Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 20

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 20
20 Ljósmæðrablaðið - júlí 2015 ÚTDRÁTTUR Á Ljósmæðravakt Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) fara fram eðlilegar fæðingar í umsjón ljósmæðra. Erlendar rannsóknir sýna að hægt er að reka slíka þjónustu á hagkvæman og öruggan hátt með minni líkum á inngripum í eðlilegt barneignarferli. Markmið þessarar megindlegu rannsóknar með lýsandi afturvirku rannsóknarsniði var að kanna útkomu fæðinga og undirbúning fyrir fæðingu. Úrtakið eru 145 konur sem fæddu á HSS frá 1. maí 2010 til 1. maí 2011 og af þeim fengu 66 konur undirbúning fyrir fæðinguna í formi jóga, nála- stungna og fræðslu. Helstu niðurstöður voru þær að útkoma spangar var góð. Ein kona hlaut 3° rifu og engin 4° rifu. Lítil notkun sterkra verkjalyfja er á deildinni. Flestar konur notuðu baðið sem verkjastillingu eða 67%, glaðloft var notað í 23% tilfella og pethidín og phenergan voru notuð í 12% tilfella. Inngrip í fæðingu voru lítil en belgjarof var gert í 23% tilvika. Notkun syntocinons til örvunar var í 11% tilvika. Í 4% tilvika þurfti að beita léttri sogklukku í fæðingu. Blæðing meiri en 500 ml var 5% hjá 8 konum. Meðal Apgar skor barna var 8,5 eftir 1 mínútu og 9,7 eftir 5 mínútur. Þær konur sem fóru í meðgöngujóga þurftu síst sterk verkjalyf og notuðu vatnsbað til verkjastillingar (84%). Marktækur munur (p = 0,003) gefur til kynna að þær konur sem stunduðu meðgöngujóga, fengu undirbúningsnálar og fóru á foreldrafræðslunámskeið komu betur undirbúnar fyrir fæðinguna og notuðu frekar vatnsbað sem verkjastillingu. Þar sem úrtakið var lítið er frekari rannsókna þörf. Niðurstöðurnar um ljósmæðrarekna þjónustu á HSS hvetja til upplýsts vals kvenna í eðlilegri meðgöngu og fæðingu um að fæða í heimabyggð. Lykilorð: Ljósmæðrarekin þjónusta, samfelld þjónusta, eðlileg fæðing, útkoma, meðgöngujóga, nálastungur. INNGANGUR Val á fæðingarstað, fjölbreytileiki og mismunandi þjónustustig til að koma til móts við þarfir barnshafandi kvenna og fjölskyldna þeirra er nauðsynlegur í barneignaþjónustunni (Ljósmæðrafélag Íslands, 2000). Mikilvægt er að fæðingarstaðir verði ekki færri en þeir eru nú, en þeim hefur fækkað úr 15 niður í 8, auk heimafæðinga, á árunum 2000 til 2013 (Ragnheiður I. Bjarnadóttir, Guðrún Garðarsdóttir, Er heimabyggð rétti staðurinn fyrir konur í eðlilegri fæðingu? Afturvirk lýsandi rannsókn á útkomu eðlilegra fæðinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja F R Æ Ð S L U G R E I N RANNSÓKN Ólöf Ásta Ólafsdóttir, ljósmóðir PhD. Lektor við námsbraut í ljósmóðurfræði við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands Steina Þórey Ragnarsdóttir, ljósmóðir M.Sc. á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.