Fréttablaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 50
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, á aðventunni. Um helgina verður til að mynda til sölu handgert jóla- skraut og skart auk þess sem hægt verður að komast í umhverfisvæna innpökkunarþjónustu svo fátt eitt sé nefnt.“ Fjölskyldan saman á aðventunni Rölt um Jólaþorpið er fyrir löngu orðið hefð hjá mörgum Hafn- firðingum og þeir duglegir að bjóða fjölskyldu og vinum með sér í jóla- gleðina auk þess sem þorpið hefur laðað að aðra innlenda og erlenda gesti í auknum mæli. „Hróður Jólaþorpsins er farinn að berast víða og það hefur hvatt okkur til að gera enn betur. Við reynum að hafa dagskrána á sviðinu sem mest hafnfirska þótt við leitum líka út fyrir bæjarmörkin. Um helgina munu nemendur úr Víðistaðaskóla sýna brot úr söngleik, félagar úr skólahljómsveit Víðistaðaskóla leika nokkur jólalög, kór Öldutúns- skóla syngja og nemendur úr Tón- kvísl Tónlistarskóla Hafnarfjarðar flytja jólatónlist. Alla sunnudaga fram að jólum er haldið jólaball kl. 15 á Thorsplani. Góðan dag er síðan tilvalið að enda með því að fara út að borða á góðum veitinga- stað í bænum og fara svo á tónleika í Bæjarbíói.“ „Hróður Jóla- þorpsins er farinn að berast víða,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar. MYND/ERNIR Öflugt og metnaðarfullt menningarstarf fer fram í Hafnarborg sem stendur í miðbæ Hafnarfjarðar. Í jólaþorpinu má kaupa ýmsa gjafavöru, hönnun, hand- verk og matvæli. Bókasafn Hafnarfjarðar býður upp á fjölda viðburða fyrir fólk á öllum aldri. Byggðarsafnið er minja- og ljósmyndasafn Hafnarfjarðarbæjar og saman- stendur af fimm húsum. Eitt þeirra, Pakkhúsið, er opið yfir vetrartímann. Hafnarborg – menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Hafnarborg stendur fyrir öflugu og metnaðarfullu menningarstarfi sem endurspeglar málefni sam- tímans og stuðlar að fjölbreyttu mannlífi. Dagskrá Hafnarborgar er fjölbreytt, allt frá sýningum á verkum frumkvöðla íslenskrar myndlistar til tilraunakenndra verka listamanna samtímans. Í tengslum við sýningar eru reglulega haldnir fyrirlestrar og málþing, auk þess sem áhersla er lögð á að bjóða upp á samtal gesta við listamenn og sýningarstjóra. Aðrir reglulegir viðburðir eru lista- smiðjur og leiðsagnir fyrir börn, mánaðarlegir hádegistónleikar yfir vetrartímann, samtímatón- leikaröðin Hljóðön og sönghátíð á miðju sumri. Nú stendur þar yfir sýning á verkum Guðmundar Thoroddsen myndlistarmanns sem ber heitið Snip Snap Snubbur. Opnunartími: Alla daga frá kl. 12-17. Lokað á þriðjudögum. Aðgangur er ókeypis. Byggðasafn Hafnarfjarðar Byggðasafnið er minja- og ljós- myndasafn Hafnarfjarðarbæjar og hefur það hlutverk að safna og skrásetja, varðveita, forverja og rannsaka muni og minjar um menningarsögu svæðisins og kynna þær almenningi. Byggða- safnið samanstendur af fimm húsum sem öll eru opin yfir sumar- tímann. Í Pakkhúsinu, sem opið er líka yfir vetrartímann, eru að öllu jöfnu þrjár sýningar í gangi í einu, fastasýning um sögu bæjarins, leikfangasýning og þemasýning. Á Strandstígnum meðfram höfn- inni í Hafnarfirði er svo að finna ljósmyndasýningar er varpa ljósi á dagleg störf og sögu fólksins sem bæinn byggði. Opnunartími: Pakkhúsið er opið frá kl. 12-17 laugardaga og sunnu- daga. Aðgangur er ókeypis. Bókasafn Hafnarfjarðar Bókasafn Hafnarfjarðar er þekk- ingarveita og fræðslustofnun sem heldur uppi virkri og fjölþættri bókasafns- og upplýsinga- þjónustu auk þess að bjóða upp á fjölbreytta viðburði fyrir alla fjölskylduna. Þannig eru reglu- lega haldnar sérhæfðar smiðjur, barnaviðburðir, upplestur og fræðsluerindi og er dagskráin mjög fjölbreytt á aðventunni. Safnkostur er um 130 þúsund eintök og er áhersla lögð á að safnkostur endurspegli sem flest sjónarmið og að aðgangur sé að fjölbreyttu safnefni og upplýs- ingum. Í Bókasafni Hafnarfjarðar er jafnframt stærsta tónlistarsafn í almenningsbókasafni á landinu. Opnunartími: Bókasafnið er opið mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-19, föstudaga frá kl. 11-17 og laugardaga frá kl. 11-15. Sundlaugar Hafnarfjarðar Í Hafnarfirði eru þrjár sundlaugar sem allar hafa sín sérkenni og sjarma. Sundhöll Hafnarfjarðar er þekkt fyrir rólegt andrúmsloft með 25 metra innilaug og tveimur rúm- góðum heitum pottum í afgirtum garði með öflugum nuddtækjum sem njóta mikilla vinsælda. Suðurbæjarlaug er útisundlaug sem er samtengd við sérhannaða kennslulaug inni sem einnig er góð barnalaug. Úti eru heitir pottar, vatnsgufa, bunusveppur, vatns- rennibrautir og vinsæll göngustígur sem liggur um sundlaugargarðinn. Ásvallalaug er einstaklega fjöl- skylduvæn innilaug sem skartar 25 metra og 50 metra sundlaug. Lyfta með sérútbúnum hjólastól, arm- bandi og fjarstýringu er aðgengileg öllum þeim sem almennt eiga erfitt með að komast ofan í stærri laugar. Í lauginni er jafnframt barnalaug og vaðlaug fyrir yngstu kynslóðina með tilheyrandi leikföngum. Innanhúss er einnig vinsæl vatns- rennibraut, þrír heitir pottar og eimbað. Utandyra eru svo tveir heitir pottar. Opnunartími: Sundhöll er opin frá kl. 6.30-21 alla virka daga. Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug eru opnar frá kl. 6.30-22 mánu- daga til fimmtudaga, kl. 6.30-20 föstudaga, kl. 8-18 laugardaga og kl. 8-17 sunnudaga. Allar laug- arnar verða opnar fram að hádegi á aðfangadag og gamlársdag. Jólaþorpið í Hafnarfirði Litlu fagurlega skreyttu jólahúsin í Jólaþorpinu í Hafnarfirði eru orðin landsþekktur söluvettvangur fyrir ýmiss konar gjafavöru, handverk og hönnun sem tilvalið er að setja í jólapakkann ásamt gómsætu ljúfmeti til að borða á staðnum eða taka með heim á veisluborðið. Þar er meðal annars boðið upp á lambakjöt beint frá býli í ýmsum útfærslum, geitaosta og alls kyns hollustuvörur úr íslensku hráefni, heimagerðan brjóstsykur, konfekt og karamellu. Jólasveinar koma aukaferð til byggða til að bregða á leik með börnunum auk þess sem Grýla er á vappi um bæinn og Bett- ína á ferli eftir Strandgötunni með hestvagninn sinn. Opnunartími: Jólaþorpið er opið frá kl. 12-17 alla laugardaga og sunnudaga á aðventunni. Á Þorláksmessu verður Jólaþorpið opið frá kl. 12-22. 2 KYNNINGARBLAÐ 1 5 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RHAFNARFJÖRÐUR OG GARÐABÆR 1 5 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 4 4 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 C F -7 9 E 0 2 1 C F -7 8 A 4 2 1 C F -7 7 6 8 2 1 C F -7 6 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 4 4 s _ 1 4 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.