Fréttablaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 33
Key of Marketing
er ný og fram-
sækin stafræn
auglýsingastofa
sem sérhæfir sig í
markaðssetningu
á samfélags-
miðlum og því að
koma fyrirtækj-
um á grípandi
framfæri.
Okkar aðalsmerki er frábær þjónusta, vönduð vinnu-brögð og klæðskerasniðnar
lausnir sem henta ólíkum fyrir-
tækjum til þess að sækja fram og
vekja athygli á samfélagsmiðlum,“
segir Ægir Hreinn Bjarnason, sölu-
stjóri hjá markaðsfyrirtækinu Key
of Marketing sem byrjaði að fara
á f lug í nóvember og hefur fengið
gríðargóðar viðtökur ánægðra við-
skiptavina.
„Við sérhæfum okkur í að finna
bestu leiðirnar fyrir fyrirtæki
að markaðssetja sig á samfélags-
miðlum. Það er engin spurning að
hagur fyrirtækja eykst við að nota
þjónustuna okkar því við notum
allar nýjustu aðferðirnar við að
auglýsa á samfélagsmiðlum og setj-
um mikinn metnað í að tileinka
okkur það nýjasta og bæta okkur
enn frekar,“ segir Ægir sem hjá Key
of Marketing sinnir þjónustu fyrir
fyrirtæki af öllum toga.
„Við sjáum um auglýsingar á
Facebook, Instagram, Google,
YouTube og Email og notum hug-
búnaðinn Facebook Pixel til að
finna líklegustu kaupendurna.
Þannig leggjum við mikla áherslu á
að læra inn á viðskiptamódel hvers
fyrirtækis fyrir sig og finnum út
lokamarkmið þeirra. Markaðs-
planið er því sérsniðið að hverju og
einu þeirra,“ upplýsir Ægir.
Reynsluboltar við stýrið
Key of Marketing tekur markaðs-
og auglýsingamál fyrirtækja í
fóstur og fylgir eftir hverju fótmáli.
„Það tekur tíma að læra inn á
samfélagsmiðla og breytingar þar
eru hraðar. Því þurfa langflest
fyrirtæki leiðsögn um síbreyti-
legan frumskóg samfélagsmiðla
og þá er þægilegt að hafa reynslu-
bolta og kunnáttumenn eins og
okkur til að sjá um það frá A til Ö
og geta einbeitt sér að rekstrinum í
staðinn,“ segir Ægir.
Key of Marketing býður upp
á markaðssetningu á samfélags-
miðlum, myndbandsgerð, lógó-
hönnun, teiknimyndir (e. anima-
tion video) og vefsíðugerð, sem og
grafíska hönnun, portrait-myndir,
3D-vinnu, plaköt, albúm, tónlist
fyrir auglýsingar, tölvupósther-
ferðir (e. email marketing) og allt
sem tengist markaðssetningu
fyrirtækja.
„Við veitum framúrskarandi
þjónustu og vönduð vinnubrögð.
Við búum að mikilli reynslu,
erum með víðtækan bakgrunn í
netverslunum, kóðunarvefsíðum
og auglýsingum um allan heim
og höfum á undanförnum árum
unnið ötullega að markaðssetn-
ingu á samfélagsmiðlum.“
Einstakar lausnir sem virka
Key of Marketing var stofnað á
haustmánuðum í fyrra. Fyrir-
tækið er í eigu Ægis og Odds Jarls
Haraldssonar og nýlega bættust
við þrír starfsmenn, þeir Svavar
Sigursteinsson myndtökumaður,
Þröstur Njálsson ljósmyndari og
Axel Magnús Kristjánsson verk-
efnastjóri sem sér einnig um leik-
stjórn við myndbönd og er Google-
sérfræðingur fyrirtækisins.
„Við Oddur höfðum unnið
saman að mörgum verkefnum og
fannst Key of Marketing vera besta
leiðin til að samnýta krafta okkar,“
upplýsir Ægir um tilurð fyrir-
tækisins.
Key of Marketing stendur fyrir
vinsælum námskeiðum í markaðs-
setningu á Facebook og Insta-
gram og á döfinni eru námskeið
í markaðssetningu á Google og
YouTube. Næsta námskeið stendur
yfir dagana 24. og 31. mars og eru
aðeins sextán sæti laus.
„Fyrsta námskeiðið sló í gegn
og allir voru mjög ánægðir með
árangurinn. Á námskeiðinu kenn-
um við frá grunni hvernig á að
búa til auglýsingar á Facebook og
Instagram. Það verður sífellt mikil-
vægara að vera með rétta markaðs-
setningu á samfélagsmiðlum, en
öfugt við aðrar auglýsingaleiðir er
hægt að beina auglýsingum að hár-
réttum aðilum og þarf ekki að eyða
í það miklu fé. Á vinsælustu sam-
félagsmiðlunum liggja gríðarleg
tækifæri og á leitarvélinni Google
kennum við að komast að ofarlega
í leitinni og að fyrirtækin fái réttu
klikkin og borgi sem minnst fyrir
sem mest,“ útskýrir Ægir sem hjá
Key of Marketing hugsar ávallt
út fyrir boxið og er sífellt að bæta
við þekkingu til að mæta þörfum
viðskiptavina með óvæntum, gríp-
andi og skemmtilegum lausnum
sem virka.
„Við erum einstakt fyrirtæki;
ungt en reynslumikið. Við bjóðum
ferskar lausnir og erum ákafir í
að gera vel. Við tökum markaðs-
málin að okkur fyrir fyrirtæki,
búum til allt markaðsefni sem þau
þurfa og fylgjum þeim áfram með
veflausnum og auglýsingum,“ segir
Ægir en nú þegar eru fjölmörg
ánægð fyrirtæki í áskrift hjá Key of
Marketing.
„Við förum djúpt í hvað virkar
best fyrir hvert og eitt fyrirtæki því
öll eru þau einstök og áherslurnar
ólíkar; hvernig auglýsingar fá
mesta athygli og hvernig á að lesa
úr árangri þannig að fjármunir
nýtist sem best. Það eru auðvitað
margar leiðir til að gera þetta, en
við gerum þetta rétt.“
Það kostar ekkert að hafa sam-
band við Key of Marketing og alltaf
heitt á könnunni þegar komið er til
skrafs og ráðagerða.
Key of Marketing er í Ármúla 6.
Sími 891 6630. Netfang team@
keyofmarketing.com. Sjá nánar á
keyofmarketing.com.
Við gerum þetta rétt
Ægir Hreinn Bjarnason og Oddur Jarl Haraldsson höfðu unnið saman að mörgum verkefnum þegar þeir ákvaðu að leiða saman hesta sína hjá Key of Marketing. MYND/EYÞÓR
Langflest fyrirtæki
þurfa leiðsögn um
síbreytilegan frumskóg
samfélagsmiðla og þá er
þægilegt að láta kunn-
áttumenn eins og okkur
sjá um það frá A til Ö.
Ægir Hreinn Bjarnason
KYNNINGARBLAÐ 3 F I M MT U DAG U R 1 4 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 NETÖRYGGI
1
4
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
5
1
-A
2
9
8
2
2
5
1
-A
1
5
C
2
2
5
1
-A
0
2
0
2
2
5
1
-9
E
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K