Fréttablaðið - 15.12.2018, Síða 68

Fréttablaðið - 15.12.2018, Síða 68
Hjúkrunarfræðingar/ sjúkraliðar SPOEX - Samtök psoriasis og exemsjúklinga óska eftir að ráða heilbrigðismenntaðan einstakling til starfa á göngu- deild samtakanna að Bolholti 6, 105 Reykjavík. Skemmtilegt og fjölbreytt starf sem krefst sjálfstæðra vinnubragða. Umsóknir óskast sendar á netfangið skrifstofa@spoex.is fyrir 8. janúar 2019. Staða sérfræðings í fjármálum og rekstri Dómsmálaráðuneytið óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa á skrifstofu fjármála og rekstrar. Meginhlut­ verk skrifstofunnar er að sjá um undirbúning fjármála­ áætlunar, fjárlaga og fjáraukalaga fyrir þau málefna­ svið sem undir ráðuneytið heyra. Í því felst m.a. að þróa fjárlagaverkferla og framkvæmd fjárlaga þannig að greining fjárhagsupplýsinga sé fagleg og tíman­ lega fram sett og nýtist þannig til stefnumótunar og ákvarðanatöku. Jafn framt að rekstrarþjónusta í innri málum ráðu neytisins þjóni starfsfólki og yfirstjórn eins og best verður á kosið, m.a. með því að nýta viðskipta, fjárhags- og ferðabókhaldskerfi eins vel og unnt er. Helstu verkefni: • Rekstrarúttektir og greiningar • Greinargerð með fjárlögum og fjármálaáætlun • Eftirlit með framkvæmd fjárlaga • Samstarf og samvinna við stofnanir ráðuneytisins • Stefnumótun og eftirfylgni stefna • Árangursmælingar og skýrslugerð • Samþætting opinberra stefna Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun á sviði viðskipta, hagfræði eða sambærileg menntun • Framhaldsmenntun eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi • Mjög góð kunnátta í Excel • Reynsla af stefnumótun og vinnu með fjárhagsupp- lýsingar • Reynsla af upplýsingakerfi Oracle er kostur • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur • Góð íslenskukunnátta og hæfni í framsetningu upp- lýsinga • Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt, sem og í hóp • Góð hæfni í samskiptum, árangursdrifni og skipulags- hæfileikar Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskóla- menntaðra starfsmanna stjórnarráðs hafa gert. Um er að ræða fullt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu um sóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknir skulu fylltar út á Starfatorgi og er umsóknar­ frestur til 4. janúar nk. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. At hygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar veitir Pétur U. Fenger, skrifstofu- stjóri, í síma 545 9000. Sendiskrifstofa Grænlands leitar eftir kraftmiklum ritara/fulltrúa til að sinna bókhaldi og starfi ritara. Starfsbyrjun er samkomulag. Sendiskrifstofa Grænlands í Reykjavík leitar eftir ritara/verkefnastjóra Starfsmaður skal m.a. sinna eftirfarandi verkefnum: • Reikningsskil,- og bókfærslu á fjárhagsáætlun umboðsins • Skjöl – og skjalavistun sem og vinnu með meðhöndlun pósts • Stjórnunarlegum samskiptum við opinbert yfirvald á Íslandi sem og á Grænlandi • Skipulagning dagskráa fyrir skemmtanir og heimsóknir í Reykja vík og á Íslandi í sambandi við aðra starfsmenn sendiskrif stofunnar. • Samvinna um samskiptaáætlun við utanríkisráðuneytið vegna heimsóknar til Grænlands • Upplýsingaleit, ferðapantanir og önnur tilfallandi og hagnýt verkefni • Veita lið við almenna málsmeðferð og verkefnavinnu, m.a.: Fundargerðir, svara fyrirspurnum, skipuleggja margvíslega atburði, vinna við markaðsgreiningu, skrifa skýrslur og annað upplýsandi efni, sinna þýðingum sem og viðhaldi á heimasíðu, uppfærslu á samfélagsmiðlum, o.s.frv. Hæfni • Vænst er af umsækjanda að hann hafi viðeigandi menntun og/eða reynslu innan áðurnefndra sviða • Gengið er út frá að viðkomandi tali og skrifi reiprennandi íslensku og ensku. Önnur tungumál eins og grænlenska, danska og skandi- navíska er kostur • Hafa áhuga á Grænlandi og grænlenskum málefnum Staðan felur í sér að starfsmaðurinn vinni sjálfstætt og kerfisbundið, og geti unnið með öðrum sama hverrar stöðu viðkomandi gegnir og þvert á menningu. Starfsmaðurinn verður að geta meðhönd- lað mikið upplýsingaflæði og m.a. hafa