Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Qupperneq 36
36 Ljósmæðrablaðið - júlí 2015
Meðganga og
Staphylococcus lugdunensis
Á innan við einu ári hafa rekið á fjörur mínar
tvær þungaðar konur, búsettar á sitt hvoru
landshorninu, í auka mæðraskoðun vegna verkja
og óþæginda. Báðar lýstu svipuðum einkennum.
Voru þær gengnar yfir 34 vikur og áttu von á
öðru barni. Báðar konurnar voru með þrýstings-
verki/samdrætti og eymsli yfir legi, þrýsting
niður í leggöng auk ríkulegrar gulgrænleitrar
útferðar. Héldu þær jafnvel að legvatn væri
farið að renna, sem ekki reyndist vera. Eðlileg
lífsmörk mældust hjá þeim og hjartsláttarrit
voru eðlileg. Vegna einkenna var tekið strok
frá leggöngum og sent í ræktun, næmispróf og
talningu (RNT). Hjá annarri konunni var strokið
endurtekið og sent til Reykjavíkur í nánari
skoðun, þar sem erfitt var að greina sýnið.
Niðurstöður ræktunar hjá báðum þessum
konum sýndu að þær voru með Staphylococcus
lugdunensis í leggöngum. Kemur það heim
og saman við lýsingu kvennanna á útferðinni
sem var gulgrænleit eins og einkennir vöxt S.
lugdunensis (Babu og Oropello, 2011).
Næmi var fyrir venjulegum sýklalyfjum eins og penicillini og
erythromycini. Fengu þær báðar sýklalyf á meðgöngunni og fór
fljótlega að líða betur og urðu einkennalausar. Önnur kvennanna
hefur fætt þegar þetta er skrifað og gekk fæðing eðlilega fyrir sig.
Ekki var merki um sýkingu hjá konu eða barni í kjölfar hennar. Hin
er enn í meðgöngu, en líður mikið betur og upplifir ekki lengur þau
einkenni sem hún lýsti við komu í mæðraverndina.
Staphylococcus lugdunensis er grampósitív baktería, coagulus
negatív, sem fyrst var lýst af Freney og félögum árið 1988. Er
nafn hennar dregið af latnesku heiti borgarinnar Lyon í Frakklandi,
þar sem hún greindist fyrst (Babu og Oropello, 2011; Shah o.fl.,
2010). Hefur verið sýnt fram á að S. lugdunensis tengist sýkingum
í hjartaþeli, blóði, veldur bráða ígerðum (septic shock og toxic
shock syndrome), bráðum munnsýkingum og þvagfærasýkingum.
Staphylococcus lugdunensis er einnig þekktur orsakavaldur fyrir
sýkingum í liðum, beinum og húð, ekki síst í tengslum við skurð-
aðgerðir, svo og í taugakerfi, það er mænu og heila. Þá hefur S.
lugdunensis verið tengd alvarlegum sýkingum hjá mæðrum eftir
fæðingu, hefur ræktast úr legvatni við keisaraskurð og þekkt fyrir að
valda n ýburasýkingum (Marchohcki o.fl., 2013; Shaaban, Choo og
Sensakovic, 2011; Shah o.fl., 2010; Srun o.fl. 2013). Þessir greina-
höfundar taka þó fram að þörf sé á frekari rannsóknum tengdum
S. lugdunensis. Sýnt hefur verið fram á að sýking af völdum S.
lugdunensis hefur valdið fósturláti hjá kúm (Ardigó, D´Incau og
Pongolini, 2014) og nefna höfundar að þessi baktería sé vangreind
og ætti að hafa hana í huga þegar leitað er eftir orsökum sýkinga.
Í ýmsum þeim greinum sem hér er vitnað til er S. lugdunensis
(Ardigò, D‘Incau og Pongolini, 2014; Marchocki o.fl., 2013) talin
vera oft misgreind sem Staphylococcus aureus. Kemur það heim
og saman við það sem lífeindafræðingar þeir
sem rannsökuðu þessi sýni sögðu. Nefndu þeir
að S. lugdunensis væri jafnvel ekki greind rétt
þar sem það þarf fleiri próf og lengri tíma til að
greina hana en ýmsa ættingja hennar. Þess vegna
sé gott að muna eftir tilvist hennar þegar stap-
hylococcar greinast í sýnum (munnleg heimild
Sigurlaug Þráinsdóttir, 23. október 2014).
Af þessari litlu samantekt um tvö atvik í
mæðravernd á árinu 2014 sem tengjast Stap-
hylococcus lugdunensis tel ég að hafa beri í
huga að taka sýni frá leggöngum hjá konum á
meðgöngu sem lýsa óþægindum og vanlíðan
eins og raunin var í þessum atvikum og láta
rækta og greina eins nákvæmlega og kostur er.
Komi í ljós að þær greinist með Staphylococcus
lugdunensis er rétt að meðhöndla þær með
viðeigandi sýklalyfjum til varnar frekari
einkennum og minnka með því líkur á að kona
og barn veikist alvarlega.
HEIMILDASKRÁ
Ardigò, P., D‘Incau, M. og Pongolini, S. ( 2014, 7. október). Abortion in cattle due to
infection with Staphylococcus lugdunensis. Journal of Veterinary Diagnostic Inve-
stigation. doi: 10.1177/1040638714550182
Babu, E. og Oropello, J. (2011). Staphylococcus lugdunensis: The coagulase-negative
staphylococcus you don´t want to ignore. Expert Review of Anti-infective Therapy,
9(10), 901‒907. doi: 10.1586/eri.11.110
Marchocki, Z., Collins, K., Lehane, E., O´Reilly, P. og O´Donognue, K. (2013). Stap-
hylococcus lugdunensis cultured from the amniotic fluid at caesarean section. Plos
One, 8(2): e56373. doi:10.1371/journal.pone.0056373
Shaaban, H.S., Choo, H.F. og Sensakovic, J.W. (2011). A case of staphylococcus
lugdunensis related pyomyoma occurring after caesarean section. Journal of Global
Infectious Diseases, 3, 101‒102.
Shah, N.B., Osmon, D. R., Fadel, H., Patel, R., Kohner, P.C. Steckelberg J.M. o.fl.
(2010). Laborathory and clinical characteristics of staphylococcus lugdunensis prost-
hetic joint infections. Journal of Clinical Microbiology, 5, 1600‒1603. doi: 10.1128/
JCM.01769-09.
Srun, S., Sinath, Y., Seng, A.T., Chea, M., Borin, M., Nhem, S., o.fl. (2013, 15. ágúst).
Surveillance of post-caesarean surgical site infections in a hospital with limited
resources, Cambodia. The Journal of Infection in Developing Countries 7(8):
579‒585 doi:10.3855/jidc.2981
Björg Sigurðardóttir
ljósmóðir B.ed., M.Sc á
heilbrigðisstofnun Suðurnesja