Fréttablaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 90
Við lentum í því að jóla-sveinarnir þrettán yfirtóku Instagramið okkar sömu
nótt og fyrsti jólasveinninn var á
leið til byggða. Þar deila þeir nú
hugmyndum að umhverfisvænum
og persónulegum skógjöfum með
öllum hinum jólasveinum lands-
ins,“ segir Esther Ýr Þorvaldsdóttir,
kynningarstjóri Borgarbókasafnsins
í Grófinni.
Innrás jólasveinanna á Instagram.
com/borgarbokasafn leysir ýmis
vandamál.
„Hún lagar höfuðverk annarra
jólasveina ef þeir verða uppi-
skroppa með hugmyndir og vantar
að redda gjöf í einum grænum og
í staðinn finnur barnið óvænta
og persónulega sniðna skógjöf frá
sveinka að morgni,“ upplýsir Esther.
Á heimasíðu safnsins, borgar-
bokasafn.is/i_skoinn er að finna
samverukort á jpg- og pdf-formi
sem hægt er að hlaða niður í tölvur
og prenta út.
„Samverukortin minnka aðeins
umstangið fyrir jólin og á vistvænan
og hlýlegan hátt. Með þeim mæla
jólasveinarnir með að fjölskyldan
sé saman og stingur upp á skemmti-
legri samverustund sem fellur í
kramið hjá hverju og einu barni.
Það getur verið skautaferð, kvöld-
ganga með vasaljós í myrkrinu, leit
að vættum í miðborginni, að skoða
jólaköttinn á Lækjartorgi eða heim-
sækja bókasafnið,“
útskýrir Esther
en hugmyndir og
uppástungur frá
jólasveinunum má
finna á vef Borgar-
bókasafnsins.
Vistvænir jólapakkar
Ef gefin er samverustund á bóka-
safnið getur fjölskyldan mætt með
óinnpakkaðar jólagjafir og pakkað
þeim inn í umhverfisvænan pappír
á sérstökum innpökkunarborðum
sem búið er að koma upp með
skapandi efniviði í bókasöfnunum í
Grófinni og Kringlunni.
„Við gerum engar kröfur um
að fólk taki bók að láni í leiðinni
heldur viljum við að sem flestir
komi, nýti sér aðstöðuna og gefi
afskrifuðum bókum okkar aukalíf
sem gjafapappír,“ segir Esther og
af nógum efniviði er að taka því
Jólasveinarnir 13
yfirtóku Instagram
Borgarbókasafnið á nú í skemmtilegu samstarfi við íslensku jólasveinana sem
hafa vistvæn jól í öndvegi og dýrmætar samverustundir fjölskyldunnar. Þar er
líka hægt að pakka inn jólagjöfum í pappír úr afskrifuðum og litríkum bókum.
Sniðug hugmynd og skrautlegir jólapakkar Estherar. MYND/ANTON BRINK
Esther Ýr Þorvaldsdóttir
kynningarstjóri.
afskrifaðar bækur berast á þessi tvö
söfn frá sex menningarhúsum.
„Við erum með pappír og hvað-
eina til innpökkunar og fullt af hug-
myndum til að gera pakkana hvað
skrautlegasta, en þeir verða einstakt
augnayndi þegar notuð eru tímarit
og afskrifaðar barnabækur sem eru
oftast nær litríkar og með fallegum
myndum. Ebba Ýr Garðarsdóttir
tók að sér að pakka inn gjöfum á
skemmtilegan hátt og eru þær til
sýnis og innblásturs um hvað hægt
er að gera ef fólk er hugmynda-
snautt. Við innpökkunarborðið
eru bækurnar orðnar að dýrindis
jólapappír eftir að hafa skemmst
eða laskast og hægt að klippa út
myndir og nota sem skreytingar á
jólapakka, en að pakka inn gjöf
handa börnum úr barna-
bókum er ávísun á einkar
forvitnilegan og fallegan
pakka,“ segir Esther og
viðtökurnar hafa verið
góðar.
„Sjálf ætla ég að
pakka inn jólagjöf
handa kærastanum hér
á safninu, því ekki get ég
pakkað henni inn heima án
þess að sjáist til mín,“ segir Esther
sem er búin að skera út hólf úr bók
sem hugnast kærastanum illa og fela
inni í því alvöru gjöfina.
„Æ fleiri vilja tileinka sér vist-
vænan lífsstíl og taka því fegins
hendi að geta gefið gömlum bókum
framhaldslíf. Það sparar líka kaup
á jólapappír sem fer beint í ruslið.
Krakkarnir una sér vel við liti og
föndur á meðan fullorðna fólkið
pakkar inn gjöfunum og hjálpa til
við að skreyta pakkana á sinn list-
ræna og skapandi hátt. Útkoman
er því sérlega fallegir jólapakkar og
skemmtilega jólaleg samverustund.“
OPIÐ UM HELGINA:
Föstudagur 14. des kl. 10–22
Laugardagur 15. des kl. 10–22
Sunnudagur 16. des kl. 13–18
Verið velkomin í stærri og glæsilega
verslun Bláa Lónsins á Laugavegi 15
Við bjóðum viðskiptavinum okkar 20% afslátt af öllum
vörum yfir opnunarhelgina
14. – 16. desember.*
Við hlökkum til að sjá þig!
*Gildir aðeins í verslun okkar á Laugavegi og ekki með öðrum tilboðum.
14 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
C
F
-4
3
9
0
2
1
C
F
-4
2
5
4
2
1
C
F
-4
1
1
8
2
1
C
F
-3
F
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K