ábyrgð á reikningsskilum sendiskrifstofun- nar, vinna með skjöl og taka á móti gestum og sinna þeim. Sendiskrifstofa Grænlands í Reykjavík hefur verið starfandi síðan í október 2018 og er til húsa í miðborg Reykjavíkur. Skrifstofuna er verið að byggja og góð samvinna verður að vera á milli verðandi starfsmanns og yfirmann sendiskrifsto- funnar. Sendiskrifstofan saman stendur í þessum skrifuðu orðum af yfirmanni sendiskrifstofunnar og síðar meir af ritara/ verkefnastjóra sem og lærlingi. Í daglegri vinnu okkar metum við til mikils fagmennsku sem krydduð er með sveigjanleika og húmor sem okkur finnst vera mikilvægir eiginleikar í litlu og faglegu umhverfi. Það verða töluð mörg tungumál á vinnustaðnum, þar á meðal græn- lenska, því er viðeigandi að hafa áhuga á Grænlandi. Laun og ráðningarskilmálar Vinnutími er 37 tímar á viku. Vinnuveitandi er opinber sendiskrifstofa og því getur vinnutíminn verið svolítið lengri hverja viku. Ráðið er í stöðuna með 5 mánaðar reynslutíma. Laun og ráðningarskilmálar er í samræmi við ráðningu Sendiskrif- stofu Grænlands í Reykjavík sem og í samráði við gildandi samning viðkomandi samnings aðila á Íslandi. Frekari upplýsingar um starfið er að fá hjá yfirmanni umboðsins, Jacob Isbosethsen, í síma: +354 6655610, tölvupóstfang: jsis@nanoq.gl Áhugasamir umsækjendur skulu senda inn afrit af prófskírteinum, upplýsingum um fyrri störf, o.s.frv. til: jsis@nanoq.gl Sendiskrifstofa Grænlands í Reykjavík Túngata 5 101 – Reykjavík Ísland Fyrirsögnin í tölvupóstinum skal vera „ansøgning stillingsopslag sekretær“. Umsókn þarf að vera rituð á dönsku. Umsóknina skal senda til Sendiskrifstofu Grænlands eigi síðar en 29. desember 2018. Kr ía h ön nu na rs to fa | w w w .k ria .is Vinnumálastofnun Kringlunni 1, 103 Reykjavík Sími 515 480 www.vmst.is Fyrirmyndarþjónusta Virðing Áreiðanleiki Vinnumálastofnun Sérfræðingar hjá Fæðingar- orlofssjóði Hvammstanga Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða tvo sérfræðinga hjá Fæðingarorlofssjóði á Hvammstanga. Hlutverk Fæðingarorlofssjóðs er að annast umsýslu og ráðgjöf varðandi greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Sérfræðingarnir munu sinna úrvinnslu og afgreiðslu umsókna ásamt öðrum verkefnum sem falla undir verksvið Fæðingarorlofssjóðs. Leitað er eftir einstaklingum sem eiga auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofn- unnar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki. Einnig þurfa viðkomandi starfsmenn að vera tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni og búa yfir ríkri samskipta- og skipulagshæfni. Helstu verkefni: • Úrvinnsla og afgreiðsla umsókna • Eftirlit með greiðslum í fæðingarorlofi • Símsvörun • Tölvuskráning • Almenn upplýsingagjöf til umsækjenda • Svörun fyrirspurna um fæðingarorlofsmál hvort heldur símleiðis eða bréfleiðis • Önnur tilfallandi verkefni Menntunar- og hæfnikröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Góð reynsla af skrifstofustörfum • Góð tölvukunnátta • Góð íslensku- og enskukunnátta • Reynsla af vinnu innan stjórnsýslunnar er æskileg • Samskiptahæfni og rík þjónustulund ásamt skipu- lags hæfileikum, sjálfstæði og metnaði til að skila góðu starfi Umsóknarfrestur er til og með 28. des. Sækja skal um starfið rafrænt á Starfatorgi: www.starfatorg.is. Starfið er með númerið 201812/2154 Laun eru samkvæmt stofnanasamningi Vinnumála- stofnunar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veita: Leó Örn Þorleifsson, for- stöðumaður og Vilmar Pétursson mannauðsstjóri í síma 515 4800 eða með fyrirspurn á netföngin leo.thorleifsson@vmst.is; vilmar.petursson@vmst.is; Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknar- frestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 1 5 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 4 4 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 C F -7 0 0 0 2 1 C F -6 E C 4 2 1 C F -6 D 8 8 2 1 C F -6 C 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 4 4 s _ 1 4 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.