Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 18

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 18
18 Ljósmæðrablaðið - júlí 2015 var ein algengasta viðbótarmeðferðin, 159 konur í þeirra rannsókn (49,5%) fóru í nudd á meðgöngunni. Niðurstöður okkar voru einnig nokkuð samhljóða þeirra niðurstöðum varðandi notkun ilmkjarna- olíu og jóga á meðgöngu. Ljósmæður eru helstu hvatningaraðilar um notkun viðbótarmeðferða á meðgöngu og konur fá helst upplýsingar um notkun meðferðanna frá þeim. Niðurstöðurnar sýndu að tæplega helmingur kvennanna, 20 (45,5%), hafði fengið hvatningu til að nota viðbótarmeðferðir á meðgöngu og fengu 14 konur (45,2%) hvatningu frá ljósmæðrum, 5 konur (16,1%) fengu hvatningu frá læknum og 11 konur (36,7%) frá vinum. Rannsóknir sýna að ljósmæðrum finnst viðbótarmeðferðir gagnast barnshafandi konum og ljósmæðrunum finnst jafnframt að með því að ráðleggja um og beita viðbótarmeðferðum öðlist þær aukinn fjölbreytileika og dýpt í starfi sínu (Gaffney og Smith, 2004; Williams og Mitchell, 2007 ). Á sama tíma finnst konunni að verið sé að veita henni einstaklingsmiðaða þjónustu sem eykur ánægju hennar með þjónustuna (Anna Sigríður Vernharðsdóttir o.fl., 2009). Séu niðurstöður þessarar rannsóknar bornar saman við erlendar rannsóknir þá kemur í ljós að um 65‒100% ljósmæðra víða um heim nota óhefðbundnar meðferðir í starfi sínu (Bayles, 2007; Hall, Griffiths og McKenna 2012b; Kalder o.fl., 2011; Mitchell, Hobbs og Pollard, 2006). Þá hvetja 78‒96% ljósmæðra í Ástralíu barnshafandi konur að leita til aðila sem stunda viðbótarmeðferðir (Gaffney og Smith, 2004) sem er hærra hlutfall en þessi forprófun gefur vísbendingar um. Til þess að álykta hvers vegna íslenskar ljósmæður virðast hlutfallslega sjaldnar nota og ráðleggja um notkun viðbótarmeðferða en erlendir kollegar þyrfti stærra úrtak og mögulega rannsókn á þeim þáttum sem eru hindrandi og hvetjandi varðandi ráðleggingar og notkun viðbótarmeðferða hér á landi. Einnig þyrfti að skoða meðal ljósmæðra hve stórt hlutfall þeirra notar viðbótarmeðferðir í meðgönguvernd. Þó má benda á að í leiðbeiningum um meðgönguvernd fyrir heilbrigðar konur er það tekið fram að fáar óhefðbundnar meðferðir séu taldar öruggar og áhrifaríkar og hefur það mögulega áhrif á upplýsingagjöf ljósmæðra og notkun þessara meðferða (Embætti Landlæknis, 2010). Rannsóknir sýna að almennt virðast viðhorf ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga gagnvart viðbótarmeðferðum jákvæðari en lækna (Gaffney og Smith, 2004; Münstedt o.fl., 2009; Samuels o.fl., 2010). Þátttaka lækna er lítil í meðgönguvernd hjá heilbrigðum konum hér á landi og því erfitt að draga ályktanir út frá okkar aðstæðum og bera saman við erlendar rannsóknir sem framkvæmdar eru á stöðum þar sem læknar gegna stærra hlutverki í meðgönguvernd. Veikleiki rannsóknarinnar er smæð úrtaksins og að allar konurnar fæddu á sama staðnum. Bakgrunnsupplýsingar úrtaksins samræmast tölum um þýðið. Það styrkir gildi rannsóknarinnar að niðurstöður samræmast að miklu leyti erlendum rannsóknum. LOKAORÐ Út frá þessum niðurstöðum er hægt að álykta að fræðsla um viðbótarmeðferðir og hvatning um að nota öruggar meðferðir frá ljósmæðrum og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum sem veita þjónustu í meðgönguvernd geti stuðlað að árangursríkari notkun meðferðanna. Að konum líði vel á meðgöngu er kappsmál þeirra sem vinna með barnshafandi konum. Að sama skapi er mikilvægt að ráðleggja konum hvað þær eiga að forðast varðandi viðbótarmeðferðir þar sem ekki hefur verið sýnt fram á skaðleysi með rannsóknum og einnig að þær sjálfar séu gagnrýnar á hvað þær nota og gera á meðgöngunni. Fræðsla á meðgöngu, byggð á áreiðanlegum upplýsingum sem kemur til móts við einstaklingsbundnar þarfir barnshafandi kvenna er besti grunnurinn að traustu sambandi ljósmóður og skjólstæðings hennar. Fjölbreytni í þjónustu eykur einnig ánægju hjá bæði ljósmóður og barnshafandi konum en skoða þarf betur notkun viðbótarmeðferða hjá konum á meðgöngu með stærra úrtaki og ætti að vera hægt að nýta þennan spurningalista til þess. Einnig mætti kanna hvort einhver tengsl eru á milli notkunar viðbótarmeðferða meðal barnshafandi kvenna og þekkingar ljósmæðranna sem sinna þeim á meðgöngu og/eða í fæðingu. Þar sem inntaka vítamína virðist í samanburði við erlendar rannsóknir vera mikil í úrtakinu væri fróðlegt að rannsaka nánar notkun vítamína, bætiefna og jurtalyfja þar sem ekki er mikið vitað um áhrif ýmsa bætiefna á heilbrigði fósturs. Auk þess væri áhugavert að skoða skráningu á viðbótarmeðferðum í meðgönguvernd. ÞAKKIR Við þökkum þeim konum sem tóku þátt í rannsókninni fyrir að leggja okkur lið og þeim ljósmæðrum sem kynntu rannsóknina og söfnuðu gögnum. HEIMILDASKRÁ Adams, J., Sibbritt, D. W., Easthope, G. og Young, A. F. (2003). The profile of women who consult alternative health practitioners in Australia. Medical Journal of Australia, 179(6), 297‒301. Adams, J., Lui, C. W., Sibbritt, D., Broom, A., Wardle, J og Homer, C. (2009). Attitudes and referral practices of maternity care professionals with regard to complementary and alternative medicine: An integrative review. Journal of Advanced Nursing, 67(3), 472‒483. Adams, J., Sibbritt, D. og Lui, C.‒W. (2011). The use of complementary and alternative medicine during pregnancy: A longitudinal study of Australian women. Birth, 38(3), 200‒206. Anna Sigríður Vernharðsdóttir, Stefanía Guðmundsdóttir, Helga Sigurðardóttir, Þóra Jenný Gunnarsdóttir og Helga Gottfreðsdóttir. (2009). Nálastungumeðferð í ljósmóðurstarfi. Í Helga Gottfreðsdóttir og Sigfríður Inga Karlsdóttir (ritstj.), Lausnarsteinar. Ljósmóðurfræði og ljósmóðurlist. (bls. 123‒143) Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag, Ljósmæðrafélag Íslands. Bishop, J. L., Northstone, K., Green, J. R. og Thompson, E. A. (2011). The use of complementary and alternative medicine in pregnancy: Data from the Avon longitudinal study of parents and children (ALSPAC). Complementary Therapies in Medicine, 19(6), 303‒310. Björg Helgadóttir, Rúnar Vilhjálmsson og Þóra Jenný Gunnarsdóttir. (2010). Notkun óhefðbundinnar heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Læknablaðið, 95(4), 267‒273. Brynja Örlygsdóttir og Erla Kolbrún Svavarsdóttir. (2005). Alþjóðlegar og þvermenningarlegar rannsóknir: Aðferðir við þýðingu á mælitækjum. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 3(81), 8‒14. Comley, A. L. (2008). A comparative analysis of Orem´s self-care model and Peplau’s interpersonal theory. Journal of Advanced Nursing, 20(4), 755‒760. Costa, D., Dritsa, M., Verreault, N., Balaa, C., Kudzman, J. og Khalifé, S. (2010). Sleep problems and depressed mood negatively impact health-related quality of life during pregnancy. Archives of Women‘s Mental Health, 13(3), 249‒257. Dillman, D. A. (2000). Mailand Internet surveys: The tailored design method (2. útgáfa). New York: JohnWiley & Sons, Inc. Embætti landlæknis. (2008). Matur og meðganga. Sótt 14. apríl 2013 af: http://www. landlaeknir.is/servlet/file/store93/item11446/version16/MaturMedganga3ja_ utg_2008.pdf Embætti landlæknis. (2010). Meðgönguvernd heilbrigðra kvenna í eðlilegri meðgöngu. Klínískar leiðbeiningar. Sótt 29. mars 2013 af: http://www.landlaeknir.is/servlet/file/ store93/item2548/4407.pdf Evans, M. (2009). Post date pregnancy and complementary therapies. Complementary Therapies in Clinical Practice, 15(4), 220‒224. Gaffney, L. og Smith, C. A. (2004). Use of complementary therapies in pregnancy: The perceptions of obstetricians and midwives in South Australia. The Australian and New Zealand Journal of Obstetrics and Gynaecology, 44(1), 24‒29. Grigg, C. (2006).Working with women in pregnancy. Í S. Pairman, J. Pincombe, C. Thorogood og S. Tracy (ritstj.), Midwifery: Preparation for practice (bls. 341‒374). Australia: Churchill Livingstone. Green, J. M. og Baston, H. A. (2003). Feeling in control during labor: Concepts, correlates, and consequences. Birth, 30(4), 235‒247. Hagstofa Íslands. (2012). Mannfjöldi eftir menntunarstöðu 2003‒2011, hlutfallsleg skipting. Sótt 17. apríl 2013 af: http://hagstofa.is/?PageID=2604&src=/temp/Dialog/ varval.asp?ma= SKO00010%26ti=Mannfj%F6ldi+eftir+menntunarst%F6%F0u+ 2003%2D2011%2C+hlutfallsleg+skipting++++++++++++%26path=../Database/ skolamal/yfirlit/%26lang=3%26units=hlutfall Hagstofa Íslands. (2013). Fæddir og dánir. Sótt 17. apríl 2013 af: http://hagstofa.is/ Hagtolur/Mannfjoldi/Faeddir-og-danir Hall, H. G., Griffiths, D. L. og McKenna, L. G. (2011). The use of complementary and alternative medicine by pregnant women: A literature review. Midwifery, 27(6), 817‒824. Hall, H. G., McKenna, L. G. og Griffiths, D. L. (2012a). Complementary and alternative medicine for induction of labour. Women and Birth, 25(3), 142‒148. Hall, H. G., McKenna, L. G. og Griffiths, D. L. (2012b). Midwives’ support for Complementary and Alternative Medicine: A literature review. Women and Birth, 25(1), 4‒12. Kalder, M., Knoblauch, K., Hrgovic, I. og Münstedt, K. (2011). Use of complementary and alternative medicine during pregnancy and delivery. Archives of Gynecology and Obstetrics, 283(3), 475‒482. Maio, G. R. og Haddock, G. (2010). The Psychology of Attitudes and Attitude Change. (2. útgáfa). London: Sage Publications. Með því að nota mild þvottaefni eins og MILT, dregur þú úr líkum á því að þú eða einhverjir í þinni fjölskyldu fái ofnæmi eða exem. ÁN OFNÆMIS- VALDANDI EFNA Farðu mildum höndum um þIg, þVOttINN og uMhVErFIð 40 þVOttAr í 2 kg pAkkA Þú þarft minna af MILT því það er sérþróað fyrir íslenskt vatn.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.