Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Qupperneq 48

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2015, Qupperneq 48
48 Ljósmæðrablaðið - júlí 2015 Heiðursfélagar Eins og fram hefur komið voru þrír heiðursfélagar tilnefndir á afmæli félagsins. Það voru þær Elín Hjartardóttir, Margrét Guðmundsdóttir og Hildur Kristjánsdóttir sem allar hafa starfað ötullega fyrir félagið og fyrir stéttina í heild. 100 ára afmæli félagsins Undirbúningur er hafinn fyrir 100 ára afmæli félagsins 2019. NJF ráðstefna verður haldin, væntanlega í Hörpu. Formaður undir- búningsnefndar er Ástþóra Kristinsdóttir og formaður fræðilegrar nefndar er Helga Gottfreðsdóttir. Erla Doris Halldórsdóttir sagnfræðingur hefur hafist handa við að skrá sögu félagsins frá 1979 og nefnd er starfandi til undirbún- ings útgáfu nýs ljósmæðratals. Ýmsar aðrar hugmyndir eru uppi sem skoða þarf betur. NJF Félagið hefur tekið þátt í NJF samstarfi. Formaður LMFÍ, Hildur Kristjánsdóttir, forseti NJF og Helga Gottfreðsdóttir lektor fóru til Kaupmannahafnar á samnorrænan fund vegna menntunarmála ljós- mæðra á Norðurlöndum. Þeim fundi eru gerð góð skil í 2. tölublaði Ljósmæðrablaðsins 2014. Stjórnarfundur NJF er fyrirhugaður á Íslandi í maí á þessu ári. ICM Formaður LMFÍ sótti miðstjórnarfund ICM í Prag og ráðstefnu í kjölfarið. Málefni heilsugæslu höfuðborgarinnar Félagið hefur skrifað stjórn heilsugæslunnar bréf þar sem þess hefur verið farið á leit að staða yfirljósmóður í mæðravernd sem heimild er fyrir samkvæmt stofnanasamningi verði auglýst laus til umsóknar og ráðið í hana í kjölfarið. Engin svör hafa borist. Formaður fundaði einnig með formanni Félags íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna um fyrirhugaðar breytingar á rekstrarformi heilsugæslunnar. Enginn sem hefur bein afskipti af mæðravernd er í nefnd varðandi breytingarnar og lék okkur forvitni á að vita með hvaða hætti mæðravernd yrði fyrir- komið innan breyttrar heilsugæslu. Við héldum því á fund ráðherra og ræddum málið. Hann staðfesti að breytingar á rekstrarformi stæðu fyrir dyrum en engar breytingar yrðu á mæðravernd nema þá til hins betra! Ljosmodir.is og hagræðingar í rekstri Vefstjóri ljosmodir.is hefur látið af störfum og formaður og skrifstofan hafa tekið við. Þetta er gert í hagræðingarskyni. Ekki er lengur greitt fyrir fyrirspurnir (nema í sambandi við brjóstagjöf) né neina aðra vinnu við síðuna. Vonumst við til að með þessum hætti getum við aflað félaginu nokkurra tekna. Við höfum leitað ýmissa leiða til sparnaðar og meðal annars pökkum við Ljósmæðrablaðinu sjálfar og dreifum um helmingi upplagsins með því að bera út blöðin á vinnustaði fólks. Við þetta sparast heilmikill póstburðarkostnaður. Við munum þróa þetta betur þegar næsta tölublað kemur út. Skjalaflokkun Óskar Þór Þráinsson hefur tekið að sér að flokka skjöl og setja upp skjalaflokkunarkerfi bæði rafrænt og á þau pappírsgögn sem þarf að varðveita. Mikilvægt er að skjöl félagsins séu flokkuð eftir viður- kenndu kerfi. Það auðveldar alla vinnu við að finna þau skjöl sem á þarf að halda hverju sinni, og heldur utan um hvaða eigur félagið á. Einnig mun þetta gera nýju fólki sem kemur til starfa fyrir félagið auðveldara að komast inn í starfið og að skoða og kortleggja fyrra starf félagsins. Skrifstofan Ráðist var í endurbætur á skrifstofunni. Keypt var fundarborð og fundaraðstaða gerð á skrifstofunni. Almenn ánægja er með þetta fyrir- komulag og er aðstaðan mikið notuð. Á döfinni Ýmsar hugmyndir eru á lofti innan stjórnar um hvað þurfi að gera og breyta og bæta í rekstri félagsins. Áhugi er á því að reyna að standa Frá aðalfundi Ljósmæðrafélagsins í vor. Áslaug Hauks, Dýrfinna og Áslaug Valsd.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.