Fréttablaðið - 15.12.2018, Page 88
Átakið Einn réttur – Ekkert svindl beinist gegn fyrir-tækjum sem misnota erlent
vinnuafl og ungt fólk. Mörg
dæmi eru um að þessir hópar séu
hlunnfarnir um laun, starfskjör
og aðbúnað hér á landi. María Lóa
Friðjónsdóttir er sérfræðingur og
verkefnastjóri vinnustaðaeftirlits
hjá félagsmáladeild ASÍ og aðildar-
félaga. Hún segir að í mörgum
tilfellum sé ekki um einbeittan
brotavilja hjá fyrirtækjum að ræða
heldur megi kenna vankunnáttu
um að réttindi starfsfólks séu ekki
virt. „Fólk fer í rekstur án þess að
skoða alla þætti sem felast í fyrir-
tækjarekstri, svo sem starfsmanna-
mál, kjarasamninga, bókhald og
fleira. Eðli málsins samkvæmt
tökum við tillit til þess og leiðbein-
um atvinnurekandanum á rétta
braut. Mögulega þyrfti að gera
ríkari kröfur til þeirra sem stofna
fyrirtæki áður en þeir fá úthlutað
rekstrarleyfi,“ segir hún.
María Lóa segir að hins vegar
sé fullt af flottum fyrirtækjum
sem eru til fyrirmyndar í þessum
efnum. „Þau leggja metnað sinn í
að vera með allt á hreinu og setja
starfsfólk sitt í fyrsta sæti hvað
varðar laun og aðbúnað. Við
þurfum í sameiningu að vinna
að heilbrigðum vinnumarkaði
og því kalla ég eftir vitundar-
vakningu fyrirtækja, ríkis, bæjar-
og sveitarfélaga og í raun okkar
allra og hætta meðvirkni með
þeim sem svindla. Svindl grefur
undan heilbrigðis-, velferðar- og
menntakerfinu. Það grefur undan
samkeppnisstöðu heilbrigðra
fyrirtækja. Það grefur undan ára-
langri baráttu fyrir bættum kjörum
á vinnumarkaði og það tapa allir
á undirboðum og svartri atvinnu-
starfsemi á vinnumarkaði, nema
svindlararnir,“ segir hún.
Kallar eftir betra eftirliti
Hlutverk Maríu Lóu innan ASÍ er
meðal annars að skipuleggja
starf vinnueftirlitsfulltrúa
sem eru úti um allt land
og fara víða. „Það er í
höndum stéttarfélaganna
að ráða eftirlitsfulltrúa og það
fer eftir hverju og einu stéttar-
félagi hvar er eftirlit og hvar ekki.
Mín sýn er sú að þetta eftirlit verði
undir hatti ASÍ, eða í það minnsta
skipulagið, og að vinnueftirlitsfull-
trúarnir vinni þvert á landsvæði
og þvert á stéttarfélög. Á mörgum
stöðum úti á landi er ekki nægur
mannafli til að sinna þessu eftirliti.
Stéttarfélögin eru að drukkna í
verkefnum og þá verður eftirlitið
því miður út undan, auk þess sem
hagsmunaárekstrar geta komið
upp. Við erum einnig að vinna að
auknu og samræmdu samstarfi við
aðra sem koma að og sinna vinnu-
staðaeftirliti, til dæmis VMST,
RSK, VER, lögregluna og fleiri.
Þannig verður öll eftirfylgni mála
markvissari og öflugri,“ segir María
Lóa en þegar farið er að velta við
steinum kemur oft ýmislegt mis-
jafnt í ljós.
„Við höfum mest verið að ein-
blína á byggingariðnaðinn og
ferðaþjónustuna. Innan ferða-
þjónustunnar eru því miður
fjölmörg dæmi um brotastarfsemi.
Mörg hótel, gistihús, veitingahús
og afþreyingarfyrirtæki greiða ekki
aðeins of lág laun, stundum greiða
þau engin laun heldur ráða grun-
laust fólk inn sem sjálfboðaliða.
Það er síðan látið vinna myrkr-
anna á milli eins og þrælar. Það
er bannað að ráða sjálfboðaliða í
vinnu ef um er að ræða efnahags-
lega starfsemi. Það þýðir að ef vara
eða þjónusta er seld á að borga
starfsmanni laun,“ bendir María
Lóa á en hún er að vinna að því
að fá fiskvinnslu og fleiri atvinnu-
greinar inn undir eftirlitið.
Í byggingariðnaðinum eru dæmi
um að heilu vinnuhópunum sé
reglulega skipt út og þeir fái ekki
laun í samræmi við íslensk lög.
María Lóa segir almenning ekki
átta sig á hversu alvarleg þessi brot
geti verið. „Þetta er hreinn og klár
launaþjófnaður. Átakið Einn réttur
– Ekkert svindl snýst ekki gegn
erlendum starfsmönnum heldur
gegn þeim fyrirtækjum sem mis-
nota erlent vinnuafl og skapa sér
þannig samkeppnisforskot.“
María Lóa segir að eftir að fjallað
var um þessi mál í sjónvarpsþætt-
inum Kveik fyrr í vetur hafi ASÍ
fengið feikimikil
viðbrögð og margir
voru hreinlega sjokker-
aðir yfir ástandinu. „Fólk
trúði ekki að vinnumansal væri
stundað á Íslandi. Vinnumansal er
nútímaþrælahald, svo það sé sagt
hreint út,“ segir María Lóa.
Ef fyrirtæki verður uppvíst að
brotastarfsemi láta eftirlitsaðilar
Skattstjóra, Vinnumálastofnun
og Vinnueftirlit vita. Ef brotið er
alvarlegt er það kært til lögregl-
unnar. Hins vegar er ekki hægt að
sekta fyrirtæki sem borga starfs-
fólki ekki í samræmi við lög og
reglur. „ASÍ og stéttarfélög skortir
beittari heimildir til að refsa þeim
sem stunda launaþjófnað og
erum við að kalla eftir lausnum.
Í dag mega stéttarfélög eingöngu
reikna út launakröfur og krefjast
ógreiddra launa,“ upplýsir María
Lóa.
Eftirlitsfulltrúar ASÍ og stéttar-
félaganna vinna gríðarlega öflugt
starf og sinna mikilvægu hlutverki
við að halda vinnumarkaðnum
heilbrigðum, að sögn Maríu Lóu.
„Það eru oftast þeir sem eiga fyrstu
aðkomu að brotastarfsemi og
mynda fyrst tengsl við brotaþol-
endur í vettvangsheimsóknum um
allt land,“ segir hún.
Keðjuábyrgð og kennitölu
flakk
María Lóa er í samstarfshópi
gegn félagslegum undirboðum
og undanfarið hefur hópurinn
fundað stíft en hann á að skila til-
lögu til atvinnumálaráðuneytisins
í febrúar næstkomandi. „Við
leggjum mikla áherslu á að lög um
keðjuábyrgð fyrirtækja komist í
gagnið af fullum þunga, sem og
lög um kennitöluflakk. Við erum
að skoða hvort ekki sé eðlilegt að
setja refsiákvæði í lög, svo sem fjár-
sektir, álögur og jafnvel lokunar-
ákvæði vegna alvarlegra brota. Við
viljum líka finna einhvern snerti-
flöt við erlent verkafólk sem hér
starfar en það getur verið erfitt að
ná til þess. Það er ekki óalgengt að
vinnuveitandi keyri fólk til og frá
vinnu og það sé jafnframt í fæði og
húsnæði á vegum vinnuveitanda.
Fólk nær ekki tengslum við neinn
nema sinn hóp og fær oftar en ekki
upplýsingar um sín réttindi. Við
viljum ná til þessa fólks og upplýsa
það um réttindi sín.“
En hvaða áhrif hefur félagslegt
undirboð á íslenskan almenning?
„Maður skyldi ætla að íslensk
fyrirtæki missi spón úr aski sínum.
Það er verið að undirbjóða þau.
Réttast væri að almenningur og
fyrirtæki myndu rísa upp og hjálpa
okkur að stoppa þetta. Það þarf að
kafa djúpt í þessi mál og stoppa í
götin. Þetta er oft og tíðum skipu-
lögð glæpastarfsemi, þótt erfitt sé
að trúa því.“
Enginn græðir á svindli
María Lóa Friðjónsdóttir er sérfræðingur hjá ASÍ og kemur að átakinu Einn réttur – Ekkert svindl.
Hún segir að því miður séu til fyrirtæki sem hlunnfari starfsfólk um laun, starfskjör og aðbúnað.
Vinnumansal er staðreynd á Íslandi en svo eru mörg fyrirtæki til fyrirmyndar.
María Lóa segir mörg dæmi um að fyrirtæki greiði fólki ekki aðeins of lág laun, stundum greiði þau engin laun heldur ráði grunlaust fólk inn sem sjálfboða
liða. Það er síðan látið vinna myrkranna á milli eins og þrælar. Svindl grefur undan heilbrigðis, velferðar og menntakerfinu. MYND/ANTON BRINK
María Lóa
segir mikilvægt
að ná til erlends
verkafólks og upplýsa
það um réttindi sín.
Einn réttur – Ekkert svindl snýst um:
l Að tryggja kjör og réttindi á íslenskum vinnumarkaði fyrir alla sem hér
starfa, þar með talið útlendinga sem hingað koma og ungt fólk sem er
að hefja þátttöku á vinnumarkaði.
l Að tryggja starfsemi og eðlilega samkeppnisstöðu fyrirtækja sem
virða kjarasamninga og lög og þau viðmið og samskipti sem gilda á
íslenskum vinnumarkaði og eru kjölfestan í íslensku atvinnulífi.
l Að tryggja að sameiginlegir sjóðir samfélagsins fái sitt til að fjármagna
meðal annars öflugt heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfi.
l Verkefnið beinist gegn þeim fyrirtækjum sem misnota erlent vinnuafl
og ungt fólk og skapa sér þannig samkeppnisforskot. Verkefnið beinist
ekki gegn erlendum starfsmönnum sem komið hafa hingað til lands í
góðri trú.
Áhersla er lögð á:
l Breytt viðhorf með það að markmiði að landsmenn styðji baráttuna
gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði með virkum hætti.
l Að upplýsa erlenda starfsmenn og ungt fólk um réttindi sín og skyldur.
l Að upplýsa erlend fyrirtæki og aðra atvinnurekendur sem ráða erlenda
starfsmenn og ungt fólk um skyldur sem því fylgja.
l Að upplýsa brot á vinnumarkaði, krefjast úrbóta og koma upplýsingum
um meint brot til viðkomandi stjórnvalda og eftirlitsstofnana.
l Að upplýsa íslenskt launafólk og allan almenning um mikilvægi þess
að uppræta undirboð á vinnumarkaði og svarta atvinnustarfsemi.
12 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
C
F
-4
8
8
0
2
1
C
F
-4
7
4
4
2
1
C
F
-4
6
0
8
2
1
C
F
-4
4
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K