Fréttablaðið - 15.12.2018, Side 100
Ertu með viðkvæmar tennur?
SensiVital+ er einstakt tannkrem frá GUM með tvöfaldri virkni sem veitir
fljótvirka en langvarandi vörn fyrir viðkvæmar tennur og vinnur gegn
tannkuli. Hin tvöfalda virkni ver taugar í tannkviku og þéttir tannbeinið.
Tannkremið hjálpar til við að losa skán og matarleyfar, vinna gegn
tannkuli og koma í veg fyrir tannskemmdir.
Sölustaðir: Flest apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup.
Tvöföld virkni
alhliða lausn
segir Björn. „Já, á Íslandi vinnum
við alltaf með þema eða orðtök sem
tengjast staðnum,“ útskýrir Elsa.
Þau tóku land í Danmörku. „Í
Árósum máluðum við vegg hjá gam-
alli lestarstöð. Þar rétt hjá lét borgin
setja upp nokkra gáma fyrir fólk í
sprotastarfsemi sem vildi búa ódýrt
og koma undir sig fótunum. Þetta
átti bara að vera mánaðarverkefni,
þar til byggð yrði verslunarmiðstöð
á staðnum, en síðan eru liðin níu ár
og hverfið orðið allstórt. Það heitir
Godsbanen,“ lýsir Elsa. „Á meðan
fólk er að vinna að verkefninu og
það er að ganga upp getur það leigt
ódýrt. Svo er því skipt út.“ „Já,“ segir
Björn. „Godsbanen er orðinn mið-
punktur Árósa. Þeir Ari Marteinsson
og Arnar Ómarsson komu að þessu
verkefni, þeir voru líka með Reiti á
Siglufirði. Í Godsbanen kynntumst
við öðrum Íslendingi, Elí, sem er
orðinn einhvers konar forsprakki
noise-tónlistarsenunnar þarna úti
og leigir lítið hús þarna rétt hjá sem
við fengum svo að endurmála. Svo
fórum við til Köben, gistum í göml-
um herbát í höfninni og máluðum
vegg þar nærri.“
Ekki voru Björn og Elsa með full-
mótaðar hugmyndir um áfangastaði
og verkefni áður en þau héldu af
stað heldur spiluðu af fingrum fram.
„Við vorum búin að skipuleggja
Árósaverkefnið að hluta og svo
leiddi eitt af öðru. Það er skemmti-
legt að mæta á svæði og komast inn
í samfélag með því að hitta áhuga-
vert fólk dálítið tilviljanakennt,“
segir Elsa.
Í Hamborg segir Björn þau hafa
búið á hústökusvæði í miðborg-
inni. „Nokkrar blokkir voru teknar
yfir af listamönnum fyrir sjö til tíu
árum og borgin endaði á að gera
leigusamninga við fólkið. Þar er nú
alls konar rekstur og hverfið alltaf
að verða vinsælla. Þessi staður
myndar áhugaverða mótsögn við
nærumhverfi sitt, þess má geta að
Fyrsti viðkomustaðurinn erlendis
var í Árósum í Danmörku. Þar skildu
Björn og Ása eftir sig þetta verk.
Í Kíev, höfuðborg Úkraínu, skreyttu Björn og Elsa skóla í fjölmennu hverfi.
Bíllinn var í senn heimili parsins og vinnustofa.
höfuðstöðvar Google í Þýskalandi
eru þeirra næsti nágranni. Þar ganga
menn um í fínum fötum en hinum
megin við götuna er svo kannski
berfættur anarkisti að gera við bíl-
inn sinn. Á bar í hverfinu velur fólk
hvað það borgar. Það fer eftir efna-
hag. Fær kaffi þó það eigi engan
pening, hinir borga eftir getu.“
Spurð hvort mikil eiturlyfjaneysla
sé í svona hverfum segja þau hana
ekki óeðlilega. „Þetta er engin Krist-
janía. Þarna er meira um að fólk
sé bara að reyna að lifa af litlu, til
dæmis með reiðhjólaviðgerðum,“
lýsir Elsa.
Alls staðar segjast þau fá greitt
fyrir sín vegglistaverk og gafla. „Við
erum alltaf á einhvers vegum að
mála,“ segir Elsa. „ Reyndar mál-
uðum við „Flatus lifir“ á vegginn
uppi í Kollafirði fyrir ekki neitt. Það
var meðal okkar fyrstu verkefna.“ En
hvernig kynnast þau rétta fólkinu?
„Eitt leiddi bara af öðru í okkar
ferð. Við gátum tekið okkur þann
tíma sem við þurftum og það var
aldrei nein pressa. Gistum bara
í bílnum og elduðum þar líka,
bensínið var aðalkostnaðurinn og
málningin. Við vorum með íbúð á
hjólum og ekkert stress á okkur,“
segir Elsa og Björn kemur með
dæmi um hvernig þau skipulögðu
sig þegar þau fóru frá Póllandi yfir
til Úkraínu. „Við vorum búin að
kynnast fólki í Varsjá og spurðum
það hvort það þekkti einhverja í
Lviv. Það benti okkur á bar á helsta
listamannasvæðinu þar, stóru verk-
smiðjusvæði og þegar þangað kom
sagði afgreiðslumaðurinn: „Heyrðu,
vinur minn er vegglistamaður, viltu
ekki hitta hann?“ Svona gekk þetta
koll af kolli.“
Þau segja Lviv vera gamla pólska
borg en í Úkraínu núna. Áhugaverða
borg. „Taxarnir þar eru gamlar lödur
og göturnar innanbæjar eru grófari
en fjallvegurinn yfir Öxi. En við
kynntumst listasenunni og gistum
nokkrar vikur á stóru verksmiðju-
svæði þar sem öllu ægði saman,
skrifstofum, galleríum og sóða-
legum verkstæðum.“
Um helmingur íbúanna talaði
einhverja ensku, að sögn Björns.
„Öryggisvörður á svæðinu okkar tal-
aði bara úkraínsku en talaði mikið
og notaði látbragð óspart, meðal
annars til að lýsa stríðinu. Hann var
alltaf að koma með epli af trénu í
garðinum hjá mömmu sinni til að
gefa okkur.“
Í vetur hyggjast Björn og Elsa
halda sýningaröð hringinn í kring
um Ísland og staldra við á Flateyri
að kenna í lýðháskólanum.
↣
1 5 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R50 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
C
F
-6
6
2
0
2
1
C
F
-6
4
E
4
2
1
C
F
-6
3
A
8
2
1
C
F
-6
2
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
4
4
s
_
1
4
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K