Fréttablaðið - 15.12.2018, Page 20

Fréttablaðið - 15.12.2018, Page 20
Víkkar sjóndeildarhringinn Erasmus+ Rannís auglýsir umsóknarfresti 2019 Sjá nánar á www.erasmusplus.is Í menntahluta Erasmus+ Nám og þjálfun – umsóknarfrestur 5. febrúar Samstarfsverkefni – umsóknarfrestur 21. mars Í æskulýðshluta Erasmus+ Umsóknarfrestir 5. febrúar, 30. apríl og 1. október. Með sífellt vax-andi netheimi býr fólk sér til aðgang að fleiri og fleiri síðum o g ö p p u m . Lausleg talning blaðamanns sýndi að hann var skráður inn á átján mis- munandi aðganga í símanum einum í gær. Trúlega mun fleiri í borðtölv- unni. Þegar flækjustigið er orðið þetta hátt er óhjákvæmilegt að fólk freistist einfaldlega til þess að nota sama lykilorðið alls staðar eða að nota örfá lykilorð, kannski þrjú eða fjögur, fyrir mun fleiri aðganga. Reglulega birtast fréttir af stórum gagnalekum. Lykilorðum á fjölda vefsíðna hefur verið lekið og eru þau aðgengileg hverjum þeim sem kann að leita að slíkum vefsíðum, gegn vægu gjaldi. Noti maður sama lykilorðið á mörgum stöðum getur slíkur leki því haft afar neikvæðar afleiðingar. Gamli aðgangurinn að Myspace gæti sum sé orðið manni að falli og með lykilorðið þaðan að vopni gæti óprúttinn aðili nálgast viðkvæmar upplýsingar, jafnvel kortanúmer, eða sent eitthvað ógeð- fellt frá sér í þínu nafni. Fréttablaðið fer þess vegna yfir þrjú mikilvæg ráð sem hægt er að styðjast við til að koma í veg fyrir að allt fari á versta veg. Þó að hvert og eitt stuðli að auknu öryggi er vissu- lega best að hafa þau öll á hreinu. Settu netöryggi þitt á oddinn Allt of margir nota sama lykilorðið alls staðar án til- lits til afleiðinga þess ef þessu eina lykilorði er lekið. Kortanúmer, viðkvæmar upplýsingar og jafnvel orðspor manns eru í hættu. Fréttablaðið gefur les- endum þrjú góð ráð um öryggi á netinu. Tækni Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is Verstu lykilorð ársins samkvæmt SplashID 1. 123456 2. password 3. 123456789 4. 12345678 5. 12345 6. 111111 7. 1234567 8. sunshine 9. qwerty 10. iloveyou Samfélagsmiðillinn Facebook greindi í gær frá hugbúnaðarvillu sem olli því að útgefendur snjall- forrita sem geta tengst Facebook gátu skoðað allar þær myndir sem allt að 6,8 milljónir Facebook-not- enda höfðu hlaðið upp á miðilinn en aldrei klárað að birta. Mögulega vegna þess að viðkom- andi snerist hugur og vildi ekki birta myndina. Samkvæmt yfirlýsingu frá Face- book gátu útgefendur allt að 1.500 forrita séð þessar óbirtu myndir í september síðastliðnum en villan hefur nú verið löguð. „Okkur þykir leitt að þetta hafi skeð. Í næstu viku munum við gefa útgefendum verkfæri svo þeir geti séð hvort villan snerti þá beint. Við munum vinna að því með útgef- endum að eyða myndunum og láta alla þá sem villan gæti hafa haft áhrif á vita af málinu,“ sagði í yfir- lýsingunni. Þetta er langt frá því að vera fyrsta hneykslismál Facebook á árinu. – þea Veittu aðgang að óbirtum myndum Enn eitt öryggismálið. Nordicphotos/GEtty Notaðu öruggt lykilorð Ef maður ætlar ekki að nota lykilorðastjóra er þetta að minnsta kosti lágmark. Mesta hættan stafar af því að fólk sem þekkir mann geti giskað á lykilorðið og að óprúttnir aðilar reyni einfaldlega að prófa allar mögu- legar samsetningar. Það gæti virst góð hugmynd að nota lykilorð sem lítur einhvern veginn svona út: „XoE3!#lz5“. Þannig geta vinir ekki giskað á lykilorðið og tölustafir og tákn gera þrjótum erfiðara fyrir að finna réttu sam- setninguna. Það er enn sniðugra að nota í staðinn þrjú eða fjögur orð af handahófi, sem ekki tengjast manni persónulega. Auðveldara er að muna slík lykilorð, tölva væri mörg ár að giska á lykilorðið „taska. heftari.flaska.dagatal“ og orðin tengjast manni ekki persónulega. Tveggja þátta auðkenning Mörg forrit og vefsíður bjóða not- endum upp á að nota tveggja þátta auðkenningu. Það þýðir að fyrstu innskráningu í nýju tæki, eða jafnvel hverja einustu innskráningu, þarf að staðfesta með því að slá inn kóða sem maður fær sendan í farsímann. Þetta gerir það að verkum að mun erfiðara er að brjótast inn á aðganginn. Ekki dugar lengur að vera með lykilorðið eitt. Lykilorðastjórar Svokallaðir lykilorðastjórar (e. password managers) eru forrit sem vista öll lykilorðin þín á einum, öruggum og dulkóðuðum stað. Allflest þessara forrita bjóða þér upp á að búa til nýtt lykilorð fyrir þig. Eitthvað sem maður ætti sjálfur í vandræðum með að muna en for- ritið man auðveldlega. „Ef ég gæti gefið ykkur aðeins eitt ráð fyrir framtíðina myndi það vera að nýta sér lykilorðastjóra,“ sagði blaðamaður The Verge í umfjöllun sinni á síðasta ári. Tvö vinsælustu forritin, Lastpass og Dashlane, eru tiltölulega einföld bæði í notkun og uppsetningu. Gjaldfrjálsar útgáfur forritanna bjóða upp á alla helstu fídusa. Þau búa til, vista, og fylla inn lykilorð fyrir þig. Lastpass býður svo áskrift á tvo dali á mánuði sem leyfir manni að deila lykilorðum, samhliða notkun í farsíma og gefur forgang að að- stoð. Áskrift að Dashlane kostar 3,33 dali og felur í sér samhliða notkun í síma og vöktun á lykilorðum sem hefur verið lekið svo fátt eitt sé nefnt. 1 5 . d e s e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r d A G U r18 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð 1 5 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 4 4 s _ P 1 4 4 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 2 5 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 C E -D B E 0 2 1 C E -D A A 4 2 1 C E -D 9 6 8 2 1 C E -D 8 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 4 4 s _ 1 4 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.