Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 12

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 12
12 Ljósmæðrablaðið - júlí 2015 var talsvert ólík þáttabyggingu BATM en þáttabygging Í-OBSC var svo til sambærileg OBSC. Hvað varðar Í-BATM þá hefur einungis einn þáttur, Leynd, svo til sömu byggingu í úrtökum sem listarnir tveir byggjast á, en einn þáttur BATM (Ánægjulegar) dettur alveg út úr íslensku útgáfunni og annar þáttur (Máttur) er í Í-BATM en ekki BATM. Hvað veldur ólíkum þáttabyggingum er erfitt að segja til um. Þættirnir í Í-BATM byggjast á úrtaki hjúkrunarfræðinema og er kannski um frekar einsleitan hóp að ræða. Sama má segja um útgáfu BATM sem byggist á frekar litlum úrtökum bandarískra og mexíkóskra háskólastúdenta. Þáttahleðslur atriða á þætti eru ekki alveg ótvíræðar í Í-BATM en sjö atriði hlaðast umtalsvert á aðra þætti. Þetta bendir til þess að viðhorf til tíðablæðinga sé flókið hugtak sem ekki sé einfalt að mæla á afdráttarlausan hátt. Innra samræmi þátta í Í-BATM var hins vegar gott en Cronbachs-α var í öllum tilvikum yfir 0,7 sem er vel viðunandi þegar til skoðunar eru sálfræðileg hugtök líkt og viðhorf eru (Field, 2013, bls.709). Fylgni milli þátta var jafnframt þokkaleg. Í heild þýðir það að þættirnir mæla afstöðu til mismunandi hugmynda um blæðingar og gefa mynd af viðhorfum íslenskra kvenna til blæðinga. Í ljósi þessa var ákveðið að nota þáttabygginguna sem kom fram í okkar greiningu í Í-BATM. Hins vegar eru þættirnir ekki að öllu leyti sambærilegir við BATM og ber því að fara varlega í að bera saman niðurstöður rannsókna sem nota þessar tvær útgáfur af mælitækinu. Þáttabygging Í-OBSC er að mestu sambærileg við OBSC og þáttahleðslur bærilegar. Einungis eitt atriði hlóðst í annan þátt í íslensku útgáfunni en í þeirri bandarísku og er það fyllilega viðunandi en smávægilegur munur getur verið á því hvernig atriði hlaðast í mismunandi úrtökum innan sama menningarsvæðis (Field, 2013). Fylgni milli þáttanna er viðunandi. Þetta þýðir að þættirnir mæla mismunandi hugmyndir og til samans gefa þeir mynd af hlutgerðri líkamsvitund íslenskra kvenna og unnt er að bera niðurstöður saman við niðurstöður rannsókna sem nota bandarísku útgáfuna. Viðhorf þátttakenda til blæðinga voru frekar hlutlaus. Konunum finnst þó frekar skapraun að þeim en telja ekki að þeim beri að leyna. Í samanburði við mexíkósk og bandarísk úrtök háskólastúdína (Marván o.fl., 2006) finnst íslenskum hjúkrunarstúdínum síður skapraun af blæðingum og þær leyna þeim síður. Eins og hefur komið fram féll þátturinn Ánægjulegar úr BATM svo til alveg inn í þáttinn Skapraun í Í-BATM og getur það skýrt mun á niðurstöðum varðandi þann þátt. Að því sögðu þá eru viðhorf þátttakenda í íslensku rannsókninni jákvæðari en þátttakenda ýmissa annarra rannsókna á viðhorfi kvenna til blæðinga (Marván og Trujillo, 2009; Kim, 2005; Charlesworth, 2001; Lu, 2001). Fram kemur ákveðin þversögn í niðurstöðum varðandi hlutgerða líkamsvitund en þátttakendur hallast frekar að því að það sé í góðu lagi þó líkaminn falli ekki alveg að menningarlegum kröfum um hvernig hann eigi að líta út, telja sig geta stjórnað útliti sínu og fylgjast vel með því og hugsa meira um líkamann út frá ásýnd hans en líkamlegri líðan. Þeir reyndust jafnframt talsvert frábrugðnir bandarísku háskólastúdínunum þegar horft var til hlutgervingar líkamsímyndar. Þversögnin felst í því að segja að það sé allt í lagi að vera öðruvísi en jafnframt vera frekar upptekin af útliti líkamans og telja sig hafa fulla stjórn á því. Takmarkanir Aukinn breidd í aldri, menntun, starfi og búsetu í úrtakinu hefði aukið á fjölbreytileika þess en einsleitni úrtaks er ókostur þegar þáttabygging hugtaka er til skoðunar. Áhugavert verður að skoða hvort munur verður á þáttabyggingu mælitækjanna tveggja í fjölbreyttara úrtaki. Þá má kannski finna að því að ekki var beitt staðfestandi þáttagreiningu (e. confirmatory factor analysis) í greiningu okkar. Ástæðan er að markmiðið var að skoða þáttabyggingu í íslensku úrtaki en ekki endilega staðfesta að mælitækið væri eins og bandarísku útgáfurnar. Vikið var frá því skilyrði að við þáttabyggingar skyldu öll atriði hafa þáttahleðslu yfir 0,35 eins og ráðlagt er. Innra samræmi þáttanna var hins vegar meira þegar atriðin voru höfð með og teljum við það fullnægjandi rök fyrir því að halda atriðunum inni. Ályktun Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að þáttabygging Í-BATM og Í-OBSC sé nothæf og mæli annars vegar viðhorf til tíðablæðinga og hins vegar hlutgerða líkamsvitund íslenskra kvenna. Endanleg staðhæfing á hæfi þáttanna fæst fyrst með rannsókn á fjölbreyttara úrtaki. ÞAKKARORÐ Höfundar vilja þakka þátttakendum rannsóknarinnar fyrir þátttökuna og starfsfólki á skrifstofu Hjúkrunarfræðideildar fyrir veitta aðstoð. HEIMILDASKRÁ Brantelid, I. E., Nilvér, H. og Alehagen, S. (2014). Menstruation during a lifespan: A qualitative study of women‘s experiences. Health Care for Women International, 35(6), 600‒616. Brynja Örlygsdóttir og Erla Kolbrún Svavarsdóttir (2005). Alþjóðlegar og þvermenningarlegar rannsóknir: Aðferðir við þýðingu á mælitækjum. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 3(81), 8‒14. Charlesworth, D. (2001). Paradoxical constructions of self: Educating young women about menstruation. Women and Language, 24(2), 13‒20. Erchull, M. J. (2013). Distancing through objectification? Depictions of women‘s bodies in menstrual product advertisements. Sex Roles, 68, 32‒40. Field, A. (2013). Discovering statistics using IBM SPSS statistics. London: Sage. Forbes, G. B., Jobe, R. L. og Revak, J. A. (2006). Relationships between dissatisfaction with specific body characteristics and the sociocultural attitudes toward appearance questionnaire-3 and objectified body consciousness scale. Body Image, 3(3), 295‒300. Fredrickson, B. L. og Roberts, T. A. (1997). Objectification theory: Toward understanding women‘s lived experiences and mental health risks. Psychology of Women Quarterly, 21(2), 173‒206. Herdís Sveinsdóttir (2012). Varð ég kona í dag? Í Helga Gottfreðsdóttir (ritstjórar) og Herdís Sveinsdóttir, Við góða heilsu? Konur og heilbrigði í nútímasamfélagi (bls. 19‒29). Reykjavík: Háskólaútgáfan. Johnston-Robledo, I., Ball, M., Lauta, K. og Zekoll, A. (2003). To bleed or not to bleed: Young women’s attitudes toward menstrual suppression. Women & Health, 38, 59–75. Johnston-Robledo, I., Sheffield, K., Voigt, J. og Wilcox-Constantine, J. (2007). Reproductive shame: Self-objectification and young women‘s attitudes toward their reproductive functioning. Women & Health, 46(1), 25‒39. Johnston-Robledo, I. og Chrisler, J. C. (2013). The menstrual mark: Menstruation as social stigma. Sex Roles, 68(1‒2), 9‒18. Jones, P. S., Lee, J. W., Phillips, L. R., Zhang, X. E. og Jaceldo, K. B. (2001). An adaptation of Brislin‘s translation model for cross-cultural research. Nursing Research, 50(5), 300‒304. Fylgstu með okkur á Facebook / www.gamlaapotekid.is Fást í öllum helstu apótekum um land allt VELJUM ÍSLENSKT Barnalínan frá Gamla apótekinu inniheldur engin viðbætt ilm- og litarefni. Vörurnar í Barnalínunni eru íslenskar vörur þróaðar í samstarfi við lækna og lyfjafræðinga. PI PA R \ TB W A • S ÍA • 1 31 03 2 / BARNIÐ Verndar og nærir dýrmæta húð   

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.