að verða leikkona. Móðir Heru er
Þórey Sigþórsdóttir leikkona og
faðir hennar er Hilmar Oddsson
leikstjóri.
„Ég lærði af þeim að þú þarft að
gefa þig allan í leiklistina. Fyrir mig
var þetta alltaf stefnan. Ég var alltaf
í þessum heimi. Foreldrar mínir
reyndu í fyrstu að fá mig ofan af
því að fara í leiklistarbransann. En
þegar þau fundu og sáu hvað ég var
einbeitt þá naut ég stuðnings þeirra.
Mér var alltaf dauðans alvara með
þessu,“ segir hún og skellir upp úr.
„Ég held stundum að fólk sé svolítið
hrætt við mig því ég tek þetta allt
saman svo alvarlega,“ segir hún.
En málið er að ef þú ætlar þér að
verða leikari, þá verður það að vera
þannig að þú vilt ekkert annað. Og
þannig er það með mig. Ég vil ekkert
annað, annars væri ég löngu búin að
gefast upp.
Ég læri það annars meira og meira
með aldrinum að taka hlutunum
minna alvarlega. Ég upplifði að ég
bar mikla ábyrgð sem barn. Þegar
þú átt listamenn fyrir foreldra þá er
alveg líklegt að þú hafir áhyggjur af
því hvort þau nái endum saman um
mánaðamótin og svona, eða hvað
þau eru að vinna á mismunandi
stöðum og lengi. Þetta er sérstakur
og krefjandi heimur en það gefst
líka oft tækifæri til að eyða tíma
með foreldrum sínum sem aðrir
hafa ekki sem eiga foreldra sem
vinna „venjulegri“ vinnutíma eða
vinnu.“
Fékk lánað selló á NýjaSjálandi
Hera er gæddi fleiri hæfileikum. Hún
æfði á selló í mörg ár og lærði meðal
annars í Tónlistarskóla Reykjavíkur
hjá Gunnari Kvaran. Tónlistin laut í
lægra haldi fyrir leiklistinni.
„Ég er ekki í sama formi og ég var.
Ég mætti spila oftar. Sellóið er stórt
og ég ferðast ekki alltaf með það. Ég
hætti að æfa á selló eftir fyrsta árið
mitt í MH. En ég gríp oft í sellóið,
því fylgir ákveðin slökun að spila á
það. Ég á mitt eigið hljóðfæri sem
ég spila stundum á í London. En ég
er oft stirð og klaufaleg þegar langt
líður á milli. Þetta er þó allt þarna
einhvers staðar, og fer að glitta í það
aftur þegar maður gefur sér tíma í
það. Í tökum á Mortal Engines fékk
ég lánað selló sem afi leikstjórans
smíðaði, það var virkilega fallegt
hljóðfæri. Þægilegt að spila á það
og fyrirhafnarlaust.“
Vildi fara erfiðu leiðina
Ferill Heru fór strax af stað eftir
að hún útskrifaðist frá LAMDA í
London – The London Academy of
Music and Dramatic Arts. „Ég fann
að ég myndi hafa gott af því að fara
út. Ég var farin að fá hlutverk hér
heima. Þannig að það var smá erfitt
að fara út og í annað land. Þar sem
enginn þekkir þig. En ég vildi fara
erfiðu leiðina,“ útskýrir Hera sem
fór í gegnum strangt inntökupróf en
um 4.000 manns sóttu um og aðeins
29 komust inn.
„Ég vildi vita hvert þetta myndi
leiða mig. Eftir á að hyggja var þetta
risastórt verkefni sem fylgdi mikið
álag. En ég hafði þetta nú af. Þó að
stundum hafi ég keyrt mig út svo að
það hreinlega sá á mér. Leiklistar-
skólar eru svo mismunandi. Hlut-
verkin sem ég tók að mér á Íslandi
áður en ég fór út reyndust mér vel.
Ég lærði af þeim. En svo var hollt að
læra ýmislegt annað nýtt. Best var
að ná betur utan um tungumálið.
Ég var hægari í öllu, til dæmis í því
að segja brandara. En það kom fljótt.
Eg get það núna eftir að hafa búið
í London í áratug. Loksins!“ segir
Hera og hlær.
Undið upp á sig
Verkefni Heru hafa stækkað veru-
lega að umfangi og því fylgir mikið
umstang. Hera nýtur aðstoðar
umboðsskrifstofu, tveggja umboðs-
manna, lögfræðings, almanna-
tengslateymis og stílista.
„Þetta hefur undið svolítið upp á
sig. Mér finnst þetta stundum svo-
lítið skrýtið. Hvað það eru margir
sem vinna fyrir mig, eða með mér.
Það hefur bæði sína kosti og galla.
Það er nú auðvitað jákvætt að ég er
með heilan her með mér. En mér
finnst samt gott að hafa sem mest
samskipti við fáeina aðila, minn
innsta hring. Þannig næ ég betur að
halda stjórn.“
Einfaldar líf sitt og setur mörk
Hvað gerir þú til að slaka á?
„Ég reyni að sofa. Sem hefur ekki
verið að ganga vel, vegna ferðalaga
og tímamismunar. Ég reyni að undir-
búa mig, mér finnst það minnka
álagið, hvað er ég að fara að tala um?
Og ég reyni að einfalda allt sem ég
geri og leyfi fólki í kringum mig að
gera það sem það er sérfræðingar í.
Ég er líka að reyna að setja mörk,
ég er mjög greiðvikin manneskja að
eðlisfari. En ég er núna að átta mig á
því að ég get ekki hjálpað öllum sem
vilja aðstoð mína, hvort sem það
tengist bransanum, að koma sér á
framfæri eða einhverju öðru. Maður
getur ekki gert allt. Þó að mig langi
og ég reyni. Ég er að læra á þetta.
Já, og svo reyni ég bara að fara
í heitt bað og hlusta á tónlist. Ég
nota líka app í símanum sem heitir
Headspace, það hjálpar mér mikið.
Sérstaklega núna þegar ég hef lít-
inn tíma þá nota ég appið, hlusta á
skilaboðin og það róar hugann og
hjálpar mér að ná áttum. Ég mæli
með þessu,“ segir Hera. „Ég reyni
líka að passa upp á það að borða,
því það er létt að hreinlega gleyma
því. Ég drekk ekki kaffi, eða ég reyni
allavega að halda mig frá því, því
það er voða gott, en það gerir mig
alveg ruglaða!“ segir hún og hlær.
Þau eru
ekki farin
úr lífi
mínu og ég
er reyndar
viss um að
við gerum
aðra mynd
saman.
↣
1 5 . d e s e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r d A G U r36 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
C
E
-F
9
8
0
2
1
C
E
-F
8
4
4
2
1
C
E
-F
7
0
8
2
1
C
E
-F
5
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K