Fréttablaðið - 15.12.2018, Page 86
Viltu lýsa aðeins starfsemi ASÍ? ASÍ eru regnhlífarsamtök
stéttarfélaga á almenna vinnu-
markaðnum. Reyndar hafa mörkin
á milli almenna markaðarins og
hins opinbera orðið óskýrari hin
síðari ár með meiri einkavæðingu
og breytingu á opinberum fyrir-
tækjum í OHF en þetta eru stóru
línurnar. Stéttarfélög innan
ASÍ eru líka með nokkurn hlut
opinberra starfsmanna á sínum
snærum. Vinnumarkaðurinn á
Íslandi telur tæplega 200 þúsund
manns og í aðildarfélögum ASÍ eru
rúmlega 110 þúsund manns þann-
ig að þetta er stærsti hlutinn sem
er innan ASÍ. Við erum öfunduð
um allan heim fyrir mikla stéttar-
félagsþátttöku enda eru stéttar-
félögin á Íslandi skuldbundin til
að þjóna öllum. Alþýðusamband-
ið er ekki með umboð til að gera
kjarasamninga en félög og lands-
sambönd þeirra (Starfsgreinasam-
bandið, Landssamband íslenskra
verslunarmanna, Rafiðnaðarsam-
band Íslands, Samiðn, Sjómanna-
samband Íslands og fleiri) ákveða
hverju sinni hvert hlutverk ASÍ á
að vera í kjaraviðræðum. Hefð-
bundið er þó að ASÍ fari með mál
er snúa að stjórnvöldum og mál
sem öll félög eiga sameiginleg hjá
atvinnurekendum.
Hverjar verða helstu áherslur
ASÍ í komandi kjaraviðræðum?
Áherslur ASÍ í komandi kjara-
viðræðum eru eðli málsins
samkvæmt áherslurnar sem
aðildarfélögin leggja. Svo er það
á vettvangi ASÍ sem þessi félög
ákveða hverjar eru sameiginlegar
áherslur, hvaða þræðir sameina
oft ólíka hópa og þau geta ákveðið
að ASÍ sem heildarsamtök þeirra
beiti sér fyrir. Að þessu sinni eru
það skattamálin, húsnæðismálin
og baráttan gegn félagslegum
undirboðum svo eitthvað sé talið.
Hver eru ásættanleg lífskjör
fólksins í landinu?
Þau lífskjör sem gera fólki kleift
að sjá fyrir sér og njóta lífsgæða.
Geta búið í góðu húsnæði, leyft sér
tómstundir og sumarfrí svo eitt-
hvað sé nefnt. Það er enginn metn-
aður í því að ætla fólki að skrimta
og draga fram lífið á naumustu
hugsanlegu laununum.
Kemur til greina að semja um
eitthvað annað en beinar launa-
hækkanir?
Það kemur ýmislegt til greina
að semja um meðfram launa-
hækkunum, húsnæðismálin,
velferðarmálin og skattamálin
eru þar stærst, auk vaxandi kröfu
um styttingu vinnuvikunnar. Allt
eru þetta lífskjör og jöfnunar-
tæki sem verkalýðshreyfingin á
að hafa skoðun á og berjast fyrir
breytingum á.
Til hvaða aðgerða er forysta
ASÍ tilbúin að grípa til að ná fram
markmiðum sínum?
Ef samningar reynast erfiðir þá
er það fólksins í landinu að ákveða
hvort það sé tilbúið í aðgerðir. Í
lögunum okkar er ákvæði um að
ákvörðun um verkföll eigi að taka
í atkvæðagreiðslu meðal félags-
manna. Stéttarfélög og þar með
ASÍ taka því einungis ákvörðun
um að slíta viðræðum ef þær
eru árangurslausar og leggja svo
valdið í hendur félagsmanna.
Þetta er líka gert þegar búið er
að undirrita samninga, þá fer
valdið til félagsmanna sem ákveða
hvort þeir samþykkja eða hafna
samningnum. Almennir félagar í
stéttarfélögum eru því miklir
gerendur í bæði aðdraganda
samninga, til dæmis með mótun
kröfugerða og eins í því hvort hér
verða verkföll og hvort samningar
séu ásættanlegir. Þarna erum við
með algera sérstöðu í heiminum
varðandi þátttöku vinnandi fólks í
eigin örlögum.
Mikil stéttarfélagsþátttaka á Íslandi
Alþýðusamband Íslands er stærsta stéttarfélagasamband landsins með 110.000 félagsmenn í
aðildarfélögum. Drífa Snædal er nýkjörinn forseti ASÍ en segir valdið hjá félagsmönnum.
Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir Ísland hafa algera sérstöðu í heiminum varðandi þátttöku vinnandi fólks í eigin örlögum. MYND/ERNIR
HEILsA
Sérblað um heilsu mun fylgja Fréttablaðinu laugardaginn 29. desember.
Í blaðinu verður fjallað um allt sem viðkemur bættri heilsu. Má þar nefna ýmiskonar
hreyfingu og heilsurækt, hollt matarræði, æfingafatnað, vítamín, og ýmsar aðrar
heilsutengdar vörur.
Að venju er boðið upp á fjölmörg áhugaverð viðtöl og greinar sem gefa lesendum færi á að
kynna sér fjölbreyttar leiðir til að koma skrokknum í gott stand.
Þetta sértæka efni í bland við gríðarlega mikinn lestur Fréttablaðsins tryggir að blaðið
nær afar vel til allra þeirra sem huga að bættri heilsu á nýju ári.
Áhugasamir geta haft samband við auglýsingadeild sérblaða
sími 550 5078
serblod@frettabladid.is
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem haf fermst vita dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest l sn dagbla i landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
C
F
-5
C
4
0
2
1
C
F
-5
B
0
4
2
1
C
F
-5
9
C
8
2
1
C
F
-5
8
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